AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Side 27

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Side 27
vegna væntanlegrar Leifs heppna samkeppni á veg- um Úflutningsráðs, Utanríkis- og Menntamálaráðu- neytisins og Leifs heppna- og Aldamótanefndarinnar. Menningin er allsstaðar, getur þess vegna verið í skolpinu ekkert síður en guð í garðslöngunni. Lyk- ilatriðið felst í því að vera nógu opinn og móttæki- legur á jákvæðan hátt. Þegar menningarhamurinn hvolfist yfir er farsælast að tryggja sem mestan frið fyrir listinni og umfram allt listamönnunum. Því eins og borgarstjórinn sagði um árið, „þá eru kirkj- urnar ekki fyrir prestana og sjúkrahúsin ekki fyrir læknana né söfnin fyrir listamennina, heldur eru allar þessar stofnanir fyrir almenning." í sama streng tók þingmaður Framsóknarflokksins sem sagði fyrir skömmu, að tilefni minnisvarðans, sem Fjalla-Eyvindar-nefndin hyggst láta reisa, væri að hann hefði að undanförnu orðið var við síaukinn áhuga hjá þjóðinni á Fjalla Eyvindi og Höllu, lífsstíll þeirra hefði verið langt á undan sinni samtíð. Þessum einkennilega blendingi af órakennd- um stílbrögðum og kerskni er auðvelt að vísa frá í virðulegri menningarumræðu, eða segja einfaldlega „ég skil ekki". Til hvers er þá leikur- inn gerður? Ég held að nálgun listamanna við veruleikann sé ávallt miðuð við að draga upp einhvers konar mynd af „ástandinu" eins og það birtist í samfélaginu. Ástandið birtist ekki síst í tungutakinu og hinu hvers- dagslega, og stundum óstýriláta en oft bælingar- lega þorpshjali. Er einhver annar betri mælikvarði sem við höfum á ástandið þegar öllu er á botninn hvolft en þetta fimbulfamb listamannanna, þ. e. þeir- ra sem gefa sig út fyrir að vera í stöðugri glímu við tjáningarmiðlana? Á hitt ber svo að líta að ýmsar stofnanir og samtök reyna á hverjum tíma að halda umræðunni í réttum skorðum, jafnvel þótt sumar þessar stofnanir séu raunar á mörkum þess að geta talist virkir þátttakendur í almennri faglegri umræðu, sbr. ýmsar menningarstofnanir okkar. Hvað varðar markandi blæ á almenna umræðu um samfélagið allt er handhægasta dæmið sjálft Morgunblaðið sem virðist mestan part vera skrifað í einhverjum allsherjar meðalstíl sem flæðir átakalaust fram í vemmilegum velmegunarrétttrúnaði. Hvaö kemur þetta viö þessum einkennilega út úr fókus og í belg og biöu stíl sumra ykkar listamannanna? Á þann hátt, að við erum að reyna að draga upp svipmynd eða veita dálitla innsýn í þann graut hug- renninga, athugana, hugmyndakerfa og ábyrgðar- lausra upplýsinga sem eru, með sífellt meiri hraða, á sveimi í kringum okkur en erfitt er að festa hend- ur á. List er annars vegar margslungið athugunar- ferli og hins vegar viðureign við tjáningarmiðlana. Hvort tveggja mætist svo í þeim brennipunkti sem er listamaðurinn, tiltekinn einstaklingur af holdi og blóði. Listamenn ber að vernda í sínu virkasta ástandi eins vel og lengi og tök eru á, vegna þess að með einhverjum hætti sýna þeir á sjálfum sér og í verkum sínum hvernig ástandið er. Aðrir hafa einfaldlega eitthvað allt annað við tímann að gera en að rembast við „að sýna" einhverjum eitthvað nema þá í beinum hagnýtum tilgangi. í þessu sam- bandi mætti ef til vill segja fyrirmyndarlistamanninn vera heiðarlegan miðil, a. m. k. virkan miðil. Skiln- ingurinn á heiðarleika er þó ávallt mjög á reiki þeg- ar list og listamennska er annars vegar. Er ástandið þá allt í graut? Þú ættir kannski að gera hér greinarmun á já- kvæðum og neikvæðum graut. Svartagallsraus er jafnmikil uppgjöf gagnvart sjálfvirkni ástandsins og doðakennd jákvæðni. Svo ég haldi mig við þetta myndræna orð, þá held ég að ýmislegt í íslenskri menningu hafi þróast í átt til grautar. Efni þessa viðtals átti nú aö tengjast hugmynd- um um Reykjavík sem veröandi ein af menn- ingarborgum Evrópu áriö 2000. Er öld grauts- ins aö renna upp?! Áttu þá við Póst-móderníska paradís.með yfirflæði af líkams- og sálargraut fyrir sem flesta? Með menning- una hér í huga minnir þetta mig á nefmælta tó- bakskarlsrödd í verki Magnúsar Pálssonar „Engin gleypir sólina" sem staglar: „Góður grautur sagði ég". - En af því ég sjálfur er mest að mausa í myndlistinni og hef auk þess mikinn áhuga á litum er kannski benda á að einkenni flestra grauta er að vera í öllum litum en engum þó. Kannski er það vís- bending um hvers gæti verið að vænta. Hin marglita borg, eöc hafragraut- ur? Einmitt, og kannski nýtt slagorð: býr í ha?

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.