Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 38

Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 Þann 2. mars síðastliðinn hélt fagráð í lífrænum landbúnaði málþing á Sólheimum í Grímsnesi þar sem áhersla var lögð á jarðvegslíf, jarðgerð og verðmætasköpun í lífrænni ræktun. Á málþinginu voru fjölmörg áhugaverð erindi en eitt af þeim var frá Austurríkismanninum Gerald Dunst, sem er ráðgjafi og frumkvöðull og jafnframt eigandi fyrirtækisins Sonnenerde í Austurríki. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu á mismunandi tegundum rotmassa eða jarðvegs ásamt lífkolum. „Kolefnisræktun (e. Carbon farming), eða endurnýjandi landbúnaður eins og ég kýs að kalla það, er eina leiðin til þess að hægt verði að framleiða matvæli fyrir heiminn í framtíðinni. Þar er frjósemi jarðvegs mikilvægasti hlutinn og ég predika hvar sem ég kem að bændur eigi að hætta að nota áburð en fara þess í stað að nota örverur því sú aðferð skilar jafngóðum niðurstöðum ef ekki betri,“ segir Gerald sem benti á í erindi sínu að um 25% bænda í Austurríki stunda lífræna ræktun og eftir sjö ár er því spáð að um 35% bænda verði komnir út í slíka búskaparhætti. Helgar lífið frjósömum jarðvegi Gerald var ungur að árum þegar hann fékk áhuga á jarðgerð og smátt og smátt ákvað hann að helga líf sitt því að framleiða hágæða rotmassa eða jarðveg. „Þegar ég var 14 ára gamall byrjaði ég að spá í rotmassann í heimagarði foreldra minna, ég sneri honum reglulega og lífið þar vakti svo sannarlega áhuga minn. Þar skynjaði ég hversu mikilvæg og flókin náttúruauðlind jarðvegur er og langaði að kanna hvernig hægt væri að nýta verðmæti hans. Síðar fór ég í garðyrkjuskóla í Vín og lærði mikilvægi þess að nota nitur í jarðvegi því vöxturinn bætist til muna með nýtingu þess,“ útskýrir Gerald og segir jafnframt: „Eftir árin í garðyrkjuskólanum fór ég í nám í lífvísindum í háskólanum í Vín og eftir eitt ár þar komst ég í starfsnám hjá bónda sem hafði framleitt rotmassa frá árinu 1985. Þar vann ég í fjóra mánuði og sá þar mjög frjósaman jarðveg, ég gróf niður 30-40 sentímetra í mjög dökkan jarðveg sem var fullur af mikilvægum næringarefnum og örverum. Þá vissi ég að það var nákvæmlega þetta sem ég vildi vinna að og þróa enn frekar.“ Í dag framleiðir fyrirtæki Geralds, Sonnenerde, þrjátíu tegundir af rotmassa sem nýttur er við mismunandi aðstæður. Sex mánuði tekur að þróa uppskrift að nýjum jarðvegi „Viðskiptavinir okkar koma úr öllum áttum, allt frá einstaklingum til fyrirtækja og síðan eru garðahönnuðir mjög áhugasamir um úrvalið hjá okkur. Við veitum ráðgjöf fyrir mismunandi aðstæður og margir viðskiptavina okkar eru mjög ánægðir með þá þjónustu að geta verslað vörur okkar á netinu og fá sent heim til sín,“ segir Gerald og bætir við: „Við erum í stöðugri þróun með uppskriftir að nýjum jarðvegi en það tekur yfirleitt um sex mánuði að þróa uppskrift og koma henni í framleiðslu. Mörg fyrirtæki í sambærilegri framleiðslu og við vilja einungis framleiða sem mest af úrgangi til að græða meiri pening en okkar hugmyndafræði er að framleiða bestu mögulegu gæði og við höfum hlotið ávinning af því. Það tók okkur þó sex ár að þróa Terra Petra, sem er talinn besti og frjósamasti jarðvegur í heimi. Þá er jarðvegurinn svartur og á upphaf sitt á Amazon-svæðinu í Suður- Ameríku. Það er mikið innihald af lífkolum í jarðveginum og því fær hann þennan lit en hátt næringargildi jarðvegsins kemur til af miklum styrk kola, örverulífs og lífrænna efna. Við framleiðum Terra Petra í miklu magni vegna vinsælda þess en fólk sem hefur kynnst þessari tegund jarðvegs velur hann fram yfir annan. Terra Petra er þrefalt dýrari en annar jarðvegur en það virðist ekki hindra viðskiptavini í að velja hann.“ Framleiða 200 tonn af lífkolum árlega Gerald situr ekki auðum höndum og er stöðugt að koma nýjum hugmyndum í framkvæmd. Hann hefur m.a. rekið lífkolaverksmiðju í rúm 10 ár og framleiðir um 200 tonn af hágæða lífkolum á hverju ári. „Lífkolin munu gegna lykilhlutverki í að draga úr kolefnislosun í andrúmsloftinu vegna eiginleika þeirra. Við framleiðum lífkolin með einstaklega háum hreinleika þar sem umhverfið er ekki mengað á nokkurn hátt því hráefnið kemur úr endurnýjanlegum lífmassa og við framleiðsluna kemur enginn reykur út, eingöngu hrein, hvít gufa. Við notum svæðisbundin hráefni í framleiðsluna sem er mikilvægur þáttur í gæða- og umhverfisstöðlum fyrirtækisins ásamt því að nota virðisauka svæðisins,“ útskýrir Gerald og segir jafnframt: „Við höfum þróað mikið af mismunandi vörum úr lífkolunum eins og til dæmis Terra Petra jarðveginn en lífkolin er hægt að nota á ólíkan hátt. Við framleiðum bætiefni fyrir húsdýr með lífkolunum og erum að þróa það sama fyrir fisk en það eru oft magavandræði hjá eldisfiskum sem lífkolin geta læknað. Einnig munum við þróa bætiefni úr lífkolum fyrir fólk en sjálfur neyti ég þess, í litlu magni, á hverjum degi og finn að það gerir magaflórunni mjög gott.“ Ávinningur fyrir bændur Frá árinu 2007 hefur Gerald starfrækt svokallað humus-verkefni á vistsvæðinu Kaindorf í Austurríki þar sem 400 bændur á fimm þúsund hektara svæði taka þátt. „Verkefnið snýst um það að bændur fá greitt fyrir að auka kolefni í jarðvegi í nýju þróuðu kolefnislánakerfi. Markmiðið er að efla vöxt á humus, næringarríku moldarefni, sem er lífrænn rotmassi og myndast náttúrulega í hvers konar jarðvegi í upprunalegu ástandi. Þetta er mikið tækifæri fyrir okkur gegn loftslagsbreytingum því með uppsöfnun á humus verður jarðvegurinn stöðugri og getur tekið í sig margfalt meira vatn og því er auðveldara að lifa af eftir þurrkatímabil sem dæmi,“ útskýrir Gerald og bætir við: „Við gerum samning við hvern og einn bónda sem samþykkir að þróa humus á landbúnaðarsvæði að eigin vali. Vanalega er það ræktað land og samningurinn nær til 5-7 ára í senn. Bændur hafa frjálsar hendur með hvernig þeir framkvæma þetta en við komum með ýmsar ráðleggingar inn í verkefnið sem snúa að gróðursetningu, jarðvinnslu án plægingar, fækkun efnaáburðar, notkun rotmassa og fleira. Verkefnið greiðir síðan bændunum árangursgjald fyrir bindingu á kolefnum sem fyrirtæki kaupa af fúsum og frjálsum vilja til að bæta upp fyrir losun sína. Þannig að ávinningur bændanna getur verið mikill og það hefur verið skemmtilegt að sjá áhrifin sem þetta hefur haft því sífellt bætast fleiri bændur við inn í verkefnið. Fyrir okkur er aðeins umhverfisvæn nýting á auðlindum okkar skynsamleg og það sem drífur mig áfram í allri þessari vinnu er að skila jörðinni betri til barnanna minna en ég tók við henni. Ég brenn fyrir góðum jarðvegi.“ AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA Komdu við í sýningarsalinn okkar að Krókhálsi 9 eða skoðaðu úrvalið og kynntu þér kosti langtímaleigu á sixtlangtimaleiga.is. Einnig getur þú haft samband við viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222 eða á vidskiptastjori@sixt.is B irt m eð fyrirvara um m ynd- og textabrengl. Innifalið í langtímaleigu: Þjónustuskoðanir Tryggingar Hefðbundið viðhald Vetrardekk DekkjaskiptiBifreiðagjöld (Tesla Model Y er væntanleg. Takmarkað magn.) Tíminn er núna! Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is Málþing fagráðs í lífrænum landbúnaði: „Ég brenn fyrir góðum jarðvegi“ Gerald Dunst, ráðgjafi, frumkvöðull og eigandi fyrirtækisins Sonnenerde í Austurríki, var einn fyrirlesara á málþingi fagráðs í lífrænum landbúnaði, sem haldið var á Sólheimum í Grímsnesi á dögunum. Fyrirtæki hans sérhæfir sig í framleiðslu á mismunandi tegundum rotmassa eða jarðvegs ásamt lífkolum. Hvað eru lífkol? • Lífkol eru framleidd með því að hita lífrænt efni í yfir 350 gráður við súrefnislausar aðstæður • Þau eru framleidd sérstaklega til notkunar í jarðvegi • Hægt er að búa til lífkol úr mörgum mismunandi lífrænum hráefnum (seyru, viði, eldhúsúrgangi o.fl.) • Áhugi á lífkolum hefur aukist undanfarin ár vegna getu þeirra til þess að binda kolefni í jarðvegi • Lífkol bætir vatnsbúskap og dregur úr útskolun næringarefna • Lífkol þarf að metta með næringar- efnum fyrir dreifingu, til dæmis úr mykju eða moltu (Heimild: Cornelis Aart Mejles, ráðu­ nautur Loftslagsvænn landbúnaður, RML) „Fyrir okkur er aðeins umhverfisvæn nýting á auðlindum okkar skynsamleg og það sem drífur mig áfram í allri þessari vinnu er að skila jörðinni betri til barnanna minna en ég tók við henni,“ segir Gerald um leið og hann kannar gæði jarðvegs í gróðrarstöðinni Sunnu á Sólheimum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.