Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 12

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 12
„Þessi veröld sem við búum í var skrifuð af körlum, um karla og fyrir karla“ 12 .. Tafla 4. Þátttakendur eru mjög eða frekar sammála því að hafa sem jafnast hlutfall karla og kvenna í stjórnun fyrirtækja er mikilvægt af því að.... Konur % (n) Karlar % (n) þannig nýtist auður samfélagsins best 100,0% (6) 40,5% (15) það snýst um jafnan rétt karla og kvenna 66,7% (4) 40,5% (15) það hefur áhrif á rekstur fyrirtækja 83,3% (5) 29,7% (11) konur eru jafnhæfar körlum til að gegna stjórnunarstöðum 100,0% (6) 94,6% (35) það hvetur konur til að sækjast eftir starfsframa 100,0% (6) 64,9% (6) það stuðlar að betri fjárhagslegri afkomu fyrirtækisins 50,0% (3) 16,2% (6) Tafla 5 sýnir niðurstöður fjögurra fullyrðinga spurningalistakönnunarinnar um það að hvaða marki svarendur eru mjög eða frekar sammála því að lög um lágmark 40% kyns í stjórnum fyrirtækja sé vafasöm aðferð til þess að ná fram kynjajafnvægi í stjórnum fyrirtækja. Tæp 92% karla og helm- ingur kvenna var mjög eða frekar sammála því að kynjakvótinn sé vafasöm aðferð vegna þess að hæfni sé mikilvægari en kyn og rétt um 84% karla töldu óheppilegt að ríkið setji reglur um hverjir eigi að vera fulltrúar eigenda í stjórnum fyrirtækja. Aðeins ein kona var mjög eða frekar sammála þeirri fullyrðingu. Engin kona var sammála því að lögin um kynjakvóta séu vafasöm aðferð vegna þess að ekki sé nægur fjöldi kvenna til að manna stjórnunarstöður eða að þau séu neikvæð fyrir arð- semi fyrirtækja. Langflestir karlar eru á sömu skoðun því aðeins fjórir karlar voru sammála því að ekki sé nægur fjöldi kvenna til að manna stjórnunarstöður og aðeins einn var sammála því að lögin séu neikvæð fyrir arðsemi fyrirtækja. Tafla 5. Þátttakendur eru mjög eða frekar sammála því að lög um lágmark 40% kyns í stjórnum fyrirtækja er vafasöm aðferð til þess að ná fram kynjajafnvægi í stjórnum fyrirtækja vegna þess að.... Konur % (n) Karlar % (n) Ekki er nægur fjöldi kvenna til að manna stjórnunarstöður - 10,1% (4) Hæfni er mikilvægari en kyn 50,0% (3) 91,9% (34) Það er neikvætt fyrir arðsemina - 2,7% (1) Óheppilegt er að ríkið setji reglur um hverjir eigi að vera fulltrúar eigenda 16,7% (1) 83,8% (31) Viðmælendur voru almennt á því að lög um kynjakvóta væru af hinu góða og jafnvel nauðsynleg aðgerð til þess að breyta þeim viðhorfum sem til staðar væru í samfélaginu og rétta hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja. Eins og ein kona sagði: „þessi veröld sem við búum í var skrifuð af körlum, um karla, fyrir karla.“ Önnur kona sagði: hvort sem það sé kvóti eða einhver svona sterk tilmæli, þá held ég að menn þurftu þetta haldreipi til þess að breyta þessum stjórnum þú ert alls ekki að fá verri stjórnir, það verður alveg jafn fjölbreyttur hópur til að velja úr. Sumir viðmælenda bentu þó á að í sumum tilvikum væru fyrirtæki mjög sérhæfð sem þýddi að ein- sleitar stjórnir væru ekki endilega verri en blandaðar. Einn karl nefndi það að stjórnarmenn þyrftu oft að taka erfiðar ákvarðanir og vera leiðinlegir og það ætti oft og tíðum verr við konur. Annar karl hafði áhyggjur af því að meðal kvenna myndi myndast drottingastétt stjórnarkvenna, það er að segja að ákveðinn hópur kvenna yrði valinn til að sitja í mörgum stjórnum og þær yrðu þá valdar af því að þær væru konur en ekki af því að þær væru hæfari en aðrir til að sitja í þessum stjórnum. Einn karl- kyns viðmælandi taldi lagasetninguna um kynjakvótann óþarfa og sagði:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.