AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Side 73
town). Ein af forsendunum sem þeir gáfu sér var
aö borgir ættu ekki aö vera stærri en svo aö þaö
tæki innan viö tvo tíma meö nýjustu samgöngu-
tækni aö ferðast þvert í gegnum borgarsvæðiö. Á
miðöldum var þvermál borga ekki meira en 4 km,
þ.e. vegalengd sem fólk gat vel gengið á klukku-
stund. í byrjun aldarinnar miöuöu þeirsem aðhyllt-
ust garöborgarstefnu viö aö þessi vegalengd væri
aö hámarki 20 km, þ.e vegalengd sem hægt væri
aö komast á hjóli á einni klukkustund. Meö tilkomu
einkabílsins og hraöbrauta varö þetta viðmið um
80 km fyrir stórborgir og meö tilkomu hraðskreiðra
lestarkerfa á síöustu árum er hámarkið 400 km.
Þaö er viðmiðun talnaborgarinnar. Talnaborgin er
því 400 km aö umfangi eöa 160.000 km2, þ.e.
heldur stærri en ísland sem er 103.000 krrf.
Reiknað er meö aö 240 milljónir manns búi í
slíkri borg eöa samfélagi, en aðeins um 5% rýmis-
ins fari undir íbúöabyggö og alls um 12% undir
borgarathafnir, þ.e. aö innan talnaborgarinnar
rúmist allt það land sem þarf til aö fæöa borgarbúa
sem og þörf þeirra fyrir drykkjarvatn ofl. Allir
jaröarbúar kæmust fyrir í 26 slíkum talnaborgum
og allt byggilegt land jarðarinnar bæri 376
talnaborgir eöa 18faldan núverandi íbúafjölda
jaröarinnar. Mest rými fer undir: landbúnaöar-
svæöi 55%, vatnasvæöi (þmt neysluvatn) 12% og
skóga 7%. Þaö þarf þetta mikið landrými fyrir
landbúnaö til að fæöa svona margt fólk, og trjá-
gróöur til aö vinna á móti koltvíoxíðmengun.
Fyrir borgarbyggðina (living area) sem telur um
eina milljón íbúöir er reiknað meö 2.4 íbúum á
íbúö og aö hver íbúö sé um 126 m2 meö jafnstórt
útisvæði. Miðað er við 2.8 m lofthæð í íbúö og 6
m lofthæð fyrir útisvæöi (samtals um 1000 m3 á
íbúö). Þaö væri hægt aö koma þessum íbúða-
fjölda fyrir í teningi sem væri 1.52 km á kant. Ef
miðað væri við einbýlishús meö 1.400 m2 lóö (7
íbúðir á ha) þyrfti 169 sinnum meira land undir
borgarbyggöina en þá 8200 km2 lands sem miðað
var við. Ef tekið væri miö af þéttleika byggðar í
Barcelóna einni þéttbyggöustu borg Evrópu kæm-
ist byggðin fyrir á um 70% þess lands sem áætlaö
var fyrir borgarbyggð. í Barcelóna er byggðin 5-7
hæöa og meðalþéttleiki 205 íbúðir á ha. í talna-
borginni er miöað viö „lóðrétta garðborg”, kubba-
borg þar sem blandast saman 5 hæöa garðrými (6
m hátt hvert) og 10 hæöir af íbúðarými (2.8 m hátt
hvert). Þannig uppfylla þeir þau rýmismörk sem
borgarbyggðinni eru áætluö í talnaborginni (sjá
mynd).
í bókinni er auk þess fjallað um aðra þætti
tengda borgarbyggð, svo sem matvælafram-
leiðslu, orkuþörf og sorpmál sem fróðlegt er aö
skoöa í þessari skemmtilegu myndrænu framsetn-
ingu. Sem dæmi má nefna aö sorp frá einni talna-
borg myndar 524 m hátt fjall (keilu) eöa 550
milljón tonn á einu ári.
Þótt bókin fjalli um fjarlæga framtíö á heimsvísu
er margt hægt aö yfirfæra á okkar aöstæöur hér á
höfuðborgarsvæðinu en síðustu misseri hefur
mikiö veriö rætt um þörf fyrir nýjar hugmyndir um
búsetu í þéttari borgarbyggð sem tæki miö af nátt-
úrlegum aðstæðum okkar. Þar koma strax upp í
hugann möguleikar okkar sem tengjast betri nýt-
ingu á jarðhita fyrir byggö undir glerþaki svo dæmi
séu tekin.
Ég hvet alla sem áhuga hafa á umhverfis- og
skipulagsmálum aö kynna sér þessa bók. ■
Heimild: MVRD, 1999. Metacity Datatown. 010 publish-
ers Rotterdam
TIF
tempra
eps ■ einangrun
Húsaeinangrun Umbúðir
Dalvegi 24 Kaplahrauni 2-4
200 Kópavogur 220 Hafnarfjörður
554 0600 554 2500 520 5400
Fax 564 2500 Fax565 1260
OpusS
teikni- JL & verkfræðistofa ■■
Strandgata 13 - 600 Akureyri
Sími 461 4014 - Fax 461 4015