Bændablaðið - 09.03.2023, Side 54

Bændablaðið - 09.03.2023, Side 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS Verið er að leggja lokahönd á skýrslu vegna þátttökuársins 2022 og verður hún aðgengileg á heimasíðu RML nú í mars. Meginmarkmiðið með verkefninu hefur alltaf verið það að bændur fái heildstæða greiningu á sínum rekstri svo að þeir sjái styrkleika og veikleika í eigin rekstri. Árið 2021 er fyrsta rekstrarárið þar sem bændur, sem voru með í verkefninu frá upphafi, gátu nýtt sér rekstrargreininguna til að stýra sínum rekstri með hliðsjón af niðurstöðunum. Því er mjög ánægjulegt að sjá, þegar gerður er samanburður á rekstrarárunum 2019-2021, að víða hafa orðið jákvæð umskipti í búrekstri hjá þátttökubúunum. Með verkefninu varð til rekstrargrunnur sem nýtist við afkomuvöktun og hagsmunagæslu í greininni. Hér eru birtar helstu niðurstöður úr verkefninu. Um er að ræða samanburð á sömu 154 búunum fyrir öll árin og eru niðurstöður reiknaðar út frá beinum meðaltölum búanna. Fjöldi og stærð þátttökubúa Í byrjun voru 90 kúabú með í verkefninu en á síðasta ári voru þau orðin 154. Heildar mjólkurframleiðsla þessara 154 búa var um 38% af heildarinnleggi mjólkur á rekstrarárinu 2021. Bústærð og afurðasemi þátttökubúanna er heldur meiri en hjá meðalbúinu. Þannig var fjöldi árskúa að jafnaði um 59 árskýr á árinu 2021 á meðan landsmeðaltalið var um 50 árskýr. Afurðasemin er jafnframt heldur meiri, eða að jafnaði um 300 ltr eftir hverja árskú. Framlegð búa Þegar horft er á þróun í fram- legðarstigi afurðatekna hefur það lækkað á tímabilinu, fer úr 53,5% árið 2019 niður í 51,8% árið 2021. Afurðatekjur hafa aukist en hafa ekki náð að halda í við hlutfallslega hækkun á aðföngum og aðkeyptri þjónustu. Eins og kemur fram í töflu 1 um afurðatekjur og breytilegan kostnað er mikill breytileiki á milli búa. Meðalhagnaður af heildarrekstri búanna eykst aftur á móti á tímabilinu og var kominn í 1.400 þúsund krónur árið 2021. Áhrif bústærðar á framlegðarstig og afkomu Bústærðin hefur verið að aukast að jafnaði um 1 árskú á ári. Út frá gögnum er þó erfitt að sjá mikla stærðarhagkvæmni í rekstri eftir að bústærð er komin yfir 50 árskýr. Ef reiknuð er út fylgni á milli framlegðarstigs afurðatekna og fjölda árskúa kemur í ljós að sambandið er mjög lítið (sjá mynd 1). Aukin bústærð hefur aftur á móti háa jákvæða fylgni (r=0,80) við heildar EBITDA en skilgreining á EBITDA er rekstrarafgangur bús fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta. Aukin bústærð hefur mjög jákvæð áhrif á fjárfestingagetu búanna. Aukin skuldsetning og þær fjármögnunarleiðir sem hafa verið í boði við framkvæmdir hefur þó leitt til þess að fyrirhugaður hagrænn ávinningur í rekstrarafkomu hefur oft tapast með auknum fjármagnskostnaði. Einnig hefur aukin skuldsetning haft neikvæð áhrif á launagreiðslugetu úr rekstri, sbr. mynd 2 um laun og skuldahlutfall. Þar er um að ræða meðaltal búa fyrir árin 2019-2021. Eðlilegt er að gera þá kröfu til framleiðsluumhverfisins að bættur aðbúnaður gripa skili sér ekki í lægri launum til bænda. Áhrif afurðasemi á framleiðslukostnað Helstu tækifæri kúabænda liggja í aukinni afurðasemi og lægri breytilegum kostnaði á lítra. Byggingarkostnaður íslenskra fjósa er mjög hár og fjárbinding mjög mikil. Því er mikilvægt að ná góðri framleiðslunýtingu á hvern bás. Einnig er það mikilvægt til að lækka sótspor framleiðslunnar. Í raun hefur hluti framleiðslustuðningsins virkað öfugt á þessi markmið sbr. gripagreiðslur á mjólkurkýr. Einnig hefur fyrirkomulag á viðskiptum og fjármögnun á greiðslumarki víða hamlað hagræðingu í greininni með tilliti til bættrar nýtingar á framleiðslugripum og framleiðsluaðstöðu.. Eins og kemur fram á mynd 3 um afurðasemi og framleiðslukostnað lækkar breytilegi kostnaðurinn að meðaltali með aukinni afurðasemi. Fjöldi á bak við hverja súlu er 32-33 bú nema í afurðahæsta flokknum en þar eru 24 bú á bak við niðurstöðuna. Búin með afurðasemi 5.500-6.000 ltr eru með hæsta hlutfallið (40%) af fjölda innlagðra geldneyta af árskúm, sem gerir það að verkum að afurðatekjurnar eru þar að reiknast hæstar. Hlutfall innlagðra geldneyta er svipað á milli hinna flokkanna en meðaltalið í gagnasafninu er 31,1%. Afurðahæsti flokkurinn framleiðir svo mestu mjólkina umfram greiðslumark (9%), sem er stærsta skýringin á að afurðaverðið er þar lægst. Skuldir Heildarskuldir búanna aukast á tímabilinu og eru að jafnaði tæplega 122 milljónir króna í lok árs 2021 (sjá töflu 2). Fjármagnskostnaður, sem hlutfall af heildarveltu, hefur þó farið lækkandi. Það skýrist af tveimur meginþáttum. Í fyrsta lagi fór vaxtastig heldur niður á tímabilinu. Miðað við hvernig árið 2022 þróaðist, með hækkandi stýrivöxtum og aukinni verðbólgu, er þó ljóst að allt önnur sviðsmynd verður fyrir það ár. Önnur meginskýring á hlut- fallslega lækkandi fjármagns- kostnaði er síðan aukin velta á búunum. Þar er þó ákveðið áhyggjuefni að afurðatekjur hafa verið að lækka sem hlutfall af heildartekjum af rekstri og þá sérstaklega hjá skuldsettari búunum. Að lokum Ef reynt er að rýna í þróun ársins 2022 virðist sem hækkanir á afurðastöðvarverði mjólkur hafi náð að fylgja býsna vel eftir hækkunum á aðföngum og þjónustu. Sömu sögu er þó ekki hægt að segja um vaxtakostnaðinn og því hafa rekstrarskilyrði skuldsettra búa versnað til muna. Eins og áður hefur komið fram í þessari grein mun það því með beinum eða óbeinum hætti hafa áhrif á laun bænda. Því er mikilvægt að ljúka vinnu við endurskoðun á verðlagsgrundvelli sem fyrst. Vegna mikillar fjármagnsbindingar í rekstri hefur greinin jafnframt mikla þörf fyrir aðgengi að þolinmóðu fjármagni. Stefnt er á að flýta uppgjöri verkefnisins fyrir árið 2022 og birta milliuppgjör í vor til að meta nánar stöðu greinarinnar. Kristján Ó. Eymundsson og María S. Jónsdóttir, ráðunautar á rekstrar- og umhverfissviði RML. Rekstrarverkefni kúabúa María Svanþrúður Jónsdóttir. Kristján Ó. Eymundsson. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur staðið fyrir rekstrarverkefni meðal kúabænda í ein þrjú ár. Viðbrögð þeirra við þessu verkefni hafa verið vonum framar en þátttakan hefur aukist mikið frá upphafi – á meðan starfandi kúabúum hefur farið fækkandi á landsvísu. 16 4, 4 81 ,5 15 5, 316 6, 6 80 ,2 14 7, 116 2, 7 79 ,4 13 8, 4 16 1, 4 75 ,8 13 0, 7 15 7 74 ,2 12 7 50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 160 170 180 190 200 Afurðatekjur samtals Breytilegur kostnaður alls Framleiðslukostnaður án afskrifta og fjármagnsliða Kr ón ur á in nv eg in n lít ra Samhengi á milli afurðasemi (ltr/árskú) og framleiðslukostnaðar árið 2021 < 5.500 ltr 5.500-6.000 ltr 6.000-6.500 ltr 6.500-7.000 ltr 7.000+ ltr 20% 25% 30% 35% 40% 45% 50% 55% 60% 65% 70% 75% 0 25 50 75 100 125 150 175 200 225 Fr am le gð ar st ig a fu rð at ek na Fjöldi árskúa Samband framlegðarstigs og bústærðar árið 2021 r = -0,014 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 0 0,5 1 1,5 2 2,5 3 3,5 4 4,5 5 La un o g la un at en gd g jö ld , k r/ ltr . Skuldahlutfall Samband launa og skuldahlutfalls r = -0,245 Tafla 1. Mynd 1. Mynd 2. Mynd 3.Tafla 2.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.