AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Blaðsíða 49
Ibúðarsvœðí í miðborg
Reykjavíkur
Borgarráö samþykkti nýlega fimmta
áfanga Þróunaráætlunar miðborgar. í
þessum áfanga er mótuö stefna um
íbúðarbyggð á miðborgarsvæðinu.
íbúðarbyggðinni er skipt í þrjá hluta
vegna mismunandi aðstæðna á
svæðinu, sbr. texta og kort.
Á íbúðarsvæðum miðborgarsvæðisins er
stefnt að því:
■ að styrkja íbúðarsvæði á miðborgarsvæði
(svæðið milli bláu og rauðu línunnar á korti),
■ að styrkja búsetu í miðborginni (svæðið innan
rauðu línunnar á korti),
■ að samræma notkun við jaðar miðborgar (svæð-
ið rétt utan rauðu línunnar á korti).
f samþykkt borgarráðs er kveðið nánar
á um hvernig ofangreindri stefnu skuli
náð:
1. íbúðarsvæði á miðborgarsvæði
Á þessum svæðum er megináhersla lögð á að
vernda og bæta íbúðarbyggð og umhverfi hennar.
Almennt verður veitt heimild til að byggja íbúðar-
húsnæði svo fremi byggingin fellur vel að þeirri
byggð sem fyrir er og uppfyllir kröfur um gott að-
gengi. Við stækkun húsnæðis þarf að gæta ítrustu
varfærni við hönnun. Ekki verður veitt heimild til
uppbyggingar sem skaðar yfirbragð svæðisins,
nábýli og trjágróður.
Núverandi íbúðarhúsnæði og íbúðarlóðum ber
að halda sem slíkum nema í einstaka undan-
tekningum. Spornað verður gegn því að húsnæði
sem ekki er notað til íbúðar vaxi að umfangi og
ekki verður veitt heimild til notkunar til létts
iðnaðar, undir skrifstofur eða ámóta ef hætta er á
að starfsemin valdi íbúum stöðugu ónæði eða auki
verulega umferð. Þar sem slík starfsemi er nú
þegar og ekki er hægt að gera nauðsynlegar úr-
bætur verður hvatt til þess að fyrirtækið verði flutt
og húsnæðinu breytt í íbúðir. Lögð verður áhersla
á að viðhalda hverfisverslunum á svæðinu.
2. íbúðir í miðborginni
Á svæðinu er megináhersla lögð á að styrkja
búsetu í íbúðum á efri hæðum. Miðborgin er þó,
samkvæmt Aðalskipulaginu 1996-2016, skilgreind
sem kjarni blandaðrar starfsemi og aðalverslunar-
svæðis. Heimild til uppbyggingar íbúða, endurbóta
á íbúðum og breytingar húsnæðis í íbúðir í mið-
borginni verður veitt ef hún uppfyllir tiltekna skil-
mála og stangast ekki á við stefnumörkun borgar-
yfirvalda á svæðinu, sem fram kemur í
Aðalskipulaginu.
Ljóst er að í einhverjum mæli verður hávaði við
íbúðir í miðborginni meiri en æskilegt er á íbúðar-
svæðum en við hönnun íbúðarhúsnæðis og end-
urbætur gamalla íbúða skal leitast við að halda
óþægindum af völdum hávaða í lágmarki.
Vegna nálægðar við almenningssamgöngur og
bílastæðahús verða ekki gerðar ítrustu kröfur til
fjölgunar bílastæða vegna byggingar nýs íbúðar-
húsnæðis eða breytingar annars konar húsnæðis
í íbúðir. í stað þess verður gefinn kostur á að
greiða fyrir bílastæði. Ekki verða gerðar kröfur um
leiksvæði á lóð vegna byggingar nýrra íbúða.
3. íbúðir á íbúðarsvæðum við jaðar miðborgar-
innar
Á þessum svæðum er megináhersla lögð á að
samræma búsetu á íbúðarsvæðum í nágrenni við
miðborgarstarfsemi. Leitast verður við að halda
óþægindum af völdum hávaða í lágmarki með
þeim aðgerðum sem tækar eru. Við hönnun íbúð-
arhúsnæðis og breytingar á eldra húsnæði skal
leitast við að takmarka óþægindi af völdum há-
vaða. Eins og í miðborginni verða ekki gerðar ítr-
ustu kröfur til fjölgunar bílastæða vegna byggingar
nýrra íbúða. Veitt verður heimild til uppbyggingar
nýs verslunarhúsnæðis að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum. Stefnan fyrir íbúðarsvæðin er mun ýtar-
legri en hér er lýst. Stefnuna og Þróunaráætlun
miðborgar í heild er að finna á vef Reykjavíkur-
borgar „reykjavik.is/skipulag". Stefnan verður út-
færð í deiliskipulagi sem kynnt verður síðar. ■
47