Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Side 27

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Side 27
Andrea Hjálmsdóttir og Valgerður S. Bjarnadóttir 27 .. Dagarnir eru farnir að taka á og ég tek sumarfrí einn dag á morgun. Yngra barn- inu hentar þetta ekki og fer að gráta yfir öllu sem á móti blæs, jafnvel bara þegar hún er beðin um að lesa eða fara með sokkana sína upp. Mín litla þolinmæði er á þrotum en ég reyni mitt besta að láta hana ekki sjá það. Mæðrunum varð mörgum hverjum tíðrætt um hversu erfitt ástandið væri börnunum. Hin daglega rútína var ekki til staðar og hinar önnum köfnu fjölskyldur, sem dags daglega hittust kannski ekki nema rétt í lok dags, vörðu nú öllum deginum innan veggja heimilisins. Slíkar breytingar höfðu vissulega mikil áhrif á börnin, líkt og móðir í fullu starfi, með fimm og átta ára gömul börn, lýsir hér: „Erfiður dagur í dag þar sem dóttirin grét af söknuði eftir vinkonum. Nám sat því á hakanum og dagurinn fór mikið til í að sinna börnum andlega.“ Það tók mikið á að eiga að sinna fullu starfi meðfram þessum verkefnum sem valda miklu andlegu álagi og einn af rauðu þráðunum í skrifum mæðranna var hvernig umhyggja og hvers konar umönnun varð stór partur af daglegri rútínu. Auðvitað þýðir það ekki að mæður sýni ekki umhyggju og setji umönnun barna sinna ekki í forgang í daglegu lífi en ljóst er að sá hluti hefðbundinnar rútínu þeirra mæðra sem þátt tóku í rann- sókninni jókst verulega með tilheyrandi álagi. Bjørnholt (2020) hefur bent á að Covid-19 hafi ein- mitt dregið fram í dagsljósið að umhyggja sé ein meginundirstaða hvers samfélags og hugleiðingar mæðranna bera þess vitni að sá hluti heimilislífsins hafi þyngst verulega í fyrstu bylgju faraldursins, enda skóla- og tómstundahald verulega skert og vinna af þessu tagi tilfinningalega krefjandi og krefst góðs skipulags. Það má færa rök fyrir því að konur hafi í meiri mæli en áður þurft að nýta ástarkrafta sína, þar sem þær lýstu því hvernig þær létu nám og störf sitja á hakanum og settu umönnun og líðan barna sinna í forgang. Þannig getur veruleiki heimilislífsins endurspeglað samfélagslega strúktúra utan þess, þar sem umönnun í víðum skilningi er á herðum kvenna og rænir þær ástarkrafti (Anna G. Jónasdóttir, 2011; 2014), sem til dæmis launuð umönnunarstörf í samfélaginu bera glöggt vitni um. Mörg barnanna söknuðu þess að mæta í skóla og tómstundir og í dagbókum mæðranna kom skýrt fram hversu oft börnin voru pirruð og örg yfir ástandinu. Líðan barnanna hafði vissulega áhrif á líðan mæðranna, líkt og sést á þessari dagbókarfærslu móður þriggja barna á aldrinum fimm til 16 ára, sem stundar fullt nám: Yngsta barnið okkar er á leikskólaaldri og finnst erfitt að komast ekki í leikskól- ann alla daga, verður eirðarlaus og þarf að hafa ofan af fyrir henni. Ég veit líka að þegar börnin verða óróleg verð ég stressaðri og fer að bera meira á kvíða hjá mér. Ástandið var þannig margslungið og dagbókarskrif mæðranna endurspegla hvernig tími sem varið var í ólaunaða vinnu jókst verulega á sama tíma og þær reyndu að halda í við kröfur vinnustaða í launavinnunni. Þrátt fyrir að vinnunni væri sinnt heiman frá, samhliða umönnun barna og öðrum fylgifiskum ástandsins, minnkuðu kröfur um afköst ekki endilega. Samviskubit yfir afköstum í vinnu bættist þannig ofan á allt annað. Þessi skrif verkefnastjóra með tvö ung börn eru lýsandi fyrir þátt vinnunnar í daglegu lífi mæðranna í fyrstu bylgjunni: Ég finn fyrir miklu álagi sem tengist þessu ástandi. Eftir að hafa fengið tíma- bundinn slaka í vinnunni er nú allt komið á fullt og ennþá meiri áhersla en áður á að verkefni haldi áætlun. Þetta setur mikla pressu þar sem lítið hefur mjakast í verkefnum síðasta einn og hálfa mánuðinn. Ég er orðin langþreytt á ástandinu. Langar ekki að halda áfram með umgengistakmarkanir, er við það að fá frekju- kast yfir aðstæðum. En áfram gakk, einn dag í einu. Öll él birtir upp um síðir. Það vekur athygli í skrifum mæðranna hversu mikilvægt þeim þykir að láta engan bilbug á sér finna og áhersla á að halda í jákvæðnina var nokkuð áberandi. Mikil orka virtist fara í að halda í gleðina og halda öllu góðu. Það virtist vera hlutverk mæðranna í mörgum fjölskyldum að passa upp á að hið daglega líf gengi snurðulaust fyrir sig. Eftirfarandi er lýsing þriggja barna móður:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.