AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Qupperneq 22
manni yfirsýn og oft má nota söguna til að endur-
spegla eigin samtíð án þess að missa sjónar af
eigin uppruna. Ekkert er nýtt undir sólinni en gefa
má hlutum form sem vísar í söguna eða á annan
hátt endurspeglar skilning hönnuðarins á eigin
tíma. Stólinn er gott dæmi um þetta en til eru ótal
margar útfærslur af stólum þó svo að grunnhug-
myndin sé nær alltaf sú sama. í hönnunarferlinu er
mikilvægt að vera opinn fyrir áhrifum og vinna úr
þeim út frá eigin forsendum og skilningi. Mikilvægt
er að leyfa einstaklingnum að vaxa og dafna og
ekki hverfa í þann ” sosial graut” að við öll séum
eins og að einhverskonar rétttrúarstefna um hið
eina sanna form eigi heima í hönnun. Góð hönn-
un kemur frá “hjartanu
Faðir minn er smiður og á lítið verkstæði. Á
verkstæðinu fékk ég mína fyrstu og hugsanlega
mikilvægustu reynslu af formum og efnum. Hug-
myndir mínar um form og efni eru í nánum
tengslum við minn eigin uppruna og bakgrunn.
Nálægt heimili foreldra minna er slippur.
Við hlið slippsins var lengi vel brotajárnshaugur.
Þar voru afgangar af öllum mögulegum efnum,
ryðguðum og tærðum af tímanum. í niðurbrotinu
sér maður eðli hluta, hvernig að þeir eru settir
saman og hvernig efni tæra hvert annað.
Hönnun fjallar ekki eingöngu um að vinna með
form. Maður verður að læra að sjá. í brotajárn-
shaug eða í náttúrunni leynast hugmyndir sem
hægt er að taka í notkun. í kringum okkur eru fjár-
sjóðir sem enginn sér fyrr en við finnum þá.
Ég leita að kjarnanum, hvernig efni og form
sameinast og verða að einni heild. “ ■
THE CHAIRS OF ARCHITECT
SIGUR7UR GÚSTAFSSON
In this article, architect Sigurður Gústafsson offers
readers some of his thoughts about the philosophy of
design. In his view, design is to a large extent about
ideas, and interpreting the concept known as “quality
of life”.
He goes on to stress the importance of staying in touch
with one’s roots, and learning from the past. “In the
design process it is important to be open to influences
and to work based on one’s own background and
understanding. It is important to allow the individual
to grow and develop, and not disappear into the ‘social
melting pot’, which claims we are all alike .... Good
design comes from the heart.”
In conclusion, he says, “Good design is not only about
working with form. One must also learn to see. In
nature, or in a pile of scrap metal, are hidden ideas,
which may be put to use. All around us are treasures
that no-one sees until we find them.” ■