AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1997, Page 77
Kirkjustrætis 8b, fínhöggnu steinarnir í Alþingishúsinu
og slípaöar flísar tengibyggingarinnar vinna í efn-
isvali saman, en tala hver máli síns tíma.
Til aö undirstrika sjálfstæði gömlu húsanna, er
snertiflötur útveggja tengibyggingarinnar viö þau
stórir glerfletir. Léttleiki glerflatanna undirstrikar lá-
rétta brúartenginguna viö húsin. Lóörétt umferö í
tengibyggingunni er í miöju hennar, lyftan og stig-
inn. Lokun í útliti undirstrikar þetta, þar sem lóörétt
læst koparklæðning er notuð.Tengibyggingin er
sjálfstæö nútímabygging. Því er hvorki timbur né
bárujárn gömlu húsanna valið sem ytra efni, held-
ur eru fengin sjónræn tengsl við Alþingishúsiö
meö því að velja sama létta eðalefnið og þar er
notað.
Til aö yfirgnæfa ekki Kirkjustræti 10 er þaki tengi-
byggingarinnar haldið sem lægstu þar sem þaö
snertir gamla húsiö. Til þess aö skapa viðunandi
lofthæð viö inngang í Kirkjustræti 8b á 2. hæö, þarf
þakið aö hækka talsvert í þá áttina. Bogaformiö
eykur á léttleika byggingarinnar og er eins og arm-
ur sem styður viö gömlu húsin. Bogaformið hjálp-
ar einnig til að skapa tíðarandann í arkitektúrnum
um leiö og þaö er tilvitnun í „Kringluþakið og boga-
glugga Alþingishússins.
í hönnunarvinnunni var þaö haft aö leiðarljósi að
byggingarnar gætu orðið hluti af framtíöarupp-
byggingu Alþingisreitsins, meö möguleika á teng-
ingu aö sunnanverðu auk þess aö tengjast má öör-
um byggingum til vesturs frá Kirkjustræti 8b. ■
75