Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Blaðsíða 34
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 12. árgangur 2021, 34–50
© höfundar 2021. Tengiliður: Guðmundur Oddsson, goddsson@unak.is
Vefbirting 29. apríl 2021. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Mannekla lögreglu og mjúk löggæsla í dreifbýli
Guðmundur Oddsson, dósent við Háskólann á Akureyri
Andrew Paul Hill, lektor við Háskólann á Akureyri
Útdráttur: Markmið rannsóknarinnar eru að kortleggja þróun
mannafla íslensku lögreglunnar frá árinu 2007, skoða lögregluna í evr-
ópskum samanburði og greina upplifun dreifbýlislögreglumanna af helstu
áskorunum þeirra og bjargráðum. Notast er við fyrirliggjandi gögn og
viðtöl við 23 lögreglumenn með starfsreynslu í dreifbýli. Niðurstöðurnar
sýna að starfandi lögreglumenn voru 648 árið 2017 og hafði fækkað um
9% frá 2007. Landsmönnum fjölgaði samhliða um 10%. Árið 2018 var
Ísland meðal þeirra Evrópulanda sem höfðu hvað fæsta lögreglumenn
(185) á hverja 100.000 íbúa. Hvergi fækkaði lögreglumönnum jafn mikið
í Evrópu milli 2009 og 2018 og hérlendis (29,1%). Samhliða nær fimm-
faldaðist fjöldi erlendra ferðamanna. Fólksfjölgun, fjölgun ferðamanna og
fækkun lögreglumanna hafa aukið álag og komið niður á löggæslu, ekki
síst í dreifbýli. Niðurstöður viðtala sýna að helstu áskoranir sem dreif-
býlislögreglumenn upplifa eru mannekla, ofurálag, margþætt verkefni,
lítil aðstoð og óskýr mörk vinnu og einkalífs. Helstu bjargráð dreifbýlis-
lögreglumanna eru að þróa með sér fjölþætta kunnáttu og hugvitssemi við
að virkja félagsauð nærsamfélagsins. Mikilvægust er góð samskiptahæfni
sem byggist á samræðum, hæfileikanum að geta stillt til friðar og mjúkri
löggæslu til að viðhalda trausti almennings og samstöðu. Félagsauður
nærsamfélagsins, sem grundvallast á trausti, samvinnu og óformlegu fé-
lagslegu taumhaldi, hjálpar dreifbýlislögreglunni í þessum efnum.
Lykilorð: Lögregla – Mannekla – Dreifbýlislöggæsla – Áskoranir –
Bjargráð
Abstract: This study maps police staffing in Iceland since 2007 from a
European comparative perspective and analyses the main challenges and
practices of rural police officers using secondary data and interviews with
23 police officers who have worked in rural areas. Iceland had 648 work-
ing police officers in 2017, a 9% reduction since 2007. Iceland’s popula-
tion increased by 10% during this time period. In 2018, Iceland had among
the fewest police officers (185) per 100.000 inhabitants in Europe and
experienced Europe’s most significant reduction in the number of police
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni