AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 20

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 20
Uppdráttur sem sýnir landnotkun samkvæmt Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 1998-2010. verið unnar, sumar þeirra hafa verið staðfestar en aðrar hafa einungis verið hafðar sem vinnugögn eða eins konar viðmiðun til eftirbreytni. Þessar skipulagstillögur eru unnar á nokkuð mismunandi hátt sem skýrist af því sem áður hefur verið sagt. Staða svæðisskripulags Hlutverk svæðisskipulags þarf að endurspegla sameiginlegan vilja sveitarstjórna sem aðild eiga að því. Tillögugerðin þarf að vera í senn hvetjandi og takmarkandi með jákvæðum hætti. Jafnan er ætlast til að þetta skipulagsstig feli í sér verðug áform um bætt mannlíf og sterkari stöðu við- komandi svæðis. Úrvinnsla þessara markmiða er síðan á valdi sveitarstjórna og áhrifa ríkisvaldsins getur einnig gætt í vissum mæli. í þeim tilfellum sem um er að ræða tiltekna landshluta utan höfuð- borgarsvæðisins kann það að vera rétt að leggja til að eitt byggðarlag verði eflt á annars kostnað. Vegna þessa hlýtur svæðisskipulagstillaga að mótast mjög af aðstæðum á hverjum tíma og stað. Nauðsynlegt má telja að ýmsar stofnanir ríkisins kynni sér þessi grundvallaratriði, þ.e. að land okkar er saman sett af mismunandi aðstæðum þar sem eigi hæfir að beita jafnaðarmerkjum án um- hugsunar. Ef þetta er ekki gert getur það dregið úr áræðni heimamanna að leggja fram djarfar en þó raunhæfar hugmyndir. Einstakar og bindandi ákvarðanir um landnotkun eru því fullstór þáttur í ferlinu eins og það er nú og menn veigra sér við að leggja annað fram en það sem fyrirséð er í náinni framtíð. stjórn heimild til að hlutast til um að gert væri hér- aðs- og landshlutaskipulag. Með breyttri skipu- lagsreglugerð frá 1985 komu fram nokkur helstu markmið svæðisskipulags, en þá skorti lagafors- endur sem fyrst komu fram með nýjum skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Skipulagsreglu- gerð nr. 400/1998 fylgdi síðan í kjölfarið, en þar er að finna þau markmið og skilgreiningar sem nú gilda. Nú hafa nokkrar tillögur að svæðisskipulagi ur, Skriðuhreppur, Öxnadalshreppur, Glæsibæjar- hreppur, Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Sval- barðsstrandarhreppur.Grýtubakkahreppur, Háls- hreppur og Grímseyjarhreppur. Frá þeim tíma sem verkið hófst hafa sex þessara sveitarfélaga sameinast. Hin nýju sveitarfélög eru tvö; Dalvíkur- byggð sem samanstendur af fyrrum Dalvíkurbæ, Svarfaðardal ásamt Árskógshreppi og hins vegar 18

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.