AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Side 58

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Side 58
ar skipulagstillögur, þar sem höfuðáhersla yrði lögð á að íbúum byggðarinnar geti liðið vel og not- ið frítíma síns á jákvæðan og uppbyggilegan hátt í tengslum við ósnortna náttúru. Lífsmynstur fólks er að breytast. Útivist hvers konar hefur aukist stór- lega og fleiri og fleiri leggja áherslu á gæði nánasta umhverfis síns, gott skjól og ennfremur öryggi í samgöngum. Aukinni útivist fylgja einnig óskir um möguleika á fjölbreyttari ferðamáta en einkabílinn einvörðungu, svo sem hjólandi og gangandi um- ferð og góðri almenningsvagnaþjónustu. Sú nýbreytni var ákveðin, að auk þess að veita höfundum tillagna sem lentu í 1., 2. og 3. sæti pen- ingaverðlaun, skyldu þeir eiga þess kost að útfæra nánar afmarkaða hluta samkeppnissvæðisins á þeim forsendum og hugmyndum, sem 1. verð- launatillagan yrði byggð á. DÓMNEFND VAR PANNIG SKIPUÐ: Tilnefnd af borgarráði Reykjavíkur:Guðrún Ágústs- dóttir, formaður skipulagsnefndar, formaður. Á- gústa Sveinbjörnsdóttir, arkitekt FAÍ. Knútur Jeppesen, arkitekt FAÍ.Tilnefndir af Arkitektafélagi íslands: Jón Þór Þorvaldsson, arkitekt FAÍ. Stefán Örn Stefánsson, arkitekt FAÍ. Trúnaðarmaður: Guðrún Guðmundsdóttir, arkitekt FAÍ. Ráðgjafar dómnefndar: Þorvaldur S. Þorvaldsson, forstöðu- maður Borgarskipulags, Bjarni Reynarsson, að- stoðarforstöðumaður Borgarskipulags, Ólafur Bjarnason, framkvæmdastjóri áætlanasviðs hjá borgarverkfræðingi. Ingibjörg Kristjánsdóttir, landslagsarkitekt. Ritari dómnefndar: Ágúst Jóns- son, skrifstofustjóri borgarverkfræðings. Dómnefnd hélt 11 fundi á tímabilinu frá 5. júlí 1995 til 6. júní 1996 til undirbúnings samkeppninni. Þeg- ar í upphafi undirbúningsvinnu dómnefndarinnar auglýsti hún samkeppnina í dagblöðum. Var þá ráðgert að keppnin stæði yfir haustið 1995, en m.a. með tilliti til skipulags- og hönnunarsamkeppni, sem önnur sveitarfélög efndu til, var ákveðið að fresta Grafarholtssamkeppninni og var keppnislýs- ingin gefin út 12. júní 1996. Frestur til fyrirspurna var ákveðinn til 15. júlí, en þar sem engar fyrir- spurnir bárust dómnefnd innan frestsins var hann framlengdur til 2. september. Skiladagur tillagna var 15. nóvember 1996. KEPPNISLÝSING Tilgangur samkeppninnar var að fá fram hugmynd- ir um íbúðabyggð á samkeppnissvæðinu, sem er um margt sérstakt og áhugavert frá náttúrunnar hendi. Lögð var áhersla á að þátttakendur kæmu með hugmyndir að vegakerfi og byggingarsvæð- um, þar sem umferðaröryggi, samspil bygginga og áberandi fagurfræðileg gildi væru í hávegum höfð. Mikið var lagt upp úr því, að byggðin undirstriki og notfæri sér kosti svæðisins, bæði í stórum dráttum, s.s. landslagi og útsýni, og marki sér sitt svæði með sínum kennileitum, en einnig, og ekki síður, í smærri atriðum, eins og nábýli við vatn, á, gróður, heiðina til austurs og þá stórfelldu ræktun sem fram hefurfarið á Reynisvatnsheiði. Síðast en ekki síst skyldu tillögurnar sýna fram á að væntanlegir íbúar hafi á svæðinu svigrúm til þess að þróa með sér heilbrigt og fjölskrúðugt mannlíf. Áhersla var lögð á, að skipulag taki mið af umferð- aröryggi. Strætisvagnaleiðir skyldu tengjast vel þjónustukjarna og miða skyldi við að gönguleiðir verði hvergi lengri en 400 m að biðstöðvum stræt- isvagna. Óskað var eftir að keppendur lýstu í texta og/eða með uppdráttum hugmyndum sínum um einn eða fleiri tilraunareiti með mismunandi sniði. Ekki var gert ráð fyrir að skipulag slíkra reita væri sett fram á mjög fastmótaðan hátt. Á tilraunareitunum mátti hugsa sér, að vikið yrði frá hefðbundnum kröfum um fjölda bílastæða og stærðir lóða, hús yrðu byggð í áföngum og gatnagerðargjald yrði þá greitt í samræmi við þá áfangaskiptingu. Á slíkum reit þyrfti að tryggja að húsin mynduðu fallega heild á mismunandi byggingarstigum. Reynt skyldi að vinna með hugtök eins og „kynslóðahús", „grænar fjölskyldur", sameiginleg rými inni og úti, sameigin- leg ræktun o.s.frv. Gert var ráð fyrir að keppendur settu fram hug- myndir sínar að heildarskipulagi alls svæðisins og að höfundar þeirra tillagna, sem yrðu í efstu verð- launasætum, fengju afmarkaða reiti innan heildar- svæðisins til frekari úrvinnslu. Innan þeirra reita gætu verið minni svæði eða tilraunareitir, sem enn fleiri arkitektar gætu komið að. Á þessum reitu gæti sami arkitekt lokið deiliskipulagsvinnunni og jafnframt hannað hús á reitinn með umhverfisgæði og sparnað að leiðarljósi. 56

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.