Íslenska þjóðfélagið


Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Qupperneq 83

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Qupperneq 83
Kristín Björnsdóttir og Ásta Jóhannsdóttir 83 .. lagsreglur sem þyrftu að verða almennar. Þó má ekki gleyma þeim fjölda fatlaðs fólks sem býr við sjálfstæða búsetu. Það er hins vegar óljóst hver ber ábyrgð á að tryggja fötluðu fólki sem býr sjálf- stætt aðstoð ef til rýmingar kæmi. Viðbragðsáætlanir verða að taka til allra íbúa og sveitarfélögum ber að gera ráð fyrir fötluðu fólki sem ekki býr í sérstökum húsnæðisúrræðum á þeirra vegum eða félagasamtaka en hætt er við að það gleymist. Í heimsfaraldri vegna COVID-19 kom fram hræðsla fatlaðs fólks við tilviljunarkenndar ákvarðanir og skort á yfirsýn sveitarfélaga varðanda áætlanagerð og bólusetningar (Bára Huld Beck, 2021). Umræður og lokaorð Í greininni höfum við rakið hvernig samspil umhverfis og félagslegra þátta hefur áhrif á alvarleika hamfara fyrir fatlað fólk. Engu að síður veldur sá tölfræðilegi ableismi sem virðist ríkjandi í opin- berum gögnum því að erfiðlega getur reynst að sýna fram á hvernig hamfarir hafi áhrif á fatlað fólk umfram aðra þjóðfélagshópa. Það lýsir sér í því að breytan „fötlun“ er sjaldan notuð þegar safna á tölulegum gögnum eins og til dæmis varðandi dánartíðni, atvinnumissi eða eignartjón. Þannig verður fatlað fólk ósýnilegt í gögnunum og í allri umræðu um hamfarir, áhrif og afleiðingar þeirra. Á hinn bóginn er það ekki síður alvarlegt þegar „fötlunarbreytan“ er notuð á þann hátt að orsök and- láts sé rakin til skerðingarinnar en ekki til dæmis COVID-19 eða drukknunar. Slíkur tölfræðilegur ableismi á þátt í að þagga raunverulegar aðstæður og jaðarsetningu fatlaðs fólks. Í greininni hefur verið sýnt fram á hvernig hamfarir afhjúpa þá erfiðu félagslegu stöðu sem margt fatlað fólk býr við. Það hefur takmarkaðan aðgang að heilbrigðis- og menntakerfum, atvinnumarkaðnum og býr þar af leiðandi oft við kröpp kjör og er því líklegra til að upplifa félagslega útskúfun. Félagsleg staða sem einkennist af fátækt og jaðarsetningu leiðir til þess að fatlað fólk fer verr út úr hamförum og faröldrum en aðrir hópar samfélagsins. Mögulegt væri að lágmarka dauðsföll af völdum hamfara ef öllum væri til dæmis tryggt öruggt húsnæði, aðgengi að heilsugæslu og að sá búnaður sem notaður er við rýmingu og björgun væri aðgengilegur fötluðu fólki. Til þess að svo megi verða þarf að afbyggja ableísk viðmið um hverjir eru gildir þegnar samfélagsins. Hlutverk almannavarna er ríkt í þessum efnum en tryggja þarf að viðbragðsáætlanir geri ráð fyrir öllum hópum samfélagsins. Í tilviki fatlaðs fólks þarf að gera ráð fyrir þeirra sérþörfum. Gæta þarf að því að þær leiðbeiningar sem almannavarnir veita gagnist öllum en sem dæmi má nefna að margt fatlað fólk getur ekki farið „undir borð eða rúm“ eða kropið „niður í horni við burðarvegg eða í hurð- aropi við burðarvegg“ í jarðskjálfta (Almannavarnir, e.d.-d). Gera þarf ráð fyrir mismunandi þörfum fólks við upplýsingagjöf og leggja höfundar til að almannavarnir ásamt öllum öðrum opinberum aðilum noti staðla um algilda hönnun í upplýsingagjöf, komist þannig hjá því að hópar gleymist og tryggi að nauðsynlegar upplýsingar berist öllum (The Centre for Ecellence in Universal Design, e.d.). Allt fólk nyti til dæmis góðs af, ef upplýsingasíða almannavarna, Covid.is, myndi byggja á stöðlum um algilda hönnun. Viðbragðsaðilar þurfa einnig að vera upplýstir um ýmsar sérþarfir fatlaðs fólks; heyrnarlaust fólk heyrir ekki í brunabjöllum og blint fólk getur átt í erfiðleikum með að finna tilgreinda söfnunarstaði (e. assembly points). Það munu ekki allir geta brugðist við og farið eftir fyrirmælum viðbragðsaðila án aðstoðar. Þegar hættuástand gengur yfir, getur fólk þurft að leita skjóls í neyðarskýlum og þá er mikilvægt að velja húsnæði sem er aðgengilegt fötluðu fólki. Þegar bráðabirgðaskýlum er komið upp, byggingum breytt eða tjöld reist, er sjaldan hugað að þörfum fatlaðs fólks og það yfirleitt afsakað með þeirri miklu neyð sem ríkir. Þrátt fyrir að enginn geri kröfu um að bráðabirgðaskýli uppfylli alla byggingarstaðla þá verður samt sem áður að gera ráð fyrir öllu fólki í viðbrögðum við hamförum. Ef það er ekki gert verða jaðarsettir hópar útsettari fyrir þeirri vá sem steðjar að og í verstu tilfellum getur það leitt til dauðsfalla. Ef til vill er tímabært fyrir Rauða krossinn að endur- skoða fjöldahjálparstöðvar sínar og meta hvort allt fólk hafi aðgengi að þeim án tillits til andlegs eða líkamlegs atgervis. Þegar sagt er að viðbragðsáætlanir og viðbrögð við hamförum séu ableískar, er vísað til fjarveru
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.