Bændablaðið - 09.03.2023, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Þann 2. mars síðastliðinn hélt fagráð
í lífrænum landbúnaði málþing á
Sólheimum í Grímsnesi þar sem
áhersla var lögð á jarðvegslíf,
jarðgerð og verðmætasköpun í
lífrænni ræktun.
Á málþinginu voru fjölmörg
áhugaverð erindi en eitt af þeim
var frá Austurríkismanninum
Gerald Dunst, sem er ráðgjafi
og frumkvöðull og jafnframt
eigandi fyrirtækisins Sonnenerde
í Austurríki. Fyrirtækið sérhæfir
sig í framleiðslu á mismunandi
tegundum rotmassa eða jarðvegs
ásamt lífkolum.
„Kolefnisræktun (e. Carbon
farming), eða endurnýjandi
landbúnaður eins og ég kýs að
kalla það, er eina leiðin til þess að
hægt verði að framleiða matvæli
fyrir heiminn í framtíðinni. Þar
er frjósemi jarðvegs mikilvægasti
hlutinn og ég predika hvar sem ég
kem að bændur eigi að hætta að
nota áburð en fara þess í stað að
nota örverur því sú aðferð skilar
jafngóðum niðurstöðum ef ekki
betri,“ segir Gerald sem benti á
í erindi sínu að um 25% bænda í
Austurríki stunda lífræna ræktun
og eftir sjö ár er því spáð að um
35% bænda verði komnir út í slíka
búskaparhætti.
Helgar lífið frjósömum jarðvegi
Gerald var ungur að árum þegar hann
fékk áhuga á jarðgerð og smátt og
smátt ákvað hann að helga líf sitt því
að framleiða hágæða rotmassa eða
jarðveg.
„Þegar ég var 14 ára gamall
byrjaði ég að spá í rotmassann í
heimagarði foreldra minna, ég sneri
honum reglulega og lífið þar vakti
svo sannarlega áhuga minn. Þar
skynjaði ég hversu mikilvæg og
flókin náttúruauðlind jarðvegur er
og langaði að kanna hvernig hægt
væri að nýta verðmæti hans. Síðar
fór ég í garðyrkjuskóla í Vín og lærði
mikilvægi þess að nota nitur í jarðvegi
því vöxturinn bætist til muna með
nýtingu þess,“ útskýrir Gerald og
segir jafnframt:
„Eftir árin í garðyrkjuskólanum fór
ég í nám í lífvísindum í háskólanum
í Vín og eftir eitt ár þar komst ég
í starfsnám hjá bónda sem hafði
framleitt rotmassa frá árinu 1985.
Þar vann ég í fjóra mánuði og sá
þar mjög frjósaman jarðveg, ég gróf
niður 30-40 sentímetra í mjög dökkan
jarðveg sem var fullur af mikilvægum
næringarefnum og örverum. Þá vissi
ég að það var nákvæmlega þetta sem
ég vildi vinna að og þróa enn frekar.“
Í dag framleiðir fyrirtæki Geralds,
Sonnenerde, þrjátíu tegundir
af rotmassa sem nýttur er við
mismunandi aðstæður.
Sex mánuði tekur að þróa
uppskrift að nýjum jarðvegi
„Viðskiptavinir okkar koma úr
öllum áttum, allt frá einstaklingum
til fyrirtækja og síðan eru
garðahönnuðir mjög áhugasamir
um úrvalið hjá okkur. Við veitum
ráðgjöf fyrir mismunandi aðstæður
og margir viðskiptavina okkar eru
mjög ánægðir með þá þjónustu að
geta verslað vörur okkar á netinu
og fá sent heim til sín,“ segir Gerald
og bætir við:
„Við erum í stöðugri þróun með
uppskriftir að nýjum jarðvegi en
það tekur yfirleitt um sex mánuði
að þróa uppskrift og koma henni
í framleiðslu. Mörg fyrirtæki í
sambærilegri framleiðslu og við
vilja einungis framleiða sem mest
af úrgangi til að græða meiri pening
en okkar hugmyndafræði er að
framleiða bestu mögulegu gæði og
við höfum hlotið ávinning af því.
Það tók okkur þó sex ár að þróa
Terra Petra, sem er talinn besti og
frjósamasti jarðvegur í heimi. Þá er
jarðvegurinn svartur og á upphaf
sitt á Amazon-svæðinu í Suður-
Ameríku. Það er mikið innihald af
lífkolum í jarðveginum og því fær
hann þennan lit en hátt næringargildi
jarðvegsins kemur til af miklum
styrk kola, örverulífs og lífrænna
efna. Við framleiðum Terra Petra í
miklu magni vegna vinsælda þess en
fólk sem hefur kynnst þessari tegund
jarðvegs velur hann fram yfir annan.
Terra Petra er þrefalt dýrari en annar
jarðvegur en það virðist ekki hindra
viðskiptavini í að velja hann.“
Framleiða 200 tonn
af lífkolum árlega
Gerald situr ekki auðum höndum
og er stöðugt að koma nýjum
hugmyndum í framkvæmd. Hann
hefur m.a. rekið lífkolaverksmiðju
í rúm 10 ár og framleiðir um 200
tonn af hágæða lífkolum á hverju ári.
„Lífkolin munu gegna
lykilhlutverki í að draga úr
kolefnislosun í andrúmsloftinu vegna
eiginleika þeirra. Við framleiðum
lífkolin með einstaklega háum
hreinleika þar sem umhverfið er ekki
mengað á nokkurn hátt því hráefnið
kemur úr endurnýjanlegum lífmassa
og við framleiðsluna kemur enginn
reykur út, eingöngu hrein, hvít gufa.
Við notum svæðisbundin hráefni í
framleiðsluna sem er mikilvægur
þáttur í gæða- og umhverfisstöðlum
fyrirtækisins ásamt því að nota
virðisauka svæðisins,“ útskýrir
Gerald og segir jafnframt:
„Við höfum þróað mikið af
mismunandi vörum úr lífkolunum
eins og til dæmis Terra Petra
jarðveginn en lífkolin er hægt að
nota á ólíkan hátt. Við framleiðum
bætiefni fyrir húsdýr með lífkolunum
og erum að þróa það sama fyrir
fisk en það eru oft magavandræði
hjá eldisfiskum sem lífkolin geta
læknað. Einnig munum við þróa
bætiefni úr lífkolum fyrir fólk en
sjálfur neyti ég þess, í litlu magni,
á hverjum degi og finn að það gerir
magaflórunni mjög gott.“
Ávinningur fyrir bændur
Frá árinu 2007 hefur Gerald
starfrækt svokallað humus-verkefni
á vistsvæðinu Kaindorf í Austurríki
þar sem 400 bændur á fimm þúsund
hektara svæði taka þátt.
„Verkefnið snýst um það að
bændur fá greitt fyrir að auka
kolefni í jarðvegi í nýju þróuðu
kolefnislánakerfi. Markmiðið er
að efla vöxt á humus, næringarríku
moldarefni, sem er lífrænn rotmassi
og myndast náttúrulega í hvers konar
jarðvegi í upprunalegu ástandi.
Þetta er mikið tækifæri fyrir okkur
gegn loftslagsbreytingum því
með uppsöfnun á humus verður
jarðvegurinn stöðugri og getur
tekið í sig margfalt meira vatn og
því er auðveldara að lifa af eftir
þurrkatímabil sem dæmi,“ útskýrir
Gerald og bætir við:
„Við gerum samning við hvern
og einn bónda sem samþykkir að
þróa humus á landbúnaðarsvæði að
eigin vali. Vanalega er það ræktað
land og samningurinn nær til 5-7 ára
í senn. Bændur hafa frjálsar hendur
með hvernig þeir framkvæma
þetta en við komum með ýmsar
ráðleggingar inn í verkefnið
sem snúa að gróðursetningu,
jarðvinnslu án plægingar, fækkun
efnaáburðar, notkun rotmassa
og fleira. Verkefnið greiðir síðan
bændunum árangursgjald fyrir
bindingu á kolefnum sem fyrirtæki
kaupa af fúsum og frjálsum vilja til
að bæta upp fyrir losun sína. Þannig
að ávinningur bændanna getur verið
mikill og það hefur verið skemmtilegt
að sjá áhrifin sem þetta hefur haft því
sífellt bætast fleiri bændur við inn
í verkefnið. Fyrir okkur er aðeins
umhverfisvæn nýting á auðlindum
okkar skynsamleg og það sem drífur
mig áfram í allri þessari vinnu er
að skila jörðinni betri til barnanna
minna en ég tók við henni. Ég brenn
fyrir góðum jarðvegi.“
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Komdu við í sýningarsalinn okkar að Krókhálsi 9 eða skoðaðu úrvalið og kynntu
þér kosti langtímaleigu á sixtlangtimaleiga.is. Einnig getur þú haft samband við
viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222 eða á vidskiptastjori@sixt.is
B
irt m
eð fyrirvara um
m
ynd- og textabrengl.
Innifalið í langtímaleigu:
Þjónustuskoðanir Tryggingar Hefðbundið viðhald Vetrardekk DekkjaskiptiBifreiðagjöld
(Tesla Model Y er væntanleg. Takmarkað magn.)
Tíminn er núna!
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Málþing fagráðs í lífrænum landbúnaði:
„Ég brenn fyrir góðum jarðvegi“
Gerald Dunst, ráðgjafi, frumkvöðull og eigandi fyrirtækisins Sonnenerde í Austurríki, var einn fyrirlesara á málþingi
fagráðs í lífrænum landbúnaði, sem haldið var á Sólheimum í Grímsnesi á dögunum. Fyrirtæki hans sérhæfir sig í
framleiðslu á mismunandi tegundum rotmassa eða jarðvegs ásamt lífkolum.
Hvað eru lífkol?
• Lífkol eru framleidd með því að
hita lífrænt efni í yfir 350 gráður
við súrefnislausar aðstæður
• Þau eru framleidd sérstaklega til
notkunar í jarðvegi
• Hægt er að búa til lífkol úr mörgum
mismunandi lífrænum hráefnum
(seyru, viði, eldhúsúrgangi o.fl.)
• Áhugi á lífkolum hefur aukist
undanfarin ár vegna getu þeirra
til þess að binda kolefni í jarðvegi
• Lífkol bætir vatnsbúskap og
dregur úr útskolun næringarefna
• Lífkol þarf að metta með næringar-
efnum fyrir dreifingu, til dæmis úr
mykju eða moltu
(Heimild: Cornelis Aart Mejles, ráðu
nautur Loftslagsvænn landbúnaður,
RML)
„Fyrir okkur er aðeins umhverfisvæn
nýting á auðlindum okkar skynsamleg
og það sem drífur mig áfram í allri
þessari vinnu er að skila jörðinni
betri til barnanna minna en ég tók
við henni,“ segir Gerald um leið
og hann kannar gæði jarðvegs í
gróðrarstöðinni Sunnu á Sólheimum.