AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 43
Framtíðarflugvöllur á
hefuðbergarsvæðínu
ð undanförnu hafa átt sér stað
umtalsverðar umræður um fram-
tíðarflugvöll á höfuðborgarsvæð-
inu. Nýlega fór fram kosning um
þetta mál meðal borgarbúa og vildi
meirihlutinn flugvöllinn burt úr
Vatnsmýrinni.
í skýrslu formanns undirbúningsnefndar,
Stefáns Ólafssonar prófessors, að þessari kosn-
ingu segir í samantekt (Borgarlýðræði og borgar-
skipulag. Atkvæðagreiðsla meðal almennings um
framtíðarnýtingu Vatnsmýrarsvæðis og staðsetn-
ingu flugvallar fyrir innanlandsflug):
„Á grundvelli framangreindrar umfjöllunar virðist
Ijóst að 5 kostir koma til álita. Það eru þeir kostir
sem eru flugtæknilega mögulegir og fela í sér
umtalsverðan ávinning og kostnað sem hægt er
að gera grein fyrir með áætlunum verkfræðilegra
sérfræðinga. Kostirnir eru ólíkir og kostnaður við
þá sömuleiðis. Til greina kemur að almenningur
velji milli þeirra sem almennra leiða, en sérfræð-
ingar þurfa síðan að fullvinna þá fyrir framkvæmd-
ir, auk þess sem leggja þarf áform sem hafa í för
með sér breytta landnotkun og mikla umhverfis-
röskun fyrir umhverfismat.
Til að gefa almenningi tækifæri til að koma að
almennri stefnumótun varðandi framtíðarnýtingu
Vatnsmýrarsvæðisins þurfa valkostirnir þannig
einungis að fullnægja þeim kröfum að vera tækni-
lega mögulegir og einkenni og afleiðingar þeirra
Ijósar. Kostirnir sem helst koma til greina eru eftir-
farandi:
■ Flugvöllur í Vatnsmýri samkvæmt núgildandi
skipulagi (2 brautir).
■ Flugvöllur í breyttri mynd (ný A-V braut á upp-
fyllingum í Skerjafirði).
■ Nýr flugvöllur sunnan Hafnarfjarðar, byggður í
áföngum.
■ Nýr flugvöllur á uppfyllingum á Lönguskerjum í
Skerjafirði.
■ Miðstöð innanlandsflugs flutt til Keflavíkur-
vallar.”
Undanfarna áratugi hefur umræða um
Reykjavíkurflugvöll margsinnis vaknað upp og
41