Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 45
Guðmundur Oddsson og Andrew Paul Hill
45 ..
allt öðruvísi en málin að vissu leyti eins, þú leysir þau bara öðruvísi og verður
svolítið að treysta á sjálfan þig (Óttar).
Mikilvægi uppbyggilegra samskipta við að viðhalda trausti og samvinnu er enn meira í dreifbýli,
þar sem lögreglumenn eru samofnir samfélaginu og eru jafnan einir á vakt. Traustið, samvinnan og
samheldnin eru einmitt lykilþættir óformlegs félagslegs taumhalds sem öðru fremur heldur aftur af
frávikshegðun (Black, 1984; Sampson o.fl., 1997). Viðmælendur voru meðvitaðir um þetta samspil
og voru á einu máli um að dreifbýlislögreglumenn þyrftu fyrst og síðast að vera liprir í samskiptum
og að samræður væru mikilvægasta „verkfæri“ þeirra.
Mikilvægt er að einstaklingur geti notað samskipti án þess að það verði allt brjál-
að. Það eina sem þú hefur er kjafturinn og ef þú kannt að nota hann rétt þá getur
þú komið þér úr mörgum aðstæðum. Maður þarf oft og tíðum að nota almenning
í sum verkefni til að aðstoða mann (Hannes).
Í ljósi ofangreinds undirstrikuðu viðmælendur okkar mikilvægi þess að nálgast aðstæður varlega, að
miðla málum og gefa sér nægan tíma til að tala við fólk. Þessi atriði lýsa grundvallaratriðum mjúkrar
löggæslu, sem leggur áherslu á aðra þætti löggæslu en valdbeitingu og þvinganir. Leiðarljós mjúkrar
löggæslu er að vinna náið með samfélaginu að lausn vandamála og beita sannfæringarkraftinum og
almennri lempni við að halda uppi lögum og reglu (McCarthy, 2014; Wooff, 2017).
Dreifbýlislögreglumenn þurfa að vera góðir í samskiptum til að geta 1) stillt til friðar við erfiðar
aðstæður, 2) viðhaldið trausti almennings og 3) haldið uppi lögum og reglum með lágmarks vald-
beitingu. Hvað fyrsta atriðið varðar þurfa dreifbýlislögreglumenn að geta lægt öldurnar þegar hætta
er á ferðum og þurfa því að leggja rækt við samskiptahæfni sína:
Sko, af því að ég hef alltaf svo mikið unnið einn, þá þjálfast með manni ákveðin
kunnátta, sálfræðikunnátta eða eitthvað, til að halda mönnum góðum, ekki vera
að æsa þá upp og hafa stjórn á aðstæðum. Því vegna þess að ef við erum tveir
lögreglumenn, og maðurinn reiðist eða missir stjórn á sér, þá ráðum við alveg við
það. En þar sem ég er einn, þá er hætta á ferðinni. Þannig maður þarf eiginlega að
halda viðkomandi góðum, en samt sýna ákveðni, leyfa honum að finna að hann
komist ekki neitt, ég ræð og stjórna (Ásmundur).
Í annan stað eru uppbyggileg samskipti lögreglu og almennings sérstaklega mikilvæg í dreifbýli
til að byggja upp og viðhalda trausti og samstöðu (Jackson og Bradford, 2010). Árangur dreif-
býlislögreglunnar veltur nefnilega á því að samstaða ríki um störf hennar: „Þú getur gert almenning
andsnúinn þér eða þú getur haft almenning sem styður þig vegna þess að hann skilur hvað þú ert
að gera“ (Páll). Þetta krefst stöðugra samningaviðræðna og sannfæringar þar sem dreifbýlislögreglu-
maðurinn leggur sig fram við að viðhalda ímynd sinni, annars vegar sem umhyggjusamur meðlimur
samfélagsins og hins vegar sem gegnheill opinber starfsmaður. Í þessu felst að lesa þarfir og óskir
samfélagsins, en sýna jafnframt fagmennsku og lúta siðareglum lögreglustarfsins.
Í þriðja lagi voru viðmælendur okkar sérstaklega meðvitaðir um mikilvægi mjúkrar löggæslu
í dreifbýli og að óhófleg valdbeiting og harðhentar þvinganir græfu undan trausti almennings og
sköpuðu fleiri afbrot og meiri óreiðu en þau koma í veg fyrir:
Ég nota mest mannleg samskipti og það að vera hluti af samfélaginu og blandast.
Ég er frekar mildur lögreglumaður og hef alltaf verið. Ég vil að fólk breyti rétt
með mjúkum aðferðum. Það þýðir ekkert að vera grjótharður lögreglumaður, það
gengur ekki upp í þessu samfélagi. Það eru ekki allir glæpamenn. Samfélagið er
eins og einstaklingur og ef þú tekur hann hálstaki þá fer hann að sprikla til að
bjarga lífi sinu og ef þú slakar aðeins á, þá líður einstaklingnum betur og þá getur
þú komið honum inn í klefa án þess að snerta hann (Sigursteinn).