Bændablaðið - 09.03.2023, Side 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Límtréshús, bogahús
og færanlegar byggingar
Hýsi.is
Færanlegar byggingar
Bogahús
Límtréshús
Folaldasýning Sörla 18.mars !
Hin árlega og stórskemmtilega
folaldasýning Sörla verður haldin
laugardaginn 18.mars næstkomandi á
Sörlastöðum í Hafnarfirði.
Sýningin hefst kl.13 og dæmt verður í
flokki hestfolalda og merfolalda.
Efstu 5 folöldin í hverjum flokki keppa
til úrslita og folald sýningarinnar fær
Þjórsárbakkabikarinn glæsilega.
Sýningin hefst kl.13:00, í hléi verður
uppboð á frábærum folatollum og
veitingasala er á staðnum.
Folaldasýningin er opin öllum og
skráning fer fram í gegnum netfangið
topphross@gmail.com.
Vonumst til að sjá sem flesta !
Kynbótanefnd Sörla
Stjórn búgreinadeildar kjúklinga-
bænda situr óbreytt og að sögn
formannsins gekk fundurinn á
búgreinaþingi vel fyrir sig. Meðal
þess sem var rætt er innflutningur
á kjúklingakjöti og innri mál
greinarinnar.
Guðmundur Svavarsson, for-
maður búgreinadeildar kjúklinga-
bænda, segir að fundur kjúklinga-
bænda hafi gengið mjög vel. „Deildin
er fámenn og góð samstaða hjá
okkur. Við fórum yfir tollverndina,
dýraheilbrigði og önnur mál sem
snerta greinina.“
Innflutningur á kjúklingakjöti
„Mikill innflutningur á kjúklingakjöti
frá Úkraínu undanfarna mánuði kom
okkur í opna skjöldu og við höfum
talsverðar áhyggjur af því að kjötið
sé ekki af sömu gæðum og innlent
kjúklingakjöt. Samkvæmt því sem
ég hef heyrt er sýklalyfjanotkun í
landbúnaði mikil í landinu.
Bændasamtökin hafa sent
Matvælastofnun erindi þar sem
óskað er eftir upplýsingum um
hvernig staðið er að útgáfu á
heilbrigðisvottorðum fyrir inn-
flutninginn, hvaða vottorð hafi verið
gefin út og hvort kjötið komi frá
bændum, sláturhúsum og vinnslum
sem uppfylla sömu kröfur og gerðar
eru til slíkra aðila hér á landi.“
Innra starf
Kjúklingabændur fóru einnig
yfir innra starf greinarinnar á
fundinum og að sögn Guðmundar
eru félagsmenn spenntir að sjá
hvað kemur út úr endurskoðun á
félagsgjaldakerfi Bændasamtakanna.
„Bent hefur verið á að í dag er
lítill munur á þeim félagsgjöldum
sem þeir allra stærstu greiða og
þeim sem smærri og miðlungs
framleiðendur greiða. Áhugavert
verður að sjá hvað kemur út úr þeirri
umræðu á Búnaðarþingi.“
Óbreytt stjórn
Stjórn búgreinadeildar kjúklinga-
bænda situr óbreytt frá síðasta ári og
í henni eru Guðmundur Svavarsson
formaður, Eydís Rós Eyglóardóttir
og Jón Magnús Jónsson. /VH
Kjúklingabændur:
Mikill innflutningur frá
Úkraínu kom á óvart
Erla Gunnarsdóttir, starfsmaður BÍ, Guðmundur Svansson, formaður
búgreinadeildar kjúklingabænda og Eydís Rós Eyglóardóttir stjórnarmaður.
Hvað ertu
að suða
Finnska undrið í rafsuðunni.
Rafsuðuvélar, öryggisvörur
og suðuvír.
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 | 580 5800 | LANDVELAR.IS