Bændablaðið - 09.03.2023, Page 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Verið er að leggja lokahönd á
skýrslu vegna þátttökuársins 2022 og
verður hún aðgengileg á heimasíðu
RML nú í mars. Meginmarkmiðið
með verkefninu hefur alltaf verið
það að bændur fái heildstæða
greiningu á sínum rekstri svo að
þeir sjái styrkleika og veikleika í
eigin rekstri. Árið 2021 er fyrsta
rekstrarárið þar sem bændur, sem
voru með í verkefninu frá upphafi,
gátu nýtt sér rekstrargreininguna til
að stýra sínum rekstri með hliðsjón
af niðurstöðunum. Því er mjög
ánægjulegt að sjá, þegar gerður
er samanburður á rekstrarárunum
2019-2021, að víða hafa orðið
jákvæð umskipti í búrekstri hjá
þátttökubúunum.
Með verkefninu varð til
rekstrargrunnur sem nýtist við
afkomuvöktun og hagsmunagæslu
í greininni. Hér eru birtar helstu
niðurstöður úr verkefninu. Um
er að ræða samanburð á sömu
154 búunum fyrir öll árin og eru
niðurstöður reiknaðar út frá beinum
meðaltölum búanna.
Fjöldi og stærð þátttökubúa
Í byrjun voru 90 kúabú með
í verkefninu en á síðasta ári
voru þau orðin 154. Heildar
mjólkurframleiðsla þessara 154
búa var um 38% af heildarinnleggi
mjólkur á rekstrarárinu 2021. Bústærð
og afurðasemi þátttökubúanna er
heldur meiri en hjá meðalbúinu.
Þannig var fjöldi árskúa að jafnaði
um 59 árskýr á árinu 2021 á meðan
landsmeðaltalið var um 50 árskýr.
Afurðasemin er jafnframt heldur
meiri, eða að jafnaði um 300 ltr eftir
hverja árskú.
Framlegð búa
Þegar horft er á þróun í fram-
legðarstigi afurðatekna hefur það
lækkað á tímabilinu, fer úr 53,5%
árið 2019 niður í 51,8% árið 2021.
Afurðatekjur hafa aukist en hafa
ekki náð að halda í við hlutfallslega
hækkun á aðföngum og aðkeyptri
þjónustu.
Eins og kemur fram í töflu 1 um
afurðatekjur og breytilegan kostnað
er mikill breytileiki á milli búa.
Meðalhagnaður af heildarrekstri
búanna eykst aftur á móti á
tímabilinu og var kominn í 1.400
þúsund krónur árið 2021.
Áhrif bústærðar á
framlegðarstig og afkomu
Bústærðin hefur verið að aukast
að jafnaði um 1 árskú á ári. Út
frá gögnum er þó erfitt að sjá
mikla stærðarhagkvæmni í rekstri
eftir að bústærð er komin yfir 50
árskýr. Ef reiknuð er út fylgni á
milli framlegðarstigs afurðatekna
og fjölda árskúa kemur í ljós að
sambandið er mjög lítið (sjá mynd
1). Aukin bústærð hefur aftur á
móti háa jákvæða fylgni (r=0,80)
við heildar EBITDA en skilgreining
á EBITDA er rekstrarafgangur bús
fyrir fjármagnsliði, afskriftir og
skatta.
Aukin bústærð hefur mjög jákvæð
áhrif á fjárfestingagetu búanna.
Aukin skuldsetning og þær
fjármögnunarleiðir sem hafa verið í
boði við framkvæmdir hefur þó leitt
til þess að fyrirhugaður hagrænn
ávinningur í rekstrarafkomu
hefur oft tapast með auknum
fjármagnskostnaði. Einnig hefur
aukin skuldsetning haft neikvæð
áhrif á launagreiðslugetu úr
rekstri, sbr. mynd 2 um laun og
skuldahlutfall. Þar er um að ræða
meðaltal búa fyrir árin 2019-2021.
Eðlilegt er að gera þá kröfu til
framleiðsluumhverfisins að bættur
aðbúnaður gripa skili sér ekki í
lægri launum til bænda.
Áhrif afurðasemi á
framleiðslukostnað
Helstu tækifæri kúabænda liggja
í aukinni afurðasemi og lægri
breytilegum kostnaði á lítra.
Byggingarkostnaður íslenskra
fjósa er mjög hár og fjárbinding
mjög mikil. Því er mikilvægt
að ná góðri framleiðslunýtingu
á hvern bás. Einnig er það
mikilvægt til að lækka sótspor
framleiðslunnar. Í raun hefur
hluti framleiðslustuðningsins
virkað öfugt á þessi markmið sbr.
gripagreiðslur á mjólkurkýr. Einnig
hefur fyrirkomulag á viðskiptum
og fjármögnun á greiðslumarki
víða hamlað hagræðingu í
greininni með tilliti til bættrar
nýtingar á framleiðslugripum og
framleiðsluaðstöðu..
Eins og kemur fram á mynd 3 um
afurðasemi og framleiðslukostnað
lækkar breytilegi kostnaðurinn að
meðaltali með aukinni afurðasemi.
Fjöldi á bak við hverja súlu er 32-33
bú nema í afurðahæsta flokknum en
þar eru 24 bú á bak við niðurstöðuna.
Búin með afurðasemi 5.500-6.000
ltr eru með hæsta hlutfallið (40%)
af fjölda innlagðra geldneyta af
árskúm, sem gerir það að verkum að
afurðatekjurnar eru þar að reiknast
hæstar. Hlutfall innlagðra geldneyta
er svipað á milli hinna flokkanna
en meðaltalið í gagnasafninu er
31,1%. Afurðahæsti flokkurinn
framleiðir svo mestu mjólkina
umfram greiðslumark (9%), sem er
stærsta skýringin á að afurðaverðið
er þar lægst.
Skuldir
Heildarskuldir búanna aukast á
tímabilinu og eru að jafnaði tæplega
122 milljónir króna í lok árs 2021
(sjá töflu 2). Fjármagnskostnaður,
sem hlutfall af heildarveltu, hefur
þó farið lækkandi. Það skýrist af
tveimur meginþáttum. Í fyrsta
lagi fór vaxtastig heldur niður á
tímabilinu. Miðað við hvernig
árið 2022 þróaðist, með hækkandi
stýrivöxtum og aukinni verðbólgu,
er þó ljóst að allt önnur sviðsmynd
verður fyrir það ár.
Önnur meginskýring á hlut-
fallslega lækkandi fjármagns-
kostnaði er síðan aukin velta
á búunum. Þar er þó ákveðið
áhyggjuefni að afurðatekjur
hafa verið að lækka sem hlutfall
af heildartekjum af rekstri og
þá sérstaklega hjá skuldsettari
búunum.
Að lokum
Ef reynt er að rýna í þróun ársins
2022 virðist sem hækkanir á
afurðastöðvarverði mjólkur hafi náð
að fylgja býsna vel eftir hækkunum
á aðföngum og þjónustu. Sömu
sögu er þó ekki hægt að segja
um vaxtakostnaðinn og því hafa
rekstrarskilyrði skuldsettra búa
versnað til muna.
Eins og áður hefur komið fram
í þessari grein mun það því með
beinum eða óbeinum hætti hafa
áhrif á laun bænda. Því er mikilvægt
að ljúka vinnu við endurskoðun á
verðlagsgrundvelli sem fyrst. Vegna
mikillar fjármagnsbindingar í
rekstri hefur greinin jafnframt mikla
þörf fyrir aðgengi að þolinmóðu
fjármagni.
Stefnt er á að flýta uppgjöri
verkefnisins fyrir árið 2022 og birta
milliuppgjör í vor til að meta nánar
stöðu greinarinnar.
Kristján Ó. Eymundsson og
María S. Jónsdóttir,
ráðunautar á rekstrar- og
umhverfissviði RML.
Rekstrarverkefni kúabúa
María Svanþrúður
Jónsdóttir.
Kristján Ó.
Eymundsson.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur staðið fyrir rekstrarverkefni
meðal kúabænda í ein þrjú ár. Viðbrögð þeirra við þessu verkefni hafa
verið vonum framar en þátttakan hefur aukist mikið frá upphafi –
á meðan starfandi kúabúum hefur farið fækkandi á landsvísu.
16
4,
4
81
,5
15
5,
316
6,
6
80
,2
14
7,
116
2,
7
79
,4
13
8,
4
16
1,
4
75
,8
13
0,
7
15
7
74
,2
12
7
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
160
170
180
190
200
Afurðatekjur samtals Breytilegur kostnaður alls Framleiðslukostnaður án
afskrifta og fjármagnsliða
Kr
ón
ur
á
in
nv
eg
in
n
lít
ra
Samhengi á milli afurðasemi (ltr/árskú) og
framleiðslukostnaðar árið 2021
< 5.500 ltr 5.500-6.000 ltr 6.000-6.500 ltr 6.500-7.000 ltr 7.000+ ltr
20%
25%
30%
35%
40%
45%
50%
55%
60%
65%
70%
75%
0 25 50 75 100 125 150 175 200 225
Fr
am
le
gð
ar
st
ig
a
fu
rð
at
ek
na
Fjöldi árskúa
Samband framlegðarstigs og bústærðar árið 2021
r = -0,014
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
0 0,5 1 1,5 2 2,5 3 3,5 4 4,5 5
La
un
o
g
la
un
at
en
gd
g
jö
ld
, k
r/
ltr
.
Skuldahlutfall
Samband launa og skuldahlutfalls
r = -0,245
Tafla 1.
Mynd 1.
Mynd 2.
Mynd 3.Tafla 2.