Bændablaðið - 09.03.2023, Page 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Jarðir, lóðir og fasteignir
Ertu að fara í framkvæmdir, kaupa eða selja?
Við þekkjum þetta vel og aðstoðum í ferlinu.
Nánari upplýsingar:
viggo@landvit.is
Sími 824 5066
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Hótel Saga:
Skiptum á þrota-
búinu lokið
Með úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur, uppkveðnum
þann 22. september 2021,
var bú Hótel Sögu ehf., við
Hagatorgi í Reykjavík, tekið
til gjaldþrotaskipta. Skiptum
þrotabúsins lauk þann 28. febrúar
síðastliðinn
Áslaug Árnadóttir lögmaður,
skipuð skiptastjóri í þrotabúinu,
segir að strax við upphaf skipta hafi
legið ljóst fyrir að þrotabúið ætti þó
nokkuð af lausafjármunum.
Lýstar kröfur í búið námu
734.914.263 milljónum króna auk
áfallinna vaxta og kostnaðar eftir
úrskurðardag. Að sögn Áslaugar
voru samþykktar veðkröfur að
fjárhæð 36.752.543 milljónum króna
og voru þær greiddar að fullu. Auk
þess sem samþykktar forgangskröfur
að fjárhæð 73.043.026 milljónum
króna voru greiddar að fullu.
Upp í samþykktar almennar
kröfur að fjárhæð 625.118.694
milljónir króna voru greiddar
8.361.559 milljónir króna, eða um
1,33%.
„Lögð var mikil vinna í að
afla upplýsinga um eignirnar og
mögulegt verðmæti þeirra. Eignirnar
voru staðsettar í húsnæði hótelsins
við Hagatorg, en húsnæðið er
rúmlega 18.000 fermetrar.
Um var að ræða eldhústæki og
innréttingar í eldhús, húsgögn í um
235 hótelherbergjum auk húsgagna
í fundarherbergjum, á tveimur
veitingastöðum, í Súlnasal og í
almennum rýmum. Einnig voru stórir
kælar í húsinu, líkamsræktarsalur og
mikið af ýmiss konar húsbúnaði.“
Áslaug segir að sala á lausafé
hafi hafist í desember 2021 og lokið
vorið 2022.
„Fljótlega var ljóst að umfang
munanna var svo mikið að kaupa
þurfti aðstoð við söluna. Einnig
var keypt aðstoð við að farga þeim
lausafjármunum sem ekki var
mögulegt að selja og aðstoð við
tæmingu húsnæðisins.“ /VH
Eignirnar voru staðsettar í húsnæði hótelsins við Hagatorg, en húsnæðið
er rúmlega 18.000 fermetrar. Mynd / H.Kr
Áslaug Árnadóttir, lögmaður og
skiptastjóri í þrotabúi Hótel Sögu.
Mynd / Aðsend
Bændablaðið á
Instagram & Facebook