Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Alþjóðlega áhugaleiklistarhátíðin
(AITA/IATA) árið 2023 verður
haldin í Debrecen, Ungverjalandi
dagana 19.-25. júní 2023. Þema
hátíðarinnar er Friður.
AITA/IATA, eða International
Amateur Theatre Association,
sameinar og tengir saman áhuga-
leikhópa, samfélagsleikhús og
viðlíka samtök um allan heim, alla
þá sem eiga sameiginlega ástríðu
leikhússins. Er hátíðin fyrst og
fremst tileinkuð tengslamyndun íbúa
heimsins, auk réttindum manna, þá
er kemur að listum og menningu,
óháð þjóðerni, tungumáli, kyni,
kynhneigð, þjóðernisuppruna eða
trúarbrögðum svo eitthvað sé nefnt.
AITA/IATA leiðir fólk saman
með það fyrir augum að miðluð verði
þekking og iðkun á sviði leiklistar til
að dýpka skilning, skapa ný tækifæri
og efla áhugaleikhúsageirann á
heimsvísu.
Er hátíðin afar vel sótt af
meðlimum á heimsvísu og því
einstakt tækifæri til þess að efla
tengslanetið og njóta sýninganna
og alls sem upp á er boðið.
Frekari upplýsingar má fá hjá
Þjónustumiðstöð BÍL í info@
leiklist.is eða í síma 551-6974. /SP
Alþjóðleg áhugaleiklistarhátíð:
Tenging leiklistarunnenda
um heim allan
Þema hátíðarinnar nú í ár er friður. Mynd / leiklist.is
Freyvangsleikhúsið í Eyjafirðinum frumsýndi Fólkið í blokkinni
þann 24. febrúar í Freyvangi. Miðasala er hjá tix.is
og í síma 857-5598. Sýnt verður í átta skipti, klukkan 20.00, föstudaga og
laugardaga frá frumsýningu þar til 18. mars næstkomandi og miðaverð
er kr. 3500.
Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja frumsýndi Vitleysingana
eftir Ólaf Hauk Símonarson föstudaginn 3. mars við mikinn fögnuð
áhorfenda. Þó nokkrar sýningar eru í boði og miðapantanir í síma 8691118
og á netfanginu gylfi1sig@gmail.com.
Ávaxtakarfa Leikfélags Húsavíkur er í fullum gangi, miðapantanir
eru á netfanginu midi@leikfelagid.is eða í gegnum síma 464-1129,
tveimur tímum fyrir sýningu.
Á döfinni ...
Leikfélag Húnaþings vestra er á fullu þessa dagana að æfa söngleikinn
Himinn og jörð sem saminn var af leikstjóranum sjálfum, Ármanni
Guðmundssyni.
Var handritið unnið í kringum lög Gunnars Þórðarsonar en einhverjir
muna eftir plötu hans, Himni og jörð sem gefin var út 1981 og inniheldur
sum laganna, sem alls eru sautján talsins í leikverkinu.
Verk Ármanns var samið sérstaklega fyrir leikflokkinn og fjallar um
tilraunir geimvera frá plánetunni Gakóvest. Þær vilja komast yfir ægilegasta
gereyðingarvopn alheimsins sem einmitt er staðsett á jörðinni vegna þess
að þar er ástin sterkasta tilfinningin. Eitthvað misreikna geimverurnar sig
því ástin er enn hættulegri en þær gera sér grein fyrir. Danshöfundur er
Chantelle Carey og hljómsveitarstjóri Ingibjörg Jónsdóttir en um 40 manns
koma að söngleiknum.
Um er að ræða afar hressandi og skemmtilegan söngleik sem á erindi við
alla aldurshópa. Sýnt verður í fimm skipti, dagana 5.-10. apríl, og hefjast
sýningar kl. 21 í Félagsheimilinu Hvammstanga. Opnar húsið klukkustund
áður og miðasalan fer fram á adgangsmidi.is. /SP
Eigum hina vinsælu vagna frá þessum
þekkta framleiðanda til afgreiðslu Strax
BÚFJÁRFLUTNINGAVAGNAR
frá Ifor Williams
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Leikfélag Húnaþings vestra:
Himinn og jörð
MENNING
Leikfélag Mosfellssveitar:
Dýrin í Hálsaskógi
Leikfélag Mosfellssveitar setti upp á dögunum hið
sívinsæla leikrit Dýrin í Hálsaskógi eftir meistara
ævintýranna, Thorbjørn Egner.
Verkið er vel þekkt og fá áhorfendur að upplifa
samfélagið í skóginum og sjá kunnuglegum persónum
á borð við söngelsku músina hann Lilla og hinn lævísa
Mikka ref bregða fyrir.
Dýrin í skóginum með Lilla klifurmús í fararbroddi
búa við stöðugan ótta af því að verða étin af refnum og
öðrum rándýrum í þeirra nánasta umhverfi, sem sjá ekki
ástæðu til þess að afla sér matar á annan hátt.
Þau taka þó af skarið og ákveða að útbúa ný lög í
skóginum, svo allir geti búið saman í friði.
Leikstjóri er Birna Pétursdóttir, tónlistarstjóri er
Sigurjón Alexandersson og Eva Björg Harðardóttir
hannar leikmynd og búninga.
Sýningar eru í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ á
sunnudögum kl. 14 og fer nú hver að verða síðastur
að ná sér í miða enda allt að verða uppselt. Miðasalan
er á tix.is en einnig eru upplýsingar á Facebook-síðu
félagsins.
/SP
Mörg kunnugleg andlit birtast á sviði Bæjarleikhúss Mosfellsbæjar, en leikritið um Dýrin í Hálsaskógi hefur notið
ákaflega mikilla vinsælda ... að venju. Myndir / Eyþór Árnason.
Mega áhorfendur eiga von á góðu er sýningar hefjast í byrjun apríl.
Mynd / Aðsend.