Bændablaðið - 09.03.2023, Side 1

Bændablaðið - 09.03.2023, Side 1
5. tölublað 2023 ▯ Fimmtudagur 9. mars ▯ Blað nr. 629 ▯ 29 árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is Mæðginin Nanna Jónsdóttir og Jón Guðmundsson í útreiðatúr. Nanna er á Jónssyni frá Ásmundarstöðum og Jón á Pabbastelpu frá Ásmundarstöðum. Nanna er nýr formaður deildar hrossabænda hjá Bændasamtökunum. Hún er uppalin á Ásmundarstöðum í Rangárvallasýslu, en býr og stundar hrossarækt á Miðhóli þar skammt frá. Hún hefur komið að ýmsu er við kemur hestum, starfrækt hestasumarbúðir, sinnt stóðhestahaldi og komið að uppbyggingu vatnsbrettaþjálfunar. Hún segir að tryggja þurfi aðkomu hrossabænda að búvörusamningum. – Sjá nánar bls. 36–37 Mynd / Ástvaldur Lárusson Kjúklingur fluttur inn í leyfisleysi Ekki var farið að reglugerð, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, við innflutning á um 185 tonnum af úkraínsku kjúklingakjöti frá septembermánuði 2022 til febrúar sl. Þrjú fyrirtæki fluttu inn vörurnar á þessu tímabili. Vefur Hagstofunnar sýnir innflutning á úkraínsku kjúklinga­ kjöti en tæplega 80 tonn komu fyrir áramót og ríflega 107 tonn í janúar. Þrjú fyrirtæki fluttu inn kjúklinginn á þessu tímabili samkvæmt upplýsingum sem Matvælastofnun (MAST) hefur frá Tollinum. Það eru Esja gæðafæði, Kjötmarkaðurinn og Ó. Johnson og Kaaber. Tvö fyrirtæki til viðbótar hafa fengið innflutningsleyfi fyrir vörur sem fluttar voru inn í febrúar. Samkvæmt upplýsingum frá MAST var innflutningsleyfis ekki aflað, né voru sendingar tilkynntar til stofnunarinnar í tilfelli innflutnings á kjúklingakjöti frá Úkraínu á tímabilinu september 2022 til og með janúar 2023. Afla skal leyfa áður en varan er send frá útflutningslandi Áður en óhitameðhöndlaðar dýraafurðir sem eiga uppruna utan Evrópska efnahagssvæðisins eru fluttar inn í fyrsta sinn, ber innflutningsaðila að láta MAST í té nauðsynlegar upplýsingar um vöruna til athugunar og samþykkis áður en varan er send frá útflutningslandi, skv. 4. gr. reglugerðar nr. 1250/2019 sem fjallar m.a. um grundvöll innflutningsleyfis. Dýraafurðir sem fluttar eru í gegnum EES en eiga uppruna í þriðja ríki skulu tilkynntar til MAST og á innflutningsaðili að leggja fram gögn til staðfestingar á því að þær uppfylli ákvæði reglugerðarinnar. Leyfið byggir meðal annars á áhættumati sem MAST er ætlað að framkvæma áður en heimildin er veitt. „Þar sem ekki hafði verið sótt um leyfi til Matvælastofnunar fyrir umræddar sendingar hafði áhættumat ekki verið framkvæmt þegar þær voru fluttar til landsins,“ segir Hrund Hólm, deildarstjóri inn­ og útflutningsdeildar MAST, í svari við fyrirspurn. Einnig kemur fram í svarinu að stofnunin hafi kallað eftir nauðsynlegum gögnum vegna allra sendinganna. Í þeim er staðfesting á því að landamæraeftirlit innan EES hefði farið fram, niðurstöðum úr salmonellusýnatöku og staðfestingu á að kjötið hafi verið fryst í a.m.k. 30 daga fyrir tollafgreiðslu. Öll umbeðin gögn hafi verið lögð fram. „Í heildina eru taldar nokkrar líkur á því að smitefni alvarlegra alifuglasjúkdóma berist til landsins með innflutningi á hráu alifuglakjöti frá Úkraínu og ESB en litlar líkur á að smitefnin berist í alifugla hérlendis. Helsta smitleiðin væri fóðrun hænsnfugla með eldhúsúrgangi en slíkt er óheimilt. Mikilvægt er því að allir sem halda alifugla, bæði á búum og heima við, fari eftir þeim reglum,“ segir Hrund í svarinu. Innflutningsleyfin voru því veitt. Áhættumat var framkvæmt í febrúar vegna umsókna sem bárust um innflutning í þeim mánuði. Ekki skimað fyrir sýklalyfja- ónæmum bakteríum hér Úkraína er aðildarríki Alþjóða dýraheilbrigðisstofnunarinnar og hefur því skyldum að gegna. Fjórtán alifuglasjúkdómar eru tilkynningaskyldir, þar á meðal fuglaflensa, sem hefur til þessa aðeins verið greind í villtum fuglum í Úkraínu. „Dýraafurðir frá þriðju ríkjum eru skimaðar m.a. fyrir lyfjaleifum og lyfjaónæmum bakteríum við landamæraeftirlit. Slíkt fellur inn í sýnatökuáætlun sem byggist á áhættumati og eru þá tekin sýni af ákveðnu hlutfalli sendinga. Landamæraeftirlit skal fara fram á fyrstu landamæraeftirlitsstöð í EES sem varan berst til,“ segir Hrund, innt eftir framkvæmd eftirlits kringum sýklalyfjaónæmar bakteríur. Þar sem innflutti kjúklingurinn frá Úkraínu fór í gegnum landamæraeftirlit í Hollandi og Litáen, hefur slík skimun kannski farið fram þar. Karl G. Kristinsson, prófessor og yfirlæknir við sýkla­ og veiru­ fræðideild Landspítalans, sagði í síðasta tölublaði Bændablaðsins að mikilvægt væri að fylgjast með sýklalyfjaónæmi í innfluttum mat­ vælum frá löndum með útbreitt sýklalyfjaónæmi. Hrund segir að MAST hafi ekki talið ástæðu til að draga í efa gögn sem lögð hafa verið fram vegna innflutta kjúklingsins. Landamæraeftirlitsstöðvarnar í EES­ ríkjunum þar sem vörurnar fóru í gegn frá Úkraínu eiga að sannreyna að viðeigandi opinber heilbrigðisvottun, útgefin af dýralæknayfirvöldum í Úkraínu, fylgi sendingum. Matvælastofnun er enn með innflutninginn til skoðunar en brot á ákvæðum reglugerðar nr. 1250/2019 geta varðað sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Innflutningur á úkraínsku kjúk­ lingakjöti hófst fyrst í september síðastliðnum. Það er flutt inn án tolla skv. breytingu á tollalögum, sem fela í sér fyrirvaralausa niðurfellingu tolla á allar vörur sem eru upprunnar í Úkraínu. Lögin voru samþykkt í júní og gilda til 31. maí nk. /ghp Vill treysta fjárhagsgrunn bænda 32 34 Mesta áskorunin er að stoppa upp uglur „Ég brenn fyrir góðum jarðvegi“ 38 Ráðgjafarfyrirtækið Environice hefur skilað tillögum til matvæla­ ráðherra um eflingu lífrænnar matvælaframleiðslu á Íslandi. Lagt er til að stefnt verði að því að árið 2030 verði tíu prósent af landbúnaðarlandi á Íslandi orðið lífrænt vottað. Árið 2020 var Ísland með næst­ lægsta hlutfall af vottuðu landi á Evrópska efnahagssvæðinu, eða 0,3 prósent, en aðeins Grænland er neðar með núll prósent. Það ár var markaðshlutdeild þessara vara hæst í Danmörku af Evrópu­ sambandslöndunum, um 13 prósent, en engar tölur eru til um þessa hlutdeild á Íslandi. Í aðgerðaráætlun Environice kemur fram að ESB hafi sett markmið um að árið 2030 verði að minnsta kosti 25 prósent af öllu landbúnaðarlandi innan sambandsins komið með lífræna vottun. Þar kemur einnig fram að árið 2020 hafi 3,4 prósent af landbúnaðarlandi Evrópusambandsins verið komið með lífræna vottun og að í 15 löndum sambandsins var hlutfallið hærra en tíu prósent. Um aðgerðaráætlun er að ræða og eru tillögurnar ítarlegar, alls 31 talsins. Þeim er skipt niður í sjö efnisflokka þar sem hver og einn snýr að tilteknum hluta virðiskeðjunnar og innviðum framleiðslunnar. /smh Sjá nánar á bls. 44-45. Lífrænt land verði 10%

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.