AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 32

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 32
DR. HALLDÓRA ARNARDÓTTIR, BYGGINGARLISTFRÆÐINGUR vernig getum við talað um þéttbýli nútímans? Þjóðfélag sem býr yfir einstökum margbreytileika og ólík- um samskiptum, sem oft eru jafnvel óháð tíma og rúmi. í gegnum sög- una hefur Akureyri verið mikill fram- sóknarbær. Verslun, iðnaður og sjósókn hafa átt ríkan þátt í að byggja upp menningu og efla tákn- rænt gildi bæjarins. Hann hefur einnig verið setur ýmissa athafna- og menntamanna sem hefur verið akkur fyrir bæinn. Ræktun hugmynda og opinber skoðanaskipti eru jú byggingarefni framtíðarinnar. Oddeyrin, miðbærinn og innbærinn bera vitni um staðhætti þar sem uppvöxtur bæjarins á sér rætur og segir hver sína sögu um eigin drauma og stundir. Ólíkar stéttir manna og starfsemi hafa gert það að verkum að Akureyri býr yfir litríku hvers- dagslífi, notagildi, menningu og táknrænu gildi. Byggð hverfi eiga sér skemmri eða lengri sögu eftir atvikum sem í búa sýnilegar og ósýnilegar minjar um líf kynslóðanna. Að vissu marki má lesa úr henni um þróun byggðarinnar, tísku og stefnur fyrri tíma. Iðnaðar-, verslunar- og íbúðarhverfi inni- halda öll híbýli ólíkra aldurshópa og fela í sér tog- streitu og samstillingu, sameiningu og sundrung ólíkra samskipta og eiginleika íbúanna. Miðtorg La GalleriaVittorio Emanuele. Verslunarmiðstöö vetrarríkisins risin, er Akureyringum þá bjargað? Áhrifarík hlutföll La GalleriaVittorio Emanuele í Mílanó endurspeglast í tilvísun sinni til borgarinnar. Metið á almennum grundvelli, þá eru samgöngur og gatnaskipulag mikilvægur þáttur í því að sameina bæjarbúa. Greiður aðgangur milli hverfa og innan þeirra, bæði fyrir gangandi og akandi vegfarendur, tekur mið af tækni þjóðfélagsins og viðhorfi þess til nútímans. Hjarta bæjarins, þar sem lífæðin slær, hefur það hlutverk að tengja alla bæjarbúa. Það er kjarni sem bygg- ist innbyrðis á ólíkum forsendum: skiptum á kaupum og sölum, hug- myndum og þekkingu, deilum og sáttum á ný. Til þess að stuðla að vistvænna umhverfi þá er það hinn gangandi vegfarandi sem hefur lög 30

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.