Bændablaðið - 09.03.2023, Side 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Tillögurnar eru alls 31 og dreifast
á sjö málaflokka sem hver snýr að
tilteknum hluta virðiskeðju lífrænnar
matvælaframleiðslu og innviðum
þeirra. Áætlunin er liður í áherslum
ríkisstjórnarinnar sem birtast í
stjórnarsáttmálanum þar sem fram
kemur að tímasett áætlun til eflingar
lífrænnar framleiðslu sé lykilþáttur
í að auka sjálfbærni íslensks
landbúnaðar, þar sem eftirspurn
eftir vottuðum lífrænum vörum fari
vaxandi.
Sambærileg áætlun við
Norðurlöndin og ESB
Áætlunin styðst við sambærilega
stefnumótun annarra Norðurlanda
og Evrópusambandsins (ESB),
sem hafa sett sér markmið um
aukna hlutdeild lífrænna afurða,
bæði í landbúnaðarframleiðslu og
á neytendamarkaði. Því sé efling
lífrænnar framleiðslu á Íslandi
liður í að styrkja samkeppnisstöðu
landsins, auk þess sem lífrænar
aðferðir viðhalda líffræðilegum
fjölbreytileika í jarðvegi og eru hluti
hringrásarhagkerfisins.
Engar tölur til um
markaðshlutdeild á Íslandi
Í aðgerðaráætlun Environice kemur
fram að ESB hafi sett markmið um
að árið 2030 verði að minnsta kosti
25 prósent af öllu landbúnaðarlandi
innan sambandsins komið með
lífræna vottun og að þá hafi
jafnframt orðið veruleg aukning
í lífrænu lagareldi. Sérstök
aðgerðaráætlun var samþykkt vorið
2021 til að fylgja markmiðunum
eftir sem fól í sér þrjú undirmarkmið;
örva eftirspurn og tryggja traust
neytenda, styðja við aðlögun og
styrkja alla virðiskeðjuna og stuðla
að því að lífrænn landbúnaður skapi
fordæmi, þar með talið með því að
bæta framlag lífræns landbúnaðar
til umhverfislegrar sjálfbærni.
Í bakgrunnsupplýsingum
fyrir aðgerðaráætlunina kemur
fram að árið 2020 hafi 3,4
prósent af landbúnaðarlandi
Evrópusambandsins verið komið
með lífræna vottun og að í 15 löndum
sambandsins hafi hlutfallið verið
hærra en tíu prósent. Á heimsvísu
hafi hlutfallið verið 1,6 prósent.
Almennt hafi eftirspurn eftir
lífrænt vottuðum vörum farið
vaxandi og hafi heildarveltan í
greininni numið 121 milljarði
evra á heimsvísu árið 2020. Það
ár hafi markaðshlutdeild þessara
vara verið hæst í Danmörku af
Evrópusambandslöndunum, um
13 prósent, en Sviss og Austurríki
komu þar næst á eftir með um tíu
prósent. Engar tölur eru til á Íslandi
um hlutdeild þessara vara.
Efling lífrænnar matvælaframleiðslu á Íslandi
– Gæti haft í för með sér fjölda jákvæðra áhrifaþátta á náttúru og samfélag
Í byrjun þessa árs skilaði ráðgjafarfyrirtækið Environice tillögum til
matvælaráðherra að aðgerðaráætlun til eflingar lífrænnar framleiðslu á
Íslandi. Fram til þessa hefur Ísland ekki sett sér markmið um hlutfall lífræns
vottaðs lands af landbúnaðarlandi né um markaðshlutdeild lífrænnar vöru,
ólíkt flestum öðrum Evrópuþjóðum. Environice leggur til að stefnt verði
að því að árið 2030 verði tíu prósent af landbúnaðarlandi á Íslandi orðið
lífrænt vottað. Árið 2020 var það hlutfall 0,3 prósent, aðeins Grænland er
neðar á lista landa innan Evrópska efnahagssvæðisins með núll prósent.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Í DEIGLUNNI
Tillögurnar 31 skipt niður á efnisflokkana sjö
1. Aðlögunar- og rekstrarstyrkir
1.1. Heildarendurskoðun reglugerða
Ráðist verður í heildarendurskoðun
á ákvæðum reglugerða sem gilt hafa
um stuðning við lífræna framleiðslu,
einkum reglugerðar um stuðning við
garðyrkju nr. 1273/2020 og reglugerðar
um almennan stuðning við landbúnað
nr. 430/2021. Markmiðið með
endurskoðuninni er að reglugerðirnar
endurspegli nýtt fyrirkomulag (sjá
aðgerðir 1.2-1.7 hér að neðan) og geri
það sem aðgengilegast.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið
1.2. Aðlögunarsamningar
Í stað núverandi aðlögunar styrkja
verði boðið upp á sjö ára aðlögunar-
samninga við framleiðendur sem
hyggjast hefja lífræna framleiðslu. Á
grundvelli þessara samninga verði
veittir styrkir yfir tveggja til þriggja
ára tímabil til að mæta kostnaði nýrra
framleiðenda vegna lögbundinnar
aðlögunar að lífrænni framleiðslu
undir eftirliti vottunarstofu, þ.m.t.
kostnaði vegna breytinga á húsakosti,
endurnýjunar tækjabúnaðar, endur-
ræktunar, lækkunar tekna vegna
minni framleiðslu, efnagreininga,
námskeiða, ráðgjafar, skýrslugerðar
og fyrstu úttekta vottunarstofu.
Samningar miðist við að vottun
fáist að þessum tíma liðnum og að
eftir það verði veittir áframhaldandi
styrkir til loka samningstímans til
að standa undir kostnaði vegna
lækkunar tekna, námskeiða, ráðgjafar,
skýrslugerðar, úttekta og vottana.
Fjárhæðir miðist við að á þessum síðari
hluta samningstímans standi styrkir
að öllu leyti undir fimm síðasttöldu
kostnaðarliðunum, allt að tiltekinni
hámarksupphæð fyrir hvern lið.
Framleiðendum sem þegar hafa
hafið aðlögun eða fengið vottun á
síðustu árum verði einnig boðnir
aðlögunarsamningar þar til sjö ár
eru liðin frá því að aðlögun þeirra
hófst, þá með þeim hætti að sá
aðlögunarstuðningur sem þeir hafa
þegar notið komi til frádráttar. Í öllum
aðlögunarsamningum verði ákvæði
um riftun og uppgjör ef framleiðandi
ákveður að hætta í aðlögunarferli
eða endurnýja ekki vottun á
samningstímanum.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í
samvinnu við Bændasamtök Íslands
1.3. Fjárfestinga- og tækjastyrkir
Auk styrkja skv. aðlögunarsamningum
(sbr. aðgerð 1.2) verði samningshöfum,
sem og öðrum framleiðendum með
lífræna vottun, boðnir sérstakir
fjárfestinga- og tækjastyrkir til kaupa
á sérhæfðum búnaði sem stuðlar að
aukinni framlegð og bættri nýtingu
lífræns áburðar, svo sem til kaupa
á róbótum, niðurfellingarbúnaði
til áburðardreifingar, tækjum til
safnhaugagerðar o.fl.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við Bændasamtök Íslands
1.4. Styrkir vegna
flutninga á aðföngum
Auk styrkja skv. aðlögunarsamningum
(sbr. aðgerð 1.2) verði samningshöfum
boðnir sérstakir styrkir til að greiða
flutning á lífrænum áburði frá aðilum
utan búsins, t.d. sem nemur kostnaði
vegna allt að tveggja 20 tonna bílfarma
á ári.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við Bændasamtök Íslands
1.5. Sérstakur stuðningur
við hóp vottun
Sérstakir að lögunar samningar verði
boðnir framleiðendum sem uppfylla
skilyrði reglugerða um hópvottun.6
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við Bændasamtök Íslands
1.6. Sérstakur stuðningur
við afurðastöðvar
Sérstakir styrkir verði boðnir
afurðastöðvum til að mæta kostnaði
vegna lífrænnar vottunar. Ábyrgð:
Matvælaráðuneytið í samvinnu við
Matvælastofnun
1.7. Álag á almennar
suðningsgreiðslur
Við endurskoðun búvörusamninga
verði gert ráð fyrir að lífrænum
framleiðendum verði greitt sérstakt
álag á almennar stuðningsgreiðslur
með vísun til jákvæðra áhrifa
framleiðslunnar á almannagæði (sjá
skýringar).
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við Bændasamtök Íslands
2. Aðföng
2.1. Úttekt á nýtingu matarleifa og
annars lífræns efnis til áburðar eða
fóðurs
Lokið verði við yfirstandandi greiningar
á mögulegri framleiðslu á áburði og
fóðri sem uppfyllir skilyrði reglugerða
um aðföng í lífrænni framleiðslu, bætt
við frekari greiningum ef ástæða þykir
til og í framhaldinu tekin ákvörðun um
stuðning við lífræna áburðarvinnslu.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við Matís og RML
3. Rannsóknir, kennsla, ráðgjöf,
nýsköpun og vöruþróun
3.1. Grunnnámskeið um lífræna
framleiðslu
Gerður verði sérstakur samningur
við Landbúnaðarháskóla Íslands um
skyldunámskeið um lífræna framleiðslu
við upphaf háskólanáms við skólann.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í
samvinnu við háskóla-, iðnaðar- og ný-
sköpunar ráðuneytið
3.2. Prófessorsstaða við
Land búnaðar háskóla Íslands
Stofnuð verði staða prófessors
á sviði lífrænnar framleiðslu við
Landbúnaðarháskóla Íslands
og staðan mönnuð sérfræðingi
sem uppfyllir hæfniskröfur.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í
samvinnu við háskóla-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðuneytið
3.3. Efling rannsókna og kennslu við
Landbúnaðarháskóla Íslands
Tiltekinni lágmarksprósentu af fram-
lögum til rann sókna í land búnaði verði
varið til rannsókna á sviði lífrænnar
framleiðslu við Landbúnaðarháskóla
Íslands undir stjórn prófessors við
skólann (sbr. aðgerð 3.2). Jafnframt verði
stutt sérstaklega við þátttöku skólans
í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum
á sviði lífrænnar ræktunar, þ.m.t.
verkefnum um kolefnisbúskap og
líffræðilega fjölbreytni í efstu lögum
jarðvegs.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í
samvinnu við háskóla-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðuneytið
3.4. Námsbraut um
lífræna framleiðslu
Í framhaldi af stofnun prófessorsstöðu
(sbr. aðgerð 3.2) verði komið á sérstakri
námsbraut um lífræna framleiðslu á
háskólastigi við Landbúnaðarháskóla
Íslands. Þannig verði námsframboð
skólans á þessu sviði aukið og
aðgangur framleiðenda og annarra að
endurmenntun bættur.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í
samvinnu við háskóla-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðuneytið
3.5. Bætt aðstaða til rannsókna
Sérstöku fjármagni verði varið til
uppbyggingar á aðstöðu til rannsókna
og verklegrar kennslu í lífrænni ræktun
við íslenska háskóla, vegna rannsókna í
búfjárrækt, jarðrækt, útiræktun, ylrækt,
fiskeldi og áburðarframleiðslu.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í
samvinnu við háskóla-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðuneytið
3.6. Bætt aðstaða til verklegrar
kennslu Sérstöku fjármagni verði
varið til uppbyggingar og lagfæringa
á aðstöðu til verklegrar kennslu í
lífrænni ræktun við Garðyrkjuskólann á
Reykjum / Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við mennta- og barnamálaráðuneytið
3.7. Efling ráðgjafar fyrir lífræna
framleiðendur Gerður verði
nokkurra ára samningur (7 ár til að
byrja með) við Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins (RML) um fast árlegt
framlag til uppbyggingar þekkingar
sem nýtist í ráðunautaþjónustu
og annarri ráðgjöf til lífrænna
framleiðenda, þ.m.t. ráðgjafar
um ræktun, fóðrun, búfjárhald,
markaðs- og kynningarstarf, lög,
reglur, umsóknarferli og skýrsluhald.
Í samningnum verði sérstakt ákvæði
um að framleiðendur sem hafa
hug á að hefja lífræna ræktun geti
fengið heimsókn ráðgjafa sem gera
myndi lauslega úttekt á möguleikum
viðkomandi býlis til að hefja lífræna
ræktun og benda á atriði sem
þarfnast breytinga til að svo geti
orðið. Í samningnum verði ákvæði
um árleg skil skýrslu með ítarlegum
upplýsingum um ráðstöfun framlagsins
á nýliðnu ári.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við Bændasamtök Íslands
3.8. Stuðningur vegna erlendra
samskipta Boðnir verði sérstakir
styrkir til að auðvelda heimsóknir
erlendra sérfræðinga og kynnisferðir
framleiðenda til að fræðast um lífrænar
aðferðir og tækni í nágrannalöndum.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við Bændasamtök Íslands
3.9. Stuðningur við nýsköpun og
vöruþróun Árlega verði úthlutað
sérstökum styrkjum úr Matvælasjóði til
að styðja við nýsköpun og vöruþróun í
lífrænni framleiðslu.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í
samvinnu við háskóla-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðuneytið
3.10. Stuðningur við rannsóknir
og þróun vegna lífræns fiskeldis
Tiltekinni lágmarksprósentu af styrkjum
úr Fiskeldis sjóði og Um hverfis sjóði
sjókvíaeldis verði beint til verkefna á
sviði lífræns lagareldis.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið
4. Opinber innkaup
4.1 Lífrænt vottaðar vörur í
innkaupastefnu Stefna ríkisins um
opinber innkaup verði endurskoðuð
með það að leiðarljósi að innkaup á
lífrænt vottuðum vörum og vörum
úr nærumhverfi fái aukið vægi, svo
sem með ákvæðum um tiltekið
lágmarkshlutfall lífrænnar vöru í
innkaupunum og um innra verðmat
sem tryggir lífrænum vörum og
vörum úr nærumhverfi tiltekið forskot
í verðsamanburði. Í þessu sambandi
verði sett töluleg markmið um hlutdeild
lífrænnar vöru í innkaupunum og
sérstaklega hugað að innkaupum
fyrir mötuneyti á vegum ríkisins.
Jafnframt verði leitað eftir samstarfi
við Samband íslenskra sveitarfélaga
varðandi hvatningu til sveitarfélaga um
sambærilega markmiðssetningu og
áherslur við innkaup.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við fjármála- og efnahagsráðuneytið,
Ríkiskaup og Samband íslenskra
sveitarfélaga
4.2 Lífrænt vottaðar vörur í „Grænum
skrefum“
Gátlistar „Grænna skrefa“ í ríkisrekstri
verði endurskoðaðir með það að
leiðarljósi að innkaup og framboð á
lífrænt vottuðum vörum og vörum úr
nærumhverfi fái aukið vægi.
Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu
við umhverfis-, orku og loftslags-
ráðuneytið og Umhverfisstofnun
Biobú er eina lífrænt vottaða mjólkurvinnsla landsins. Mynd / smh
Einn atkvæðamesti framleiðandi lífrænt vottaðrar matvöru er Móðir Jörð í Vallanesi. Mynd / smh