Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Blaðsíða 3
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 12. árgangur 2021, 3–19
© höfundar 2021. Tengiliður: Hjördís Sigursteinsdóttir, hjordis@unak.is
Vefbirting 22. mars 2021. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
„Þessi veröld sem við búum í var skrifuð af
körlum, um karla og fyrir karla“
Viðhorf og upplifun kvenna í stjórnum
fyrirtækja á Akureyri til kynjakvóta
Hjördís Sigursteinsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri
Kristín Helgadóttir, MSc í viðskiptafræði
Útdráttur: Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hlutfall kvenna
í stjórnum fyrirtækja á Akureyri og kanna viðhorf þeirra til kynjakvóta-
laganna og upplifun þeirra af þeim. Notaðar voru upplýsingar frá Cre-
ditinfo um kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja, tekin viðtöl við stjórnar-
fólk og framkvæmd spurningalistakönnun. Settar voru fram eftirfarandi
rannsóknarspurningar: (1) Hvert er hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja
á Akureyri á árunum 2011–2017? (2) Hefur konum í stjórn fyrirtækja á
Akureyri fjölgað eða fækkað meira á árunum 2011–2017 miðað við al-
mennt á Íslandi? (3) Hver eru viðhorf stjórnarmanna fyrirtækja á Akur-
eyri til kynjakvóta og hver er upplifun þeirra af honum? Niðurstöður sýna
að hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja á Akureyri með 50 starfsmenn
eða fleiri var 14% árið 2011 og fór í 36% árið 2017. Hlutfallsleg hækkun
var meiri hjá fyrirtækjum af þessari stærðargráðu á Akureyri en almennt
á Íslandi. Viðhorfið til kynjakvótans var almennt jákvætt og töldu sumir
hann nauðsynlega aðgerð til að jafna kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja
og breyta ríkjandi viðhorfum innan samfélagsins, en upplifðu samt litlar
breytingar eftir að hann var bundinn í lög. Mikilvægt er að setja viðurlög
á fyrirtæki sem ekki uppfylla skilyrði um að minnsta kosti 40% hlutfall
kvenna eða karla í stjórnum fyrirtækja því aðeins þannig er hægt að nýta
mannauð samfélagsins sem skyldi.
Lykilorð: Jafnrétti – Kynjakvóti – Konur – Stjórnir fyrirtækja
Abstract: The purpose of the study was to examine the proportion of
women on corporate boards in Akureyri and their attitudes and experience
with regard to the gender quota law. The data used was three-fold, statisti-
cal data, an online survey and semi-structured interviews. The research
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni