AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Page 32

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Page 32
um áhrif niðurgreiðslna á byggingarkostnað á Norðurlöndum og verkefni um vistvænar bygging- ar, skipulag og endurbætur á húsum. Þátttaka Húsnæðisstofnunar í samnorrænum rannsóknarverkefnum er mjög mikilvægur þáttur í starfseminni, þar sem það veitir innsýn í hvernig aðrar þjóðir taka á vandamálum varðandi hús- byggingar og ekki síður að láta okkar rödd heyrast meðal annarra þjóða. Þó má greinilega merkja að önnur Norðurlönd líta í ríkari mæli yfir á meginland Evrópu um samstarf, en Danmörk hefur um áratuga skeið verið í Efna- hagsbandalaginu. Þessar breytingar geta haft á- hrif á norrænt samstarf, en sem betur fer nýtur það mikils skilnings hjá öllum Norðurlöndunum að halda áfram góðu innra samstarfi. Tæknideildin starfar sem ráðgjafi Húsnæðisstofn- unar og stjórnar hennar um tæknileg málefni og annast samskipti við aðra opinbera aðila, sem vinna að áætlanagerð, rannsóknum og tilraunum á sviði húsnæðis- og byggingarmála. Rannsóknir og nefndarstörf eru unnin í samstarfi við marga aðila, utan sem innan Húsnæðisstofnunar. Má þar nefna aðrar opinberar stofnanir, s.s. Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Iðntæknistofnun og aðrar norrænar stofnanir og ráð. Auk ofangreindra verkefna sinnir tæknideildin end- urskoðun og viðhaldi á kostnaðargrundvelli hús- næðismálastjórnar, hönnunarreglum og kostnað- arbanka Húsnæðisstofnunar ásamt öðrum rann- sóknar- og nefndarstörfum sem tæknilegur ráð- gjafi Húsnæðisstofnunar og stjórnar hennar. Eftirtaldir einstaklingar hafa verið í forsvari fyrir teiknistofu/tæknideild Húsnæðisstofnunar síðast- liðin 40 ár: Halldór Halldórsson, Magnús Ingi Ingv- arsson, Haraldur V. Haraldsson, Guðmundur Gunnarssson og Björgvin L. Hjálmarsson sem er núverandi forstöðumaður. ■ Verkfræðingar, arkitektar og aðrir tæknimenn! Við viljum benda á efirfarandi nýleg rit frá stofnuninni: Læstar málmklæðningar áhús(70) ÍSLENSKAMIREINANGRCNARKERFIÐ ÍMÚR ÁSTANDSKÖNNL'N =r. Ml. Lh^rr:.; íslenska múreinangmnar- kerfið ÍMÚR (95-21) Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins Sími: 570 7300 - Fax: 570 7311

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.