AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Síða 31
Fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni Húsnæðisstofnunar ríkisins um grunnhönnun félagslegra íbúða í framtíðinni.
Arkitektar Heba, Hólmfríöur og Hrefna.
um landið. Tekið er á móti framvinduyfirliti mánað-
arlega og það borið saman við verkstöðu og fram
kvæmdarlánasamning. Sé framvinda eðlileg og í
samræmi við gögn er útbúin greiðslubeiðni og
framkvæmdaaðila greitt það fé sem um hefur ver-
ið samið í framkvæmdarlánasamningi.
3. Lokaúttektir fyrir íbúðir aldraðra og félags-
legt húsnæði
Tæknideildin hefur umsjón með f.h. Húsnæðis-
stofnunar að gerðar séu lokaúttektir á félagslegu
húsnæði, skv. fyrirmælum laga og reglugerða, og
að samræmis sé gætt í þeim. Við lokaúttektir er
þess gætt að húsnæðið sé byggt samkvæmt þeim
gögnum sem lágu til grundvallar við lánveitingu og
að það uppfylli þær gæðakröfur (t.d. hönnunar-
reglur), sem settar hafa verið.Úttektir eru ein af
leiðum tæknideildar til að viðhalda mikilvægum
tengslum við byggingarmarkaðinn.
4. Tæknileg ráðgjöf vegna húsbréfalána til
meiriháttar endurbóta og endurnýjunar á eldra
húsnæði
Tæknideildin hefur haft með höndum ráðgjöf,
kostnaðarmat og tæknilegar úttektir vegna lána til
meiriháttar endurbóta eða endurnýjunar á eldra
húsnæði.
5. Úttektir og umsagnir fyrir lögfræðideild Hús-
næðisstofnunar
Lögfræðideild hefur með höndum meðferð þeirra í-
búða, sem Húsnæðisstofnun kaupir á uppboðum,
og hefur fjöldi þeirra skipt tugum undanfarin ár.
Hlutverk deildarinnar er að selja þessar íbúðir á
ný. Starfsmenn tæknideildar hafa verið starfs-
mönnum lögfræðideildar til aðstoðar við að gera
tæknilega úttekt á íbúðunum og að ákvarða sölu-
verð þeirra.Hafa starfsmenn tæknideildar skoðað
þær íbúðir, sem óskað hefur verið eftir, og gert um
það skýrslu þar sem ástand íbúðar er metið og í-
búðin verðlögð út frá kostnaðargrundvelli húsnæð-
ismálastjórnar, að teknu tilliti til aldurs og ástands.
Húsnæðisstofnun ríkisins hefur um áratuga skeið
tekið virkan þátt í norrænu samstarfi og frá 1982 í
samnorrænum rannsóknarverkefnum um hús-
næðismál. Starfsmenn tæknideildar hafa verið full-
trúar hennar í nokkrum samnorrænum rannsókn-
arverkefnum. Má þar m.a. nefna verkefni um
íbúða gæði á Norðurlöndum, rannsóknarverkefni
29