AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Blaðsíða 22
gjarnan fram sú spurning hvort hún stangist ekki á
viö ýmsa þætti sem þegar eru í umhverfi okkar auk
þeirra sem viö kunna aö bætast. Þá liggur fyrir
spurningin um jafnvægi athafna og ósnortinnar
náttúru. Dæmi um óæskilega mengun sem nú eru
talin ómissandi eru samgöngutæki sem nýta jarö-
olíu. Torfbærinn féll að margra mati betur að land-
slagi í íslenskum sveitum heldur en byggingar
sem nú eru reistar. Hraöi og ýmis þægindi flokk-
ast nú undir meiri verðmæti heldur en áður var en
þessir þættir kosta vissa fórn.
Landnotkun
Ákvarðanir um skilgreinda landnotkun utan þétt-
býlissvæða eru tiltölulega takmarkaðar í skiplags-
tillögu þessari. Eftirfarandi atriði eru þó staðfest á
Eyjafjarðarsvæðinu:
1. Frístundabyggðir (sumar- og orlofshúsabyggðir)
á Eyjafjarðarsvæðinu.
2. Stóriðjulóð sunnan Dysness.
3. Áætlaðar háspennulínur.
4. Lóð á Árskógssandi fyrir landfrekan iðnað.
5. Athafna- og/eða iðnaðarsvæði verði á eftirtöld-
um stöðum: Svæði í landi Hrísa í Dalvíkurbyggð,
neðan við Samtún í Hörgárbyggð, og um 10 ha
svæði sunnan Grenivíkur í Grýtubakkahreppi.
6. Vegna samgöngumála: Jarðgöng; Ólafsfjörður-
Siglufjörður og meginreiðleiðir.
7. Ljósleiðari er sýndur, en önnur fjarskiptamann-
virki eru ekki ákvörðuð.
8. Umhverfis- og verndunarmál eru ákvörðuð með
eftirfarandi hætti:
■ Umhverfismatsskyldar efnisnámur sem eru
fjórar talsins.
■ Sjávarstrendur í verndunarflokki I eru sýndar.
■ Friðuð svæði, hverfisverndarsvæði og svæði
sem eru á náttúruminjaskrá.
■ Þinglýstar fornminjar.
9. íbúðarsvæði sem eru ákvörðuð:
■ í Eyjafjarðarsveit hefur verið ákveðið að heimila
íbúðarsvæði á þremur stöðum. Ennfremur áform-
ar sveitarfélagið að láta skipuleggja svæði fyrir
svokölluð smábýli.
■ í Svalbarðsstrandarhreppi verða heimiluð
íbúðarsvæði á þremur stöðum.
10. Þjónustustofnanir eru sýndar.
11. Útivistarsvæði sem eru opin almenningi eru
sýnd og ákvörðuð.
Eins og sést á listanum hér á undan eru það ekki
mörg atriði sem ákvörðuð eru og samstaða hefur
náðst um. Þetta er þó í nokkru samræmi við það
sem almennt gerist í svæðisskipulagstillögu sem
þessari.
Niðurstöður
Telja verður að þorri íbúa á Eyjafjarðarsvæðinu
óski eftir framförum á öllum sviðum og geri ráð
fyrir aukinni velsæld og bættum hag. Frá þessu
virðast þó vera nokkrar undantekningar meðal
manna, þar sem ber á tilhneigingu þeirra til þess
að snúa hjóli tímans í öfuga átt. Þess gætir í
tengslum við afstöðu til nútíma atvinnuþróunar. í
frumvinnslugreinum, þ.e. í landbúnaði, fiskveiðum
og -vinnslu, fækkar störfum óðfluga. Eignarkvóta-
kerfið takmarkar einnig eða útilokar alla nýliðun
innan þeirra greina. Þess vegna þurfa ný störf og
atvinnugreinar að koma til. Breiddin þarf að vera
sem mest og þess vegna hefur samvinnunefnd
um svæðisskipulag Eyjafjarðar lagt til að öll svið
atvinnulífs verði skoðuð m.t.t. aukinnar sóknar.
Eftirfylgni þeirrar stefnumótunar sem hér er lögð
fram er að mestu verkefni sveitarstjórnarmanna á
svæðinu og Ijóst er að beita þarf ítrustu lagni til
þess að koma öllum helstu markmiðum í fram-
kvæmd. Ef vænta skal jákvæðrar íbúaþróunar á
Eyjafjarðarsvæðinu er það frumforsenda að góð
samstaða náist um öll helstu markmið. gamræmd-
ur undirbúningur sveitarstjórna á svæðinu varð-
andi meginstefnu mun án vafa skila meiri árangri
heldur en sérálit sem leiða í ýmsar áttir.
Kynnring trillögunar
Nú hefur þessi tillaga að svæðisskipulagi verið
kynnt íbúum Eyjafjarðarsvæðisins svo sem lög
gera ráð fyrir. Sá Ijóður var þó á að fundarsókn var
lítil. Mætti af því ráða að áhugi manna fyrir svæð-
isskipulagi sé fremur takmarkaður, hugsanlega
telja íbúar að hagsmunir þeirra séu ekki í húfi og
einnig mætti álykta sem svo að almenningur telji
að skipulagsgerð sem þessi breyti litlu um þróun
mála. Fleiri skýringar dræmrar fundarsóknar mætti
eflaust nefna, s.s. fjarlægð þessa viðfangsefnis frá
daglegum þankagangi almennings og framand-
leika hugtaka sem fram koma í umfjöllun um
skipulagsmál.
Stefnt er að því að tillaga þessi verði kynnt á ný
og auglýst, innan skamms, og þá gefist almenn-
ingi kostur á að skila inn athugasemdum til sam-
vinnunefndar. ■