Bændablaðið - 09.03.2023, Page 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
FRÉTTIR
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins:
Örmerkingarmönnum hrossa
býðst samstarf við Matís
Nýtt verklag varðandi DNA-sýnatökur hrossa var
ýtt úr vör hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sl.
mánudag, 6. mars.
Nú býður Matís öllum aðilum sem hafa réttindi til
örmerkinga hrossa á Íslandi að stofna til viðskipta og
að skila DNA-sýnum inn til greiningar og úrvinnslu.
Niðurstöður sýna eru vistaðar í upprunaættbók íslenska
hestsins, WorldFeng.
„Fram til þessa hefur sýnataka úr hrossum, til
úrvinnslu Matís, einvörðungu verið á hendi dýralækna,
starfsfólks RML og Búnaðarsambanda en með stærri hópi
sýnatökufólks standa vonir til að fjölga megi sýnatökum
til muna; fjölga DNA-greindum hrossum. Ath. að hér
ræðir um stroksýni úr nösum hrossa (eða hársýni) en
blóðsýnatökur eru eingöngu á hendi dýralækna.
Starfandi og virkir örmerkingamenn ættu flestir
að hafa allt sem til þarf, þekkingu á skráningarferli í
WFeng, aðgengi að örmerkjaskanna og möguleikann
á að örmerkja hross samhliða sýnatöku en það er
ófrávíkjanleg krafa að sýni eru eingöngu tekin úr þegar
örmerktum gripum,“ segir í tilkynningu frá RML.
Áhugasamir örmerkingamenn eru hvattir til að
setja sig í samband sérfræðinga Matís til að fá frekari
upplýsingar og nálgast sýnatökubúnað.
Nýtt verklag varðandi DNA-sýnatökur var ýtt úr vör hjá
RML í vikunni. Mynd / Aðsend
Búgreinadeild sauðfjárbænda:
Tryggja þarf að gripir með verndandi
arfgerðir verði ekki skornir niður
Búgreinadeild sauðfjárbænda
hjá Bændasamtökum Íslands
samþykkti tillögu á nýliðnu
búgreinaþingi að beina því til
ráðuneytis landbúnaðarmála að
ljúka hið snarasta endurskoðun
reglugerðar um sauðfjársjúkdóma.
Tryggja þurfi að gripir sem hafa
verið greindir með verndandi arfgerð
gegn riðu verði ekki skornir niður í
hjörðum þar sem riða kemur upp,
eins og þekkt er erlendis.
Tillagan barst úr fagnefnd
þingfulltrúa og við kynningu á henni
kom fram að jákvæð viðbrögð hefðu
fengist úr ráðuneytinu við þessum
hugmyndum.
Ráðuneytið hefur haft tillögur
frá Sigurborgu Daðadóttur
yfirdýralækni að nýjum reglum frá
því í desember 2021, sem fóru síðan
í lokað umsagnarferli.
Von á fjölda lamba í vor með
verndandi arfgerð
Í Bændablaðinu í október var
fjallað um málið í samhengi
við undanþáguheimild sem
Matvælastofnun fékk til að gefa
út leyfi fyrir sölu á líflömbum og
kynbótagripum, með mögulegar
verndandi arfgerðir gegn riðusmiti,
yfir sauðfjárveikivarnarlínur. Þá
fengust þau svör úr ráðuneytinu
um breytingartillögur yfirdýralæknis
að þær hafi falið í sér umtalsverðar
breytingar á því regluverki sem snýr
að riðuvörnum. „Við skoðun kom í
ljós að þær breytingar taka einnig
til ýmissa þátta sem varða skipulag
almenns dýraheilbrigðis. Í ljósi þessa
hefur sú ákvörðun verið tekin að
fara í tímabæra heildarendurskoðun
á þeim lagabálkum sem snúa
að dýraheilbrigði. Sú vinna er
umfangsmikil, og liggur því ekki
ljóst fyrir á þessari stundu hvenær
henni lýkur“, sagði þá í svarinu úr
ráðuneytinu.
Mikið ræktunarstarf hefur síðan
verið unnið og von er á þúsundum
lamba í vor þar sem líkur eru á
að beri ýmist verndandi arfgerðir
eða mögulega verndandi arfgerðir.
Samkvæmt núverandi reglugerð
verður að skera niður allt fé í hjörðum
þar sem riða kemur upp. Í nýlegu
svari ráðuneytisins um stöðu málsins
kemur fram að ráðuneytið vinni nú
að því í samvinnu við yfirdýralækni.
Búast megi við breytingum á reglum
þar sem tekið verður tillit til þessara
hagsmuna. /smh
Gimsteinn frá Þernunesi er með ARR-arfgerð, sem er viðurkennd verndandi
gegn riðusmiti. Hann var næstvinsælasti sæðingahrútur sæðingastöðvanna
í síðustu vertíð. Mynd / Eyþór Einarsson.
Sauðfjárbændur vilja ljúka endurskoðun reglugerðar um sauðfjársjúkdóma hið snarasta. Mynd / smh
Aðalfundur ÍSTEX:
Hagnaðurinn 67,1 milljón
króna á síðasta ári
Aðalfundur ÍSTEX var haldinn
í kjölfar búgreinaþings deildar
sauðfjárbænda og aðalfundar
Landssamtaka sauðfjárbænda
á Hótel Natura í Reykjavík
fimmtudaginn 23. febrúar.
Þar kom fram að hagnaður af
rekstri félagsins á liðnu rekstrarári
hafi verið 67,1 milljón króna.
Þrátt fyrir góða rekstrarafkomu
er ekki lagt til að arður sé greiddur
af hlutafé heldur sé hagnaðurinn
notaður til að styrkja fjárhagsstöðu
félagsins vegna mögulegra
fjárfestinga á næstu misserum.
Að sögn Sigurðar Sævars
Gunnarssonar framkvæmdastjóra
var aðalfundurinn ágætlega sóttur
miðað við fyrri ár. Helstu tíðindin
af fundinum séu góð afkoma
félagsins og að enn þá sé mikil
eftirspurn eftir lopavörum, auk
þess sem þörf sé á fjárfestingu í
bandframleiðslu.
Sú breyting varð á stjórn
ÍSTEX að Unnsteinn Snorri
Snorrason fer út en Jóhann
Ragnarsson tekur hans sæti.
Stjórnina skipa að öðru leyti þau
Gunnar Þórarinsson formaður,
Jóhannes Sveinbjörnsson, Halla
Eiríksdóttir og Guðfinna Harpa
Árnadóttir. /smh
Skaftárhreppur:
Hótel með ísböðum byggt
fyrir 9 milljarða króna
Framkvæmdir eru hafnar við
byggingu 200 herbergja fjögurra
stjörnu hótels á Orustustöðum
í Skaftárhreppi, skammt frá
Kirkjubæjarklaustri.
Hótelið mun heita Stracta
Orustustaðir líkt og Stracta hótel
Hreiðars Hermannssonar á Hellu,
en hann er eigandi hótelsins. Átta
svítur verða á hótelinu og þá verður
boðið upp á ísböð. Hótelið verður
um sjö þúsund fermetrar að stærð
en hönnuðir gera ráð fyrir að hægt
sé að byggja það í áföngum.
„Svona stór uppbygging er
gríðarlega atvinnuskapandi en mikill
fjöldi mun starfa við verkefnið á
uppbyggingartíma. Þegar rekstur er
kominn af stað myndum við áætla
að þörf væri á 65 stöðugildum við
hótelið, sem liggur einnig í margs
konar þjónustu við hótelið og gesti.
Eins myndast störf vegna
annarrar starfsemi sem áætlað er að
reka á jörðinni sem lýtur til dæmis
að ræktun, landgræðslu og skógrækt.
En hugmyndafræðin á bak
við verkefnið snýr að sjálfbærri
uppbyggingu sem þarfnast
sérfræðiþekkingar á misjöfnum
sviðum,“ segir Margrét Gísladóttir,
sem vinnur að verkefninu með
Hreiðari. Heildarkostnaður við
byggingu hótelsins verður um níu
milljarðar króna. Enn er þó óljóst
hvenær hótelið verður tekið í notkun.
„Við ætluðum okkur náttúrlega að
vera komin lengra í ferlinu en ýmsar
steinvölur í veginum hafa varnað
því,“ segir Margrét. /MHH
Hreiðar Hermannsson á hreinan 100%
eignarhlut í nýja hótelinu. Mynd /MHH
Sigurður Sævar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSTEX. Mynd / smh
Bændablaðið www.bbl.is