AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Qupperneq 34

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Qupperneq 34
yfirhafna. Ekkert er jafnleiöinlegt og rússneskar biöraöir. í hléi vilja tónleikagestir tala saman en ekki bíða í biðröðum. Þarna þurfa að vera góð sæti og borð fyrir gesti. í anddyri gæti verið innangengt í litlar sérverslanir, myndlistargallerí, hljómplötu- verslanir, hljóðfæra og nótnaverslun, bókabúð, blómabúð o.s.frv. allt til þess að skapa lifandi um- gjörð. Það fer ekki á milli mála að arkitektar vita vel hvernig hanna þarf svona stórhýsi. Undirritaður gerir sér vel grein fyrir því að arkitektar eru vel meðvitaðir um þau atriði sem á undan eru talin. En ástæða er að nefna þau þar sem reynsla undirrit- aðs er að hönnuðir hafi reiknað naumt þegar kem- ur að þeim þáttum sem snúa að þeim sem starfa í húsinu. í nýju tónlistarhúsi í Munchen var matsalur listamannanna allt of lítill. í óperunni í Gautaborg er æfingasalur hljómsveitar og kórs of lítill og of lágt til lofts. Eftir að hús eru byggð er oft of seint að breyta. HVER Á AÐ BORGA OG REKA HÚSIÐ? Menn hafa spurt þegar umræðan um tónlistarhús kemur upp fyrir hvaða peninga skuli byggja og reka húsið. Eðlileg spurning eða hvað? Undirritaður hefur fylgst vel með málinu allt frá því að hann kom frá tónlistarnámi í Vínarborg 1983. Þar var hann svo lánsamur að fá að spila í stærstu og bestu tónlistarhúsum borgarinnar með háskóla- hljómsveitinni en einnig með kammerhópum. Eins og menn vita þá er Vín ein af háborgum evrópskr- ar menningar. Þar er hver silkihúfan upp af ann- arri. í Vínarborg býr ein milljón manna og fá íbúar borgarinnar tónlistina með móðurmjólkinni. Þar er litið á menningarbyggingar á sama hátt og stjórn- sýslubyggingar og menntastofnanir. Samfélagið sér um rekstur og byggingu þeirra. Það sama ætti að gilda hér á íslandi. Það verður einungis byggt eitt hús yfir allar þær þúsundir sem vinna að tónlist og vilja njóta hennar. Tónlistarhúsið á að vera stolt höfuðborgar íslendinga og vera öllum þeim sýni- legt sem sækja höfuðborgina heim. Húsið á að vera allri tónlist opið. Húsið á að vera anddyri ís- lenskrar menningar og um leið boðlegt alheims- stjörnum á sviði tónlistar. Húsið á að standa eitt, á fallegum stað og óstutt af annarri starfsemi. Þrátt fyrir þetta á húsið að hafa möguleika til þess að vera vettvangur alþjóðlegra viðburða. Menning- arstarfsemi er eins og menntun. Hún kostar pen- inga, en þjóðhagslegur ávinningur er augljós. Hann verður aldrei metinn í krónum og aurum. En erlendir aðilar sem vilja fjárfesta á íslandi spyrja oft fyrst um menningar- og menntunarstig þjóðarinn- ar. Við búum á eylandi. Landið er harðbýlt og við verðum að sjá til þess að það breytist ekki í stóra verstöð. Við getum ekki leitað yfir landamærin til þess að sækja tónleika eins og hægt er á megin- landi Evrópu. Við íslendingar viljum vera sam- keppnishæfir. Við erum það í tónlistinni hvað varð- ar tónlistarmennina. Hvað varðar aðstöðu erum við langt á eftir og hefur það oft og tíðum letjandi áhrif á erlenda listamenn sem beðnir eru um að koma hingað. Við verðum að sjá til þess að bú- vænlegt verði í þessu landi. Við verðum að geta boðið upp á fjölbreytilegt menningarlíf. Nokkuð vel er búið að öðrum listgreinum á íslandi hvað varðar aðstöðu. Tónlistin hefur mætt afgangi. Höfuðborg íslendinga verður ein af níu menningarborgum Evrópu árið 2000. Sinfóníuhljómsveit íslands verð- ur 50 ára. Reykjavík er eina höfuðborgin í Evrópu sem er án tónlistarhúss. Er því ekki kominn tími til að byggja tónlistarhús, tónlistarinnar vegna? ■ 32
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.