AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Side 62
götur koma fyrir í opinberri skipulagstillögu hér á
landi; í skipulagstillögu Guömundar Hannessonar
fyrir Sauöárkrók. Skipulag Reykjavíkur frá 1927
geröi þó ráö fyrir stakstæöum íbúöarhúsum í ein-
staka íbúöarhverfum, í sunnanverðum Þingholtum
og Skólavöröuholti og svæöinu sunnan Landa-
kots. Uppbygging þessara hverfa hefst raunar, aö
hluta til, fyrir 1927. í þessum hverfum kemur fram
þaö einkenni garöborgarinnar aö staösetja ekki
hús í götulínu og að garðsvæöi aðskilji hús frá um-
ferðargötunni. Vegna veöurfarsaöstæöna og sól-
argangs skapaöist sú sérstaða í Reykjavík, aö
staösetja hús fjær götunni aö norðanverðu (meö
forgaröi) en í götulínu að sunnanveröu (meö bak-
garði).8 Þessi hugmyndafræöi á hinsvegar upp-
runa sinn í fyrirmyndarborgum 19. aldarinnar, s.s.
Port Sunlight, fremur en í hverfaskipulagi garö-
borganna frá byrjun 20. aldarinnar.
Guömundur Hannesson og Guöjón Samúelsson
voru eflaust undir einhverjum áhrifum frá skipu-
lagshyggju Unwins og eins undir áhrifum frá fagur-
fræöi Sitte og skipulagsfræðum Stubbens, eins og
tilvísanir í ritum þeirra benda til. Hinsvegar er erfitt
aö bera kennsl á þessi áhrif í staðfestum skipu-
lagstillögum þeirra og sennilega enn erfiðara
þegar horft er á hiö byggöa umhverfi frá þessum
tíma. Nærtækara er að bera skipulagstillögur þeir-
ra Guðmundar og Guöjóns saman viö skipulag
fyrirmyndarborga 19. aldarinnar heldur en garö-
borgirnar frá byrjun 20. aldarinnar. Ennfremur er
vert aö skoöa skipulagshugmyndir Guöjóns
Samúelssonar í samhengi við „glæsiborgarstefn-
una” (City Beautiful Movement). Hvaö varðar upp-
runalegar hugmyndir Howards og úrlausnir hans á
skipulagsvandamálum í hinu iönvædda borgar-
samfélagi Bretlands, þá áttu þær harla lítið erindi
til íslands í byrjun 20. aldarinnar.
Ebenezer Howard var fyrst og fremst hug-
myndafræðingur. Erfitt er aö meta bein áhrif hans
á uppbyggingu og þróun borga þó flestir fræöi-
menn séu sannfærðir um gífurleg áhrif hans á
þróun skipulagsgerðar á 20. öldinni. Þaö er svo
meö sögu skipulagshugmynda eins og aöra hug-
myndasögu.aö þaö getur veriö vandkvæöum
bundið aö greina á milli hvort kom á undan hug-
myndin eöa hin raunverulega þróun. Hugmyndum
Howards er ætlaö af flestum fræðimönnum aö
hafa hrundiö af stað ákveðinni atburöarás sem
leiddi til þess borgarskipulags sem hefur verið -
einkennandi á 20. öldinni; úthverfaskipulagsins. Á
þeim tíma sem Howard setur fram sínar hugmyn-
dir var hinsvegar hafin atburðarás, af öörum or-
sökum, sem átti eftir aö veröa afdrifaríkust í borg-
arskipulagi 20. aldarinnar; samgöngubætur sem
leiddu til úthverfamyndunar. Þetta leiöir hugann aö
því hvernig borgarskipulag 20. aldarinnar heföi
orðið heföi Howards ekki notið viö. Sennilega
heföi þaö orðið mjög svipaö. Þaö er freistandi aö
fullyröa aö hugmyndir Howards hafi haft mun meiri
áhrif á þá sem rita sögu skipulagsgerðar á síðari
hluta 20. aldarinnar en þá sem höföu vald til skipu-
lagningar bæja á fyrri hluta aldarinnar. Parker og
Unwin heföu eftir sem áöur haft sín áhrif á skipu-
lag úthverfanna og hin almenna sögulega fram-
vinda hefði haft sinn framgang. Þaö sem helst
stendur eftir af hugmyndum Howards er áhersla
hans á aö bæjarlandið væri sameign íbúanna eöa
samfélagsins en þaö hefur veriö ein helsta for-
senda þess aö skipulagsgerð yfirvalda beri raun-
verulegan árangur. ■
1 Lewis Mumford: „The Garden City Idea and
Modern Planning”, sem birtist í útgáfu F.J. Osborns á
riti Howards Garden Cities ofTo-morrow árið 1965.
2 Sjá ítarlega umfjöllun um hugmyndir Howards og
afdrif þeirra í Robert Fishman: Urban Utopias in the
Twentieth Century, 1989, bls. 23-88.
3 Peter Hall: Cities of Tomorrow, 1990, bls. 97.
4 Eran Bem-Joseph & David Gordon: „Hexagonal
Planning in Theory and Practice”, Journal of Urban
Design.Vol 5. No.3, 237-265, 2000, bls. 238.
5 Sjá Pétur H. Ármannsson (1995): „The develop-
ment of Reykjavík in the I920's and I930's and the
impact of functionalism” bls. 52 og Bjarna Reynars-
son : „Höfuðborgin okkar: Sérkenni og þróun Reykja-
víkur frá sjónarhóli landfræðings „Landabréfið, I. tbl.
16. & 17. árg. 1999 & 2000, bls. 31 -34, 32-33.
6 Það gerir hann í grein sinni, „Nýtískuborgir”,
Skírnir 1917, bls. 129-135, þar sem hann nefnir rit
Howards, uppbyggingu Letchworth og „sveitaborga-
hreyfinguna” sem hann kýs að nefna svo.
7 Guðmundur Hannesson: „Nýtískuborgir”, Skírnir
1917, bls. 130.
8 Sjá Pétur H. Ármannsson (1995): „The develop-
ment of Reykjavík in the I920's and I930's and the
impact of functionalism”.
RAFTÁKN eht
Verkf ræðistofa
Glerárgötu 34 • IS-600 Akureyri
Sími 464 6400 • Fax 464 6411
Netfang: raftakn@ raftakn.is