AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Page 19

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Page 19
íbúðarhús, til umfangsmikilla endurbóta á íbúðar- húsnæði, til byggingar dvalarheimila, vistheimila og dagvistarstofnana fyrir börn og aldraða, til tækninýjunga o.m.fl. Árið áður, 1979, hafði stofn- unin einnig tekið við því hlutverki Stofnlánadeildar landbúnaðarins að annast lánveitingar til íbúða- bygginga í sveitum landsins. Með þessari breytingu var svo komið, að Húsnæð- isstofnunin annaðist, ein allra lánastofnana, veit- ingu langtímalána til húsnæðismála í landinu. Líf- eyrissjóðirnir höfðu þær þó enn með höndum, en starfssvið þeirra hefur þó fyrst og fremst verið á öðrum vettvangi. í kjölfar þessara breytinga leit- uðu bændur í auknum mæli eftir kaupum á íbúða- teikningum hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar, þar til teiknivinnu var hætt þar árið 1993. Á árinu 1985 var sérstök ráðgjafarstöð sett á fót í tæknideild Húsnæðisstofnunar til þess að leysa vanda þess fólks, sem lenti í „misgenginu" svo- nefnda, þ.e. þegar laun voru skert árið 1983 á sama tíma og greiðslubyrði lána vegna húsnæðis- kaupa og húsbygginga jókst verulega, m.a. vegna mikillar verðbólgu. í fyrstu átti þetta að vera tíma- bundin ráðstöfun, en þörfin fyrir ráðgjöf og skuld- breytingar fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum hefur síst minnkað og er í raun viðvarandi ástand, sem ekki síst má rekja til skertra ráðstöfunartekna heimil- anna og aukins atvinnuleysis. Ráðgjafarstöðin er því enn starfandi og er nú í þjónustudeild stofn- unarinnar. NÝ LÁNAKERFI KOMA TIL SÖGUNNAR Kjarasamningarnir árið 1986 knúðu á um miklar breytingar í húsnæðislánakerfinu; nýtt lánakerfi var tekið upp og lögum breytt um stofnunina. Meg- inbreytingarnar urðu þær, að fjárhæð lána frá Hús- næðisstofnun tvöfaldaðist og lánstími var lengdur í 40 ár. Lífeyrissjóðir skuldbundu sig til að verja allt að 55% af ráðstöfunarfé sínu til kaupa á skulda- bréfum stofnunarinnar. Það skilyrði var sett fyrir lánveitingum frá Byggingarsjóði ríkisins að um- sækjandi hefði greitt í a.m.k. tvö ár til lífeyrissjóðs. Með tilkomu „húsbréfakerfisins" árið 1989 dró verulega úr starfsemi þessa húsnæðislánakerfis, löngum nefnt „86 kerfið". Það var síðan lagt af með nýjum lögum árið 1991. í nóvember 1989 hóf „húsbréfakerfið" göngu sína, en tilgangurinn með því var að breyta fjármögnun hins almenna íbúðalánakerfis þannig, að í stað þess að sækja um beint peningalán til Húsnæðis- stofnunar var tekið upp skuldabréfakerfi þar sem „lánin" eru í daglegu tali nefnd húsbréfalán. Við kaup á notaðri íbúð fara viðskiptin þannig fram, að kaupandi óskar eftir því við Húsnæðisstofnun að gefa út fasteignaveðbréf á nafni seljanda, sem síð- an afhendir honum sem greiðslu upp í kaupverð. Seljandi getur síðan selt stofnuninni bréfið, sem „Lífeyrissjóðir skuldbundu sig til að verja allt að 55% af ráðstöfunarfé sínu til kaupa á skuldabréfum stofnunarinn- ar. Það skilyrði var sett fyrir lánveiting- um frá Byggingarsjóði ríkisins að um- sœkjandi hefði greitt í a.m.k. tvö ár til lífeyrissjóðs. “ greiðir fyrir það með húsbréfum. Húsbréfin getur seljandi selt á markaði, átt þau sem sparnað eða látið þau ganga áfram í næstu íbúðarkaup. Hús- bréfalán geta í dag verið allt að 70% af matsverði íbúðar við fyrstu íbúðarkaup, en annars 65%. Mörg nýmæli fylgdu húsbréfakerfinu. Það skilyrði var sett fyrir veitingu húsbréfalána að greiðslugeta umsækjanda væri könnuð áður en lánið væri af- greitt. Afgreiðslutími styttist verulega, hámarksfyr- irgreiðsla var meiri en áður, lánstími var styttur;og vextir voru nokkru hærri en í eldra lánakerfi. Sam- hliða voru þó teknar upp vaxtabætur, sem jafna vaxtamuninn í mörgum tilvikum. AÐRIR ÞÆTTIR í STARFSEMINNI Hér að framan hefur saga stofnunarinnar og þróun húsnæðismála sl. 40 ár verið rakin í stórum drátt- um. Enn er þó nokkurra þátta ógetið og ber þar fyrst að nefna stuðning Húsnæðisstofnunar við tækninýjungar í byggingariðnaði. í lögum um Hús- næðisstofnun frá 1957 er talað um það sem eitt meginhlutverk hennar að stuðla að umbótum í byggingariðnaði. Það hlutverk hefur stofnunin oft og löngum rækt myndarlega, m.a. á síðustu árum, þegar húsnæðismálastjórn fékk aukna heimild til að veita fé til tækninýjunga og annarra umbóta í byggingariðnaði. Stofnunin hefur á undanförnum árum veitt 10-20 milljónir króna árlega í þennan málaflokk. Oft og tíðum hefur verið haft náið sam- starf við Rannsóknarráð íslands (RANNÍS) um 17

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.