AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 77

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 77
 |Fn nútímakirkja á íslandi. Þar sést hvernig hiö kirkjulega útlit hefur breyst. Kirkjur sem byggðar voru síðar eru mjög fjölbreytilegar í útliti og þarf oft vissa einbeitingu til þess að átta sig á að um kirkju sé að ræða. Þann 18. júní síðastliðinn var Grafarvogskirkja vígð og tekin í notkun. Þá voru tæp tíu ár liðin frá því að efnt var til samkeppni meðal arkitekta um hönnun byggingarinnar. í upphafi tillögugerðarinn- ar stefndu höfundar vinningstillögunnar að því að laða fram hugmynd að kirkju, sem þrátt fyrir það að vera nútíma vinnukirkja, væri reist á þeim hefð- um sem ríkt höfðu um aldir í kirkjubyggingalist. Niðurstaðan varð sú kirkja sem nú er risin og hér er lýst. Grafarvogskirkja er safnaðarkirkja yngstu sókn- ar landsins, Grafarvogssóknar. Hún er staðsett á áberandi stað í jaðri sóknarinnar niður við Grafar- vog, sem sóknin ber nafn sitt af. Sjórinn er rétt neðan við húsið og til beggja handa eru lágreist einbýlishúsahverfi. Landið hallar bratt upp frá sjónum og þar taka við há fjölbýlishús, verslunar- hús og skólabyggingar. Arkitektarnir tóku mið af þessum aðstæðum við hönnun kirkjunnar og gáfu henni form sem er auðskiljanlegt og áberandi þeg- ar komið er inn í hverfið um Gullinbrú. Hún byggir 75

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.