Bændablaðið - 09.03.2023, Side 10

Bændablaðið - 09.03.2023, Side 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 FRÉTTIR | S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s | | B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 | Límtré-Timbureiningar Stálgrind Yleiningar PIR Steinull Jarfi 16016 frá Helgavatni í Þverárhlíð í Borgarfirði hlaut nafnbótina besta naut fætt árið 2016 og viðurkenningu sem Nautastöð Bændasamtaka Íslands veitti á búgreinaþingi kúabænda. Ræktendur Jarfa 16016 eru Ágústa Ó. Gunnarsdóttir, Karitas Þ. Hreinsdóttir og Pétur og Vilhjálmur Diðrikssynir á Helgavatnsbúinu og tóku þau Karitas og Pétur við viðurkenningunni úr höndum Herdísar Mögnu Gunnarsdóttur, fráfarandi formanns deildar kúabænda, og Sveinbjörns Eyjólfs- sonar, forstöðumanns Nauta- stöðvarinnar. Jarfi hefur fengið mikla notkun að sögn Sveinbjörns, hann er vinsæll kynbótagripur og fáheyrt sé að gripir fái viðlíka dreifingu. Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur í nautgriparækt hjá RML, fór nokkrum orðum um Jarfa 16016 fyrir afhendingu viðurkenningarinnar. Í umsögn um dætur Jarfa segir meðal annars: „Dætur Jarfa eru góðar mjólkurkýr þar sem mjólkurmagn og hlutföll verðefna í mjólk liggja um meðallag. Þetta eru fremur smáar kýr og háfættar, bolgrunnar og útlögulitlar með sterka yfirlínu. Malirnar eru grannar, aðeins hallandi og þaklaga. Fótstaða er sterkleg en aðeins þröng. Júgurgerðin er úrvalsgóð, júgurband mjög áberandi, festa mjög mikil og þau frábærlega vel borin. Spenar eru frekar stuttir og grannir en mjög vel settir. Mjaltir eru mjög góðar og mjaltagallar fátíðir. Skap þessara kúa er ákaflega gott og skapgallaðir gripir vandfundnir í hópnum.“ /ghp Á búgreinaþingi deildar sauðfjár - bænda á dögunum var tillaga samþykkt þar sem því er beint til ÍSTEX að ullarflokkum sé fjölgað um tvo. Að flokkunum SF1 (svartflekkótt) og MF1 (móflekkótt) sé bætt við þar sem skortur sé á ull til framleiðslu á prjónabandi. Hjá ÍSTEX hafa slíkir flokkar verið til umræðu en eins og staðan er núna eru önnur verkefni í forgangi. Með tillögunni, sem kom frá fagnefnd búgreinadeildar sauðfjárbænda, fylgir greinargerð þar sem fram kemur að í ljósi þess að skortur sé á ull til að hægt sé að búa til stórar lotur af garni með því að blanda saman allri svartflekkóttri ull og allri móflekkóttri ull – og gera úr þessum tveimur litum úrvals prjónaband. „Þeir yrðu ekki eins milli ára, en fengju þá lotunúmer tengd hverju ári og væri eins og góð vín flokkuð eftir árgerðum,“ segir í tillögunni. Ekki í forgangi eins og er Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri ÍSTEX, segir að eins og staðan sé núna vanti helst lambsull og hreina sauðaliti, en kannski ekki akkúrat þessa liti. „Þá myndu aukaflokkar auka vinnu bænda í flokkun, ásamt því að tefja þvott, auka liti í framleiðslu og öllu því sem fylgir því. Framleiðslan í Mosfellsbæ er nálægt hámarksafköstum og nú þegar svipaðir litir í Léttlopa, Álafosslopa og Plötulopa. Þá skiptir rétt markaðssetning öllu máli. Stóra spurningin er hvort eftirspurn og hærra verð fylgi í raun,“ segir Sigurður. Hann bætir því við að allt þetta þurfi að skoða mjög vel áður en ákvörðun er tekin um að fjölga flokkum. „Allt þetta þarf að skoða mjög vel áður en ákvörðun er tekin um að fjölga flokkum. Þetta er nokkuð sem við förum yfir reglulega, en eins og staðan er þá eru önnur verkefni í forgangi. Hér mætti meðal annars nefna að nýta betur ull af veturgömlu fé til að auka magn af fínni og mýkri ull.“ Eftirspurn eftir náttúrulegum litum að aukast „Þessir tveir flokkar hafa verið ræddir hér innanhúss undanfarin ár, til að minnka mislitan annan flokk (M2) og leita leiða til að auka verðmæti. Mislit lambsull var fyrsta skrefið sem var tekið og fékkst úr því mjúk og góð ull sem notuð er í handprjónaband. Þá fylgdi svartur og mórauður annar flokkur sem nýttur er til að spara litarefni og 1. flokks sauðaliti í bandlitum sem þola það. Þvottastöðin á Blönduósi hefur undanfarin ár búið til sérstakan náttúrulegan lit, „silver grey“, með að fjarlægja mórauðan hluta. Þessi litur hefur verið seldur erlendis í náttúrulegt gólfteppi ætluð fyrir skemmtiferðaskip þar sem liturinn fær að njóta sín. Ístex fær um 20-25 prósent hærra verð en annars fengist. Þannig að tækifæri fyrir liti sem breytast eftir lotum er til staðar og þá virðist eftirspurn eftir náttúrulegum litum að aukast,“ segir Sigurður Sævar. /smh Sauðfjárbændur vilja fjölga ullarflokkum – Ekki í forgangi hjá ÍSTEX eins og er Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri ÍSTEX. Mynd / smh Jarfi frá Helgavatni besta nautið Jarfi 16016 frá Helgavatni í Þverárhlíð í Borgarfirði hefur reynst farsæll kynbótagripur. Mynd / Nautastöð BÍ Pétur Diðriksson og Karitas Þ. Hreinsdóttir tóku við viðurkenningu Jarfa á búgreinaþingi. Mynd /ÁL Bændablaðið kemur næst 23. mars Alþingi: Þátttaka innlendra framleiðenda á tollkvótum til skoðunar Tollkvótar og þátttaka afurða- stöðva í kaupum á þeim voru til umræðu á þingfundi Alþingis mánudaginn 6. mars síðastliðinn. Tilefnið var fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þingmanns Viðreisnar, um lækkun tolla og gjalda á innfluttar matvörur. Þorgerður Katrín spurði matvæla- ráðherra hvort hún hafi beitt sér fyrir lækkun tolla og gjalda á innfluttar matvörur til að berjast gegn verðbólgu. Enn fremur spurði hún hvort ráðherra ætlaði að kappkosta að breyta reglum um tolla og úthlutun tollkvóta sem geti leitt til lækkunar á matvöruverði. Hún sagðist vilja að innlendum afurðastöðvum og vinnslustöðvum verði óheimilt að bjóða í eða sækjast eftir tollkvótum. „Við vitum það alveg, og ráðherra á að vita það, að þegar flett er upp hverjir eru eigendur LL42, Mata, þetta eru náttúrlega aðilar sem eru tengdir stærstu landbúnaðarframleiðslu hér á landi og þeir eiga ekkert að vera að bjóða í eða sækjast eftir tollkvótum með það eina að markmiði að halda þeim fjarri og halda verðinu uppi. Þannig eru íslenskir neytendur ekki að njóta góðs af þessari litlu glufu sem þó fæst með tollkvótunum.“ Í tilsvörum vék Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra að þátttöku innlendra framleiðenda á tollkvótum. „Það er ekki til að einfalda umræðu um tollvernd að þau fyrirtæki sem starfa í skjóli tollverndar séu þátttakendur í slíku. Bara svo það sé sagt.“ Hún sagði að matvælaráðuneytið væri með nýtingu á tollkvótum til skoðunar og nefndi að Samkeppniseftirlitið væri enn fremur með slík mál til skoðunar. Verð hækkar meira í Evrópu Í tilsvari benti matvælaráðherra einnig á að tollar á innfluttar matvörur væru litlir í samanburði við EFTA löndin. Hún vísaði í gögn Hagstofu Evrópusambandsins og sagði að verð á svínakjöti hefði hækkað um 18,4% á síðasta ári að meðaltali í Evrópu á meðan það hækkaði um 12% hér. Á sama tíma hefði verð á kjúklingi hækkað um 23,5% í Evrópu en 14,6% á Íslandi. Verð á drykkjarmjólk hækkaði um 31% í Evrópu en eingöngu um 8% hér. „Ég er ekki að nefna þessar tölur til þess að sýna fram á það að við höfum algjörlega sambærilegar tölu í einhvers konar stöðugleikaumhverfi heldur til að sýna fram á það hvað þessar forsendur geta verið breytilegar í heimsfaraldri, í stríðsástandi o.s.frv. Þannig það eru ótvíræðir hagsmunir að skapa skilyrði fyrir öfluga matvælaframleiðslu á Íslandi.“ /ghp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Svandís Svavarsdóttir. Myndir / Alþingi

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.