Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
þurfi aðkomu hrossabænda að
búvörusamningum.
„Þá er ég ekki að tala um að við
eigum að fara inn í styrkjakerfið
eins og aðrar búgreinar heldur þarf
að tryggja fjármuni í utanumhald
vegna íslenska hestakynsins svo
hægt sé að öðlast betri yfirsýn, svo
við getum sinnt leiðtogahlutverki
okkar og í umgjörð og utanumhald
er því við kemur. Greinin byggir á
arfleifð íslenskrar menningar og
ég tel að hestamennskan eigi eftir
að halda áfram að vaxa og dafna
um ókomna tíð.
Það var mikil innspýting á
sínum tíma þegar Guðni Ágústsson,
fyrrverandi landbúnaðarráðherra,
hrinti af stað átaksverkefni í
uppbyggingu á reiðhöllum um
land allt sem olli algjörri byltingu
á aðstöðu og reiðmennsku. Nú tel
ég að það sé kominn tími til að
marka framtíðarsýn í samstarfi
við stjórnvöld og koma íslenska
hestinum á föst fjárframlög
frá ríkinu. Áhugavert væri
jafnframt að skoða lækkun á
virðisaukaskatti eins og stundum
hefur verið umræða um og var ein
af niðurstöðum skýrslu sem unnin
var árið 2009 fyrir sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið. Lækkun á
virðisauka í 11% skatthlutfall gæti
verið mikill hvati fyrir greinina
innanlands eins og stjórnvöld gerðu
til að mynda fyrir ferðaþjónustuna
vegna sölu á gistiþjónustu með
góðum árangri. Einnig er afar
mikilvægt að hafa næga fjármuni
eyrnamerkta í rannsóknir. Það er
til dæmis tímaspursmál hvenær
við þurfum að svara hver efri
þyngdarmörk á knöpum séu fyrir
okkar hestakyn og þá þurfum við
að vera með þekkingu á reiðum
höndum.“
Vill vera í virku samtali
við félagsmenn
Nanna telur mikil tækifæri felast í
aukinni nýliðun í hestamennskunni.
„Það er í raun og veru átak
sem stöðugt þarf að sinna enda
samkeppnin mikil. Við þurfum
að sjálfsögðu að passa upp á
stofnvernd íslenska hestsins og
viðhalda erfðabreidd hans.
Ein af stóru áskorunum sem
stjórn búgreinadeildar hrossabænda
stendur frammi fyrir er að fá fleiri
félagsmenn inn til að sameina krafta
sína innan Bændasamtakanna sem
ég bind miklar vonir við að verði
– sér í lagi ef við fáum aðkomu að
búvörusamningum.
Einnig mun ég leggja mikið
upp úr því að taka samtal við
grasrótina og kalla eftir skoðunum
félagsmanna, hvort sem er í beinum
samtölum eða fundarherferðum.
Síðan verður vonandi hægt að
nýta Bændatorgið innan BÍ til
þess að vera í virku samtali við
félagsmenn.“
VANDAMÁL Í ELDSNEYTI??
Dísel bætiefnið frá eyðir öllum raka í eldsneytiskerfum,
hreinsar spíssa og kemur því í veg fyrir sveppamyndun.
Það geta því sparast töluverðir fjármunir með því að nota
DIESEL SYSTEM CLEAN
MOTUL Á ÍSLANDI WWW.MOTULISLAND.IS SÍMI 462-4600
Stórlækkað verð á Diesel
System Clean í 10L
umbúðum.
Hægt að panta
í vefverslun
Hinn nýi formaður búgreinadeildar hrossabænda mun leggja mikið upp úr
því að taka samtal við grasrótina og kalla eftir skoðunum félagsmanna í
beinum samtölum og fundarherferðum.
Stóðhesturinn litfagri Ellert frá Baldurshaga nýkominn úr vatnsþjálfun.
Jón er knár knapi.
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S:551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 900–1600L
Salt og sanddreifari í tveim
stærðum fyrir stóra pallbíla og
minni vörubíla. Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 380–550L
Salt og sanddreifarari í tveim
stærðum, fyrir minni pallbíla.
Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 600 TR
Rafdrifinn kastdreifari
fyrir dráttarvélar m/öflugum
efnisskömmtunarbúnaði.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegur í
185–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótönn fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanleg í
165–240 cm breidd.
Hilltip Fjölplógur MVP
Fjölplógur fyrir ameríska
pallbíla t.d. RAM 3500,
GMC 3500 og FORD 350.