Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Blaðsíða 82
Fatlað fólk í hamförum
82 ..
tök þeirra við gerð viðbragðsáætlananna varðandi COVID-19 eða fyrr. Landssamtökin Þroskahjálp
höfðu frumkvæði að samvinnu við landlækni og heilbrigðisráðuneytið við að búa til upplýsinga-
bækling um kórónuveiruna og bólusetningar á auðlesnu máli (Þroskahjálp, e.d.) en daglegar upp-
lýsingar um framvindu faraldursins var hins vegar ekki að finna á auðskildu máli og var heimasíðan
covid.is mjög óaðgengileg og flókin.
Afleiðingar þess að ekki er haft samráð við fatlað fólk við gerð viðbragðsáætlana má til dæmis
sjá í liðnum um upplýsingagjöf til almennings í áætlun vegna COIVD-19. Eins og fram hefur komið
getur ekki allt fatlað fólk nýtt sér þær upplýsingar sem ætlaðar eru meirihluta almennings. Þrátt
fyrir að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (2020) hafi sérstaklega nefnt aðgengi að upplýsingum í
tilmælum sínum varðandi aðstæður fatlaðs fólks í COVID-19 heimsfaraldrinum þá er fatlað fólk
hvergi nefnt sem hópur sem sérstaklega þurfi að gæta að varðandi aðgengi að upplýsingum í landsá-
ætluninni. Þar stendur meðal annars:
Við hvert atvik þarf að skilgreina hóp sem mikilvægt er að upplýsingar nái til
(dæmi: Aldraðir, barnafjölskyldur, ferðamenn, íbúar ákveðins svæðis) og finna
bestu leið til að miðla upplýsingum (dæmi: Vefur, sjónvarp, útvarp, dagblöð,
samfélagsmiðlar, tölvupóstur, bæklingar). Að lokum þarf að kanna hvort einhver
tími sólarhrings sé betri en annar til að koma upplýsingum á framfæri (dæmi:
Kvöldfréttir sjónvarps). (Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, 2020).
Þegar tryggja á fötluðu fólki aðgengi að upplýsingum þarf að gæta þess að þær séu á auðlesnu máli og
á mismunandi formi sem hentar ólíkum þörfum. Mikilvægt er að bjóða upp á hljóðskrár, punktaletur
fyrir blint fólk eða margmiðlunarefni sem er aðgengilegt fyrir þau sem eru táknmálstalandi (Armi-
tage og Nellums, 2020; Sabatello et al., 2020). Ef heimasíða almannavarna (almannavarnir.is) er
skoðuð má gagnrýna hana fyrir að bjóða ekki upp á stillingar fyrir lesblinda og sjónskerta en einnig
eiga vefþulur erfitt með að lesa efni síðunnar.
Þegar leiðbeiningar um náttúruvá eru skoðaðar sést að aldrei er gert ráð fyrir að fólk sé fatlað.
Við gerð þessara leiðbeininga er ekki stuðst við viðmið um algilda hönnun enda ná þær ekki til allra.
Samkvæmt leiðbeiningum almannavarna skal sá sem lendir í aurskriðu krjúpa og verja höfuðið,
leita til hátt liggjandi staða eða „leita skjóls í húsum og loka gluggum og millihurðum og dvelja
þeim megin sem snýr undan fjallshlíðinni“ (Almannavarnir, e.d.-b). Sömu sögu er að segja um leið-
beiningar um viðbrögð í jarðskjálftum en margt fatlað fólk getur ekki farið „undir borð eða rúm“ eða
kropið „niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg“ í jarðskjálfta (Almannavarnir,
e.d-d.). Hér er ekki verið að draga í efa gagnsemi leiðbeininganna fyrir flesta heldur frekar að draga
athyglina að því að ekki eru neinar leiðbeiningar sem henta fólki sem býr við skerta hreyfigetu eða á
auðlesnu máli. Þegar aurskriðurnar féllu á Seyðisfirði 2020 þurfti fatlað fólk og fjölskyldur fatlaðra
barna að rýma bæinn líkt og aðrir bæjarbúar. Engin búsetuþjónusta fyrir fatlað fólk er á svæðinu en
samkvæmt félagsþjónustu Múlaþings (Félagsþjónusta Múlaþings, munnleg heimild 2. mars 2021)
þá er smæð bæjarins slík að ekki væri líklegt að einhver gleymdist eða kæmist ekki úr bænum.
Jarðhræringar á Reykjanesi 2020 urðu til þess að gerð var viðbragðsáætlun fyrir íbúðakjarna í
Grindavík ef til eldgoss kæmi og rýma þyrfti bæinn. Í rýmingaráætlun bæjarins (Grindavíkurbær,
e.d.) er í forgangi bíll frá ferðaþjónustu fatlaðs fólks en honum er ætlað að koma íbúum íbúðakjarna
fyrir fatlað fólk ásamt starfsmanni út úr bænum til næstu fjöldahjálparstöðvar eða viðeigandi úrræða
eins og til dæmis á hjúkrunarheimili. Samkvæmt upplýsingum frá Hlín Sigurþórsdóttur (munnleg
heimild, 2. mars, 2021) sem er forstöðuþroskaþjálfi í íbúðakjarnanum eru verkefni viðbragðsaðila
skýr ef til bráðarýmingar vegna náttúruhamfara kæmi. Hún nefnir sem dæmi að töskur séu tilbúnar
með lista yfir þá hluti sem nauðsynlegir eru með í för og búið sé að tryggja að allir starfsmenn viti og
þekki sín hlutverk. Allir íbúar kjarnans verða sóttir af sama bíl og starfsmaður fylgir þeim. Auk þess
hefur starfsfólk kjarnans rætt jarðskjálftana og rétt viðbrögð við íbúana til að tryggja sem best öryggi
allra og að íbúum sé ekki valdið óþarfa áhyggjum. Slík viðbrögð eru til fyrirmyndar og eru verk-