AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Blaðsíða 23
Norðurhlið.
'é&te
BYGGING
SKAUTAHALLAR
Á AKUREYRI
Skautahöllin á Akureyri var byggö aö
undangengnu alútboði þar sem 6 aðil-
um var boðin þáttaka. Hagkvæmasta
tilboðið kom frá SJS-verktökum á
Akureyri í samvinnu við Arkitektastof-
una í Grófargili, Birgi Ágústsson verk-
fræðing og finnskan byggingareiningaframleið-
anda, SPU-systems.
Hönnun hússins byggist á finnskri lausn á
skautahúsum sem er aðlöguð íslenskum aðstæð-
um og íslenskum þörfum. Heildarstærð hússins
er 3236 m2 og 30382 m3-. Grunnflötur neðri hæðar
er 2749 m2 en á efri hæð eru 487 m2.
Uppbygging
Skautasalurinn er létt límtrésbygging, en önnur
rými hússins eru steinsteypt og einangruð og
múrhúðuð að innan. Léttir innveggir eru hlaðnir.
Þannig er reynt að lágmarka hættuna á raka-
vandamálum, en í skautahöll sem þessari eru
u.þ.b. 1800 m2 af yfirborði gólfsins þaktir ís. í
skautasalnum er öflug loftræsing með loftþurrkun
sem heldur kjörhitastigi við yfirborð íssins og raka-
stigi salarins jafnframt innan eðlilegra marka.
Uppbygging vegg- og þakeininga er með þeim
hætti að ekki er hætta á rakaþéttingu í þeim þó
svo að útihitastig verði hærra en innihiti.
Burðargrind í skautasal er límtrésstoðir og
límtrésbogar með togböndum úr stáli. Límtrésbog-
arnir eru hallandi þannig að hæð útveggjar að
austan er 2 m lægri en að vestan. Þettta minnkar
heildarhæðina og gerir það að verkum að húsið
virkar minna í umhverfinu.
Búningsklefar og önnur stoðrými meðfram vest-
urhlið hússins endilangri eru úr steinsteypu og út-
byggingar á göflum hússins eru sömuleiðis stein-
steyptar. Neðsti hluti útveggja skautasalarins er
steinsteyptur upp í 1,4m hæð.
Áhorfendapallar eru byggðir úr timbri ofan á
steyptum búnigsklefasamstæðum, og 3m breiðar
svalir á norðurgafli hússins eru einnig úr timbri.
Innra shipulag
Aðalinngangur í húsið er á norðurgafli. Gólf í and-
dyri er 70 cm hærra en yfirborð íssins, þannig að
þegar inn er komið er mjög góð yfirsýn yfir svellið
21
GÍSLI KRISTINSSON, ARKITEKT