AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Side 23

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Side 23
Norðurhlið. 'é&te BYGGING SKAUTAHALLAR Á AKUREYRI Skautahöllin á Akureyri var byggö aö undangengnu alútboði þar sem 6 aðil- um var boðin þáttaka. Hagkvæmasta tilboðið kom frá SJS-verktökum á Akureyri í samvinnu við Arkitektastof- una í Grófargili, Birgi Ágústsson verk- fræðing og finnskan byggingareiningaframleið- anda, SPU-systems. Hönnun hússins byggist á finnskri lausn á skautahúsum sem er aðlöguð íslenskum aðstæð- um og íslenskum þörfum. Heildarstærð hússins er 3236 m2 og 30382 m3-. Grunnflötur neðri hæðar er 2749 m2 en á efri hæð eru 487 m2. Uppbygging Skautasalurinn er létt límtrésbygging, en önnur rými hússins eru steinsteypt og einangruð og múrhúðuð að innan. Léttir innveggir eru hlaðnir. Þannig er reynt að lágmarka hættuna á raka- vandamálum, en í skautahöll sem þessari eru u.þ.b. 1800 m2 af yfirborði gólfsins þaktir ís. í skautasalnum er öflug loftræsing með loftþurrkun sem heldur kjörhitastigi við yfirborð íssins og raka- stigi salarins jafnframt innan eðlilegra marka. Uppbygging vegg- og þakeininga er með þeim hætti að ekki er hætta á rakaþéttingu í þeim þó svo að útihitastig verði hærra en innihiti. Burðargrind í skautasal er límtrésstoðir og límtrésbogar með togböndum úr stáli. Límtrésbog- arnir eru hallandi þannig að hæð útveggjar að austan er 2 m lægri en að vestan. Þettta minnkar heildarhæðina og gerir það að verkum að húsið virkar minna í umhverfinu. Búningsklefar og önnur stoðrými meðfram vest- urhlið hússins endilangri eru úr steinsteypu og út- byggingar á göflum hússins eru sömuleiðis stein- steyptar. Neðsti hluti útveggja skautasalarins er steinsteyptur upp í 1,4m hæð. Áhorfendapallar eru byggðir úr timbri ofan á steyptum búnigsklefasamstæðum, og 3m breiðar svalir á norðurgafli hússins eru einnig úr timbri. Innra shipulag Aðalinngangur í húsið er á norðurgafli. Gólf í and- dyri er 70 cm hærra en yfirborð íssins, þannig að þegar inn er komið er mjög góð yfirsýn yfir svellið 21 GÍSLI KRISTINSSON, ARKITEKT

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.