Bændablaðið - 09.03.2023, Page 20

Bændablaðið - 09.03.2023, Page 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 FRÉTTASKÝRING Neytendur: Matvæli undir fölsku flaggi – Um upprunamerkingar og skort á þeim Uppruni matvæla skiptir neytendur miklu máli. Ákveðnar reglur gilda um merkingar matvæla, en skyldumerkingar gera vörunum oft ekki nægjanleg skil. Á það bendir formaður samráðshóps um betri merkingar matvæla. Á meðan óunnum vörum sé gert að vera merkt uppruna gegnir öðru máli um það sem skilgreint er unnið. Fyrirtækjum er í sjálfsvald sett hvaða umfram upplýsingar þær setja fram á vörur sem þær vinna að litlu leyti. Neytendum er svo látið í té að velja sér matvörur út frá gefnum upplýsingum – eða skorti á þeim. Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um uppruna- merkingar kjöts í matvöru, viðhorfi neytenda, hagkvæmni og áhrif slíkra merkinga, segir að neytendur séu almennt næmari gagnvart uppruna matvæla. Slíkt næmi birtist í meiri meðvitund og kröfu neytenda um upprunamerkingar. Neytendur vilja upplýsingar um uppruna, innihald og kolefnisspor landbúnaðarafurða svo þeir geta meðvitað valið hvað þeir leggja sér til munns. Matvælafyrirtæki fara ekki varhluta af því og nýta upprunavörumerki sér til hagsbóta. Markaðslegt forskot getur falist í matvöru frá tilteknum löndum, neytendur treysta misvel matvælaframleiðslu ákveðinna landa og landsvæða. Þannig hafa sum lönd og svæði byggt upp sérstöðu sem neytendur treysta og kjósa umfram sambærilegar vörur frá öðrum svæðum. Samkvæmt eðli hagfræðinnar hækkar virði eftirsóknarverðra vara. Öðru máli gildir um uppruna, innihald og kolefnisspor þeirra matvæla sem gætu latt neytendur til kaups og neyslu. Þá er oft betra fyrir fyrirtæki að nýta gloppur í löggjöf og sleppa því að upplýsa væntanlega neytendur. Tölur sem tala Fjölmargar kannanir staðfesta að neytendur vilja vita hvaðan maturinn þeirra kemur og undir hvaða kringumstæðum hann er framleiddur. Dæmi um það er afgerandi afstaða neytenda í könnun Maskínu árið 2018 þar sem 96,6% svarenda töldu að merkja ætti upprunaland matvöru í verslunum, 77,1% taldi rétt að merkja upprunaland matvöru á veitingahúsum og 72,4% töldu að merkja ætti matvöru í mötuneytum. Í könnun Gallup frá árinu 2021 sögðu tæp 90% svarenda að upprunamerkingar væru mikilvægar. Ríflega 80% neytenda sögðust kjósa íslenskar vörur í verslunum væri þess kostur og 63% svarenda óskuðu þess að innlendar matvörur væru upprunamerktar. Rúm 70% svarenda sögðust óánægðir með að erlendar kjötafurðir væru seldar undir íslenskum vörumerkjum. Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) benda á það í umsögn sinni um nýja þingsályktunartillögu um matvælastefnu að samkvæmt könnun Gallup í ágúst 2016 skiptir uppruni landbúnaðarafurða íslenska neytendur miklu máli en þá svöruðu 82,2% því að þeir veldu eingöngu, mun frekar eða frekar íslenskt kjöt en erlent þegar verslað er og 88,3% sögðu það skipta öllu, mjög miklu eða frekar miklu máli að upplýsingar um uppruna væru á umbúðunum. Þær reglur sem gilda Ísland innleiddi matvælalöggjöf Evrópusambandsins árið 2014. Innan hennar gilda reglur um merkingar matvæla. Engar sérreglur eru um merkingar matvæla hér á landi, enda er sameiginleg löggjöf innan Evrópusambandslandanna til þess gerð að samræmi sé í regluverki innan Evrópska efnahagssvæðisins. Matvælastofnun og heilbrigðis- nefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með merkingum matvæla. Á vefsíðu MAST er hægt að nálgast skýringar á reglunum. Eingöngu er skylt að merkja uppruna flestra ferskra matjurta, hunangs og óunnins kjöts af nautgripum, svínum, sauðfé, geitum og alifuglum. Munurinn á unnu og óunnu Í reglugerðunum um uppruna- merkingar á kjöti er krafan um upprunamerkingar einskorðuð við tiltekinn tollflokk. Undir þann flokk falla einungis óunnar afurðir, kældar eða frystar. Óunnið kjöt telst allt það sem eingöngu er skorið eða hakkað. Um leið og kjötið hefur verið kryddað, pæklað, sprautusaltað eða bætt í það aukaefnum er það ekki lengur óunnið. Unnin matvæli lúta ekki kröfu um upprunamerkingu og er því framleiðanda vörunnar í sjálfsvald sett hvort upplýst sé um uppruna hráefnisins. Í reglugerðum er hægt að finna nánari skilgreiningar á hvað telst til óunninna og unninna vara en einfalt er að skilja það svona: Ef innihaldslýsingar er þörf, þá er kjötið unnið. Heiðursmannasamkomulag og samráðshópur Í febrúar árið 2019 var undirritað samkomulag milli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bænda- samtaka Íslands, Neytendasam- takanna, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka iðnaðarins þess efnis að gerð yrði gangskör í því að bæta merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra. Í kjölfarið var stofnaður samráðshópur um betri merkingar matvæla sem starfaði á vegum atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytisins á tímabilinu apríl 2019 til febrúarmánaðar 2020. Afurð starfs hópsins er skýrsla sem kom út í september árið 2020. Þar voru lagðar fram tólf tillögur til að bæta merkingar matvæla. Oddný Anna Björnsdóttir var formaður og verkefnisstjóri samráðshópsins. Það sem þarf ekki Tillögurnar tólf sneru að bættri merkinga- löggjöf, tækni- lausnum sem aukið gætu upplýsingagjöf um matvæli til neyt enda og notkun á valkvæðum merkingum. Auk þess lagði hópurinn til átaksverkefni til að tryggja betri meðvitund neytenda á rétt sínum til upplýsinga um matvæli. Oddný Anna bendir á að innleiðing hinnar svokölluðu merkingareglugerðar árið 2014 hafi verið mikið framfaraskref fyrir neytendur hér á landi. Í henni séu mun meiri kröfur gerðar til merkingar matvæla en áður voru og hvetur neytendur til að kynna sér hvaða upplýsingum þeir eigi rétt á, á vef Matvælastofnunar. Sem dæmi séu innihaldslýsingar orðnar fastmótaðri, ofnæmis- og óþolsvaldar sýnilegri, skýrar reglur um næringar- og heilsufullyrðingar og næringargildistaflan staðlaðri. „Að mínu mati er reglugerðin skýr og engin sérstök vafaatriði í henni, en það þarf að sjá til þess að farið sé eftir reglunum,“ segir Oddný. Fánaröndin getur verið blekkjandi Íslenska fánaröndin er mikið notuð á matvæli íslenskra fyrirtækja og sjást tíðum í matvörubúðum. Í lögum um þjóðfána kemur fram að heimilt sé að nota fánamerkingu sé vara framleidd á Íslandi úr innlendu hráefni, en einnig ef hún er framleidd úr innfluttu hráefni hafi hún hlotið „nægilega aðvinnslu“ hérlendis. Þó er þar tilgreint að vara teljist ekki íslensk, og megi þar af leiðandi ekki bera þjóðfánann, sé hún framleidd úr innfluttu hráefni sem telst vera einkennandi hluti vörunnar og sé eðlislík vöru sem ræktuð er og framleidd hér á landi. Íslensk framleiðslufyrirtæki sem nota innflutt hráefni geta sett íslenska fánann á vörur sínar ef uppistöðuhráefnið er ekki eðlislíkt íslenskri búvöru. Mörg dæmi eru hins vegar um að þjóðfáninn sé misnotaður en viðurlög við slíkum brotum virðast lítil. „Það virðist vera mjög lítil áhætta að brjóta þessa reglu. Ef þú ert með vanmerkta vöru með óþolsvalda þá er hún innkölluð hin snarasta. En ég hef hins vegar ekki heyrt af innköllun á vöru sem var merkt íslenska fánanum sem talið var villandi,“ segir Oddný. Samkvæmt upplýsingum frá Neytendastofu hafa þrettán fyrirspurnir og ábendingar borist varðandi villandi framsetningu, upprunamerkingar eða markaðssetningu á búvöru síðan skýrslu samráðshópsins var skilað árið 2020. Tekin hafa verið fyrir tvö mál til meðferðar sem snúa að notkun þjóðfánans, á ullarsæng og á umbúðum hóffylliefnis. Í fyrrnefnda tilvikinu var niðurstaða stofnunarinnar að notkun fánans væri réttmæt en í því síðarnefnda var látið af notkuninni. Stofnunin hefur ekki beitt sekt í málum sem þessum sem snúa að búvöru en samkvæmt lögum er Neytendastofu heimilt að leggja á stjórnvaldssektir, allt að 10 milljónir króna, ef ekki er farið að fyrirmælum stofnunarinnar. Misfellurnar tvær Þó réttur neytenda sé mikill samkvæmt merkingareglugerðinni stendur tvennt út af sem dregur úr möguleikum neytenda á upplýstu vali, að sögn Oddnýjar. „Annars vegar er ekki skylt að upprunamerkja búvörur á veitingastöðum, mötuneytum og öðrum stöðum sem selja óforpökkuð matvæli. Reglurnar eru þó þannig að þeir sem bjóða upp á matinn eiga að hafa upplýsingarnar til reiðu ef spurt er.“ Tilfinning hennar sé sú að mikill hluti kjöts á veitingastöðum og í mötuneytum sé innfluttur nema frá því sé sérstaklega sagt. „Ef þeir þurfa ekki að gefa það upp þá er enginn hvati til þess að nota íslenskt, nema staðurinn geri sérstaklega út á að bjóða upp á íslenskt.“Hún sé þeirrar skoðunar að skylda ætti þessa staði til að hafa uppruna búvaranna sýnilegan. Ein tillaga samráðshópsins sneri einmitt að því að ráðherra skoðaði að taka upp hina svokölluðu „Finnsku leið“ sem gangi út á að skylda þá til að upplýsa viðskiptavini sína um uppruna þess ferska kjöts og hakks sem þeir hafa á boðstólum, til dæmis á töflu eða í bæklingi. Það myndi bæta skilyrði og stöðu neytenda til að taka meðvitaða og upplýsta ákvörðun. Hitt atriðið sem dregur úr möguleikum neytenda á upplýstu vali að mati Oddnýjar er að ekki þurfi að upprunamerkja unnar kjötvörur. „Tilhneigingin er sú að þeir sem eru með unnar vörur úr íslensku kjöti segi frá því, en þeir sem eru ekki með íslenskt kjöt nýti sér gjarnan að þurfa Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is Unnið og óunnið, íslenskt og innflutt ægir saman í matvöruverslunum. Upprunamerkja þarf alla óunna vöru. Ekki er skylda að upprunamerkja unna vöru. Fyrirtæki geta valið að upprunamerkja unnar vörur. Tilhneigingin hefur verið að merkja það sem íslenskt er en fyrirtæki eru í vaxandi mæli að merkja uppruna allra kjötvara. Oddný Anna Björnsdóttir var for- maður og verkefnisstjóri samráðs- hóps um betri merkingar matvæla. Skýr upplýsingagjöf er forsenda fyrir því að neytendur geti tekið upplýstar ákvarðanir um vöruval, segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. Vinstra megin er þýskt grísakjöt notað í beikon undir íslensku vörumerki. Efri vara hægra megin eru beikonteningar upprunamerktir íslenskir með fánarönd. Sú neðri er beikonvara sem kölluð er dönsk með kjöti upprunnu í Þýskalandi.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.