Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Blaðsíða 68
Væntingar Íslendinga og hugmyndir innflytjenda um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi
68 ..
Umræður
Í þessari grein var reynt að staðsetja hugmyndir Íslendinga og innflytjenda um aðlögun að íslensku
samfélagi út frá þeim hugmyndum sem mest hefur á borið á sviði innflytjendarannsókna undanfarinna
ára. Út frá þeim fræðilegu hugmyndum voru settar fram eftirfarandi rannsóknarspurningar: Hverjar
eru væntingar Íslendinga og hugmyndir innflytjenda um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi?
Að hvaða marki verður þeim lýst sem samlögunarstefnu? Hvernig tengjast þessar hugmyndir
félagslegum bakgrunni fólks og fjölgun innflytjenda? Jafnframt þessum spurningum voru settar
fram þrjár rannsóknartilgátur. Í tilgátu 1 voru tengsl skoðuð á milli þjóðfélagsstöðu fólks og afstöðu
til samþættingar og samlögunar. Fram kom bæði hjá Íslendingum (tafla 2) og innflytjendum (tafla
3) að með hærri aldri eru meiri væntingar um samlögun. Það er í samræmi við niðurstöður annarra
rannsókna á viðhorfum heimamanna til innflytjenda (Bridges og Mateut, 2014; Callens o.fl., 2019).
Það sama gildir um tengsl menntunar og viðhorfa til innflytjenda og fjölmenningar. Í rannsókn
Callens og fleiri (2019) á viðhorfum íbúa Lúxemborgar til innflytjenda kemur fram að þeir sem
áttu styttri skólagöngu að baki voru líklegri til að aðhyllast samlögunarstefnu heldur en þeir sem
höfðu háskólapróf. Sú niðurstaða okkar að karlar geri meiri kröfur um samlögun innflytjenda en
konur er einnig í samræmi við það sem aðrar rannsóknir hafa fundið (Bridges og Mateut, 2009;
Þóroddur Bjarnason o.fl., 2019). Velta má fyrir sér mögulegum ástæðum þess, en í grein Þórodds
Bjarnasonar og fleiri (2019) er það nefnt sem möguleg ástæða að karlar sjái innflytjendur fremur
sem ógn við eigin atvinnustöðu, og þá um leið einnig sem ógn um afkomu sína, heldur en konur.
Við finnum því sömu tengsl á Íslandi og finnast í öðrum löndum hvað varðar menntun og aldur.
Athygli vekur að í þessari rannsókn hafa breytur sem lýsa stöðu fólks á vinnumarkaði, atvinnustaða
og áætlaðar mánaðartekjur ekki sterk tengsl við samlögunarvæntingar. Einnig að eftir því sem fólk
hefur hærri tekjur hefur það minni væntingar um samlögun (tafla 3). Samantekið fær tilgáta um
tengsl þjóðfélagsstöðu og hugmynda um samlögun stuðning af þessari rannsókn.
Í þeim erlendu rannsóknum þar sem tekjur eru sérstaklega greindar eins og hér er gert eru áhyggjur
af atvinnustöðu og afkomu taldar vera vísar að neikvæðari viðhorfum í garð innflytjenda. Hatton
(2016) tekur undir þá afstöðu en undirstrikar að það eigi sérstaklega við á tímum efnahagsþrenginga
og atvinnuleysis. Niðurstöður þessarar rannsóknar má því hugsanlega að hluta til skýra með efna-
hagslegum uppgangi á Íslandi eftir bankahrunið 2008. Eftir skarpa niðursveiflu á árunum 2008 til
2010 styrktist atvinnu- og efnahagsástand á Íslandi og hélst fremur gott fram til ársins 2020. Jafn-
framt því var atvinnuleysi á Íslandi fremur lágt, eða einungis um 2,9% hjá aldursflokknum 25–64
ára á höfuðborgarsvæðinu og um 1,6% í öðrum landshlutum árið 2019 (Hagstofa Íslands, 2019C).
Íslendingar litu því kannski ekki á innflytjendur sem ógn við sitt eigið starfsöryggi og óttuðust ekki
samkeppni af þeirra völdum á vinnumarkaði.
Í tilgátu 2 var skoðað hvort innflytjendur væru meira samþættingarlega sinnaðir en Íslendingar.
Niðurstöður okkar benda til þess að Íslendingar sjálfir geri ekki ríka kröfu um samlögun innflytjenda
að siðum og venjum íslensks samfélags. Til marks um það segjast 66% innflytjenda vera sammála
því að þeir innflytjendur sem hingað flytja eigi að taka upp siði og venjur íslensks samfélags á meðan
einungis 42% Íslendinga telja það nauðsynlegt. Þær niðurstöður stangast að hluta á við niðurstöður
Callens og fleiri (2015) þar sem rannsökuð voru viðhorf innfæddra og innflytjenda til aðlögunar
og fjölmenningar í Lúxemborg. Þar tóku ríkisborgarar Lúxemborgar í ríkari mæli þá afstöðu að
innflytjendur samlöguðust samfélaginu og tækju upp siði og venjur heimamanna. Fyrsta kynslóð
innflytjenda lagði aftur á móti ríkari áherslu á samþættingarleg viðhorf.
Íslenskan hefur löngum verið Íslendingum hugleikin og staðfesta niðurstöður rannsóknarinnar
að svo sé. Yfirgnæfandi meirihluti þátttakenda í könnuninni fyrir Íslendinga taldi mikilvægt að
þeir innflytjendur sem settust að á Íslandi lærðu íslensku. Að sama skapi taldi einnig meirihluti
innflytjenda að íslenskukunnátta væri mikilvæg þegar kæmi að aðlögun að íslensku samfélagi.
Þennan vilja innflytjenda til þess að læra íslensku, og kröfu Íslendinga um að þeir geri það, mætti