AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Side 72

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Side 72
heimsins rúmir 4 milljarðar, þar af 21% í borgum. Nú eru íbúar heimsins 6,2, milljarðar þar af 58% í borgum og eftir aldarfjórðung er áætlað að íbúar heimsins verði 8,3, milljarðar þar af munu um 62% búa í borgum. Þróunin á íslandi. Þetta er þróun sem við íslend- ingar þekkjum vel því um aldamótin 1900 bjuggu aðeins um 20% landsmanna í þéttbýli (þorpum og bæjum með yfir 200 íbúa) en nú er samsvarandi tala 92%. Árið 1960 náði höfuðborgarsvæðið því marki að þar byggi helmingur landsmanna en nú er hlutfallstalan 62%. Höfuðborgarsvæðið og næstu byggðarlög eru einu svæði landsins þar sem fólki hefur fjölgað nokkuð að ráði síðustu árin. Um þrír fjórðu hlutar landsmanna búa nú á land- svæði sem er innan klukkustundar aksturs frá höfuðborginni. Samkvæmt áætlunum svæðis- skipulags sem nú er verið að vinna fyrir sveitar- félögin á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir því að fólki á svæðinu geti fjölgað um allt að 56 þús- und á næstu 20 árum eða um 2.800 manns á ári. Um helmingur af þessari fjölgun kemur til vegna aðflutnings fólks frá landsbyggðinni. Eitt helsta álitamálið varðandi þróun höfuðborgarsvæðisins og reyndar allra vestrænna borgarsvæða er hve byggðin þenst hratt út, er dreifð byggð og tekur upp mikið landrými, sem kallar á langar ferðavegalengdir og mikla orkunotkun til sam- gangna. Talnaborgin (metacity-datatown). Fræðimenn í Hollandi hafa verið að rannsaka þróun byggðar í heiminum út frá hugmyndum um hve margt fólk gæti lifað á jörðinni án þess að eyðileggja auðlindir jarðar. Þeir byrjuðu á því að skilgreina byggileg svæði, þ.e. drógu frá þurrlendi jarðar: heimskauta- svæði, fjalllendi, helstu jarðskjálfta- og eldvirkni- svæði, eyðimerkur og skógarsvæði (barr- og regn- skóga). Samkvæmt þessum viðmiðum eru um 30% þurrlendis jarðar byggilegt eða æskilegt byggðasvæði. Það verður að viðurkennast að samkvæmt þeirra skilgreiningu er ísland ekki hæft til búsetu og sama á við um stóran hluta Norðurlanda! Vegna ásóknar jarðarbúa í að búa í borgum reyndu þeir að skilgreina út frá tölum og gefnum forsendum það sem þeir kölluðu talnaborg (data- 524 m ▲ 70

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.