Bændablaðið - 09.03.2023, Side 62

Bændablaðið - 09.03.2023, Side 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 Undanfarna þrjá áratugi hefur hinn breski vinnuvélaframleiðandi JCB framleitt dráttarvélar með óhefðbundinni nálgun. Bændablaðið tók til prufu nýjustu útgáfu JCB Fastrac 4220 iCON, sem er með fullkomnara hemla- og fjöðrunarkerfi en aðrir framleiðendur bjóða. Þetta er stór dráttarvél með miklum búnaði sem keppir við John Deere 6R og Fendt 724 – jafnvel Unimog. Útlit JCB Fastrac er ólíkt öðrum dráttarvélum og er skemmtilegt að sjá framleiðanda taka nálgun ólíka meginstraumnum. Hér er ökumannshúsið staðsett fyrir miðju vélarinnar og eru allir hjólbarðarnir af sömu stærð. Frá upphafi hefur ætlun JCB verið að framleiða dráttarvél sem kemst hratt og vísar nafnið til þess (e. fast tractor). Fulltrúar JCB segja að í upphafi hafi Fastrac fengið orðstír fyrir að vera betri á malbiki en í mold, en með nýjustu útgáfunum hafi framleiðandinn lagt kapp á að gera dráttarvél sem er jafnvíg á báðum sviðum. Fastrac dráttarvélin er sér á báti að því leyti að vera með diskabremsur á öllum hjólum og ABS hemlakerfi af sama styrkleika og í vörubílum. Þetta hemlakerfi er nauðsynlegt, því hámarks ökuhraðinn á vélinni í þessum prufuakstri var 60 km/klst., en stærri útgáfa Fastrac kemst upp í 70 km/klst. Dráttarvélin er byggð á grind og er enginn burður í gegnum vélarblokk, eins og tíðkast oft. Mótorinn skilar 218 hestöflum og er frá Sisu – sama framleiðanda og framleiðir margar vélar í Valtra. Skiptingin er stiglaus og er úr smiðju AGCO samsteypunnar, sem framleiðir m.a. Valtra, Fendt og Massey Ferguson dráttarvélar. Stjórnborð afar fullkomið Ytra útlit Fastrac hefur ekki tekið breytingum í nokkur ár, en þegar stigið er upp í vélina blasa við miklar uppfærslur á stjórnborðinu, sem er á pari við það besta á markaðnum. Allar stillingar eru í gegnum notendavænan LCD snertiskjá og stýrikerfi sem JCB eyddi 32.000 vinnustundum í að þróa. Í gegnum skjáinn er hægt að breyta virkni flestra hnappanna, gera aðgerðaraðir, stilla aksturshraða o.fl. o.fl. Þrír stjórnpinnar eru á stjórnborðinu. Einn fyrir ámoksturstækin, annar til að stjórna aukabúnaði og þriðji til að stjórna aksturshraða. Pinninn fyrir ámoksturstækin er fastur, en þumallinn stýrir hreyfingu tækjanna með hnúði efst á pinnanum – svona eins og á PlayStation fjarstýringu. Rúmgott ökumannshúsið gefur pláss fyrir farþegasæti í fullri stærð. Vökvaskiptingin er einföld í notkun. Ökumaðurinn velur akstursstefnu með vendigír og vélin hreyfist ekki fyrr en stigið er á fótstigið eða stjórnpinna ýtt fram. Hægt er að hafa snúningshraða vélarinnar óháðan aksturshraða – og öfugt. Fjöðrun í sérflokki Þegar ekið er af stað finnst að Fastrac er alveg einstök dráttarvél. Margir betri traktorar eru með fjaðrandi framöxul, en Fastrac er líklega sú eina sem er með fjöðrun á báðum öxlum. Þetta er engin venjuleg fjöðrun, heldur vökvafjöðrun (e. hydropneumatic suspension) sem vinnur á sama hátt og fjöðrunarkerfið í Citroën forðum daga – en auðvitað talsvert sterkbyggðara en í fólksbílunum frönsku. Þar sem aðrar dráttarvélar eru með fastan afturöxul, hreyfist ökumannshúsið mikið eftir ójöfnum í undirlaginu. Því er mjög sérstök upplifun að þjóta yfir skökk ristahlið og djúpar holur án þess að kastast til. Við þetta bætist ökumannssæti á dúnamjúkri loftpúðafjöðrun sem fullkomnar dempunina. Því er JCB Fastrac líklega margfalt þægilegra ökutæki en Range Rover ef aka á hratt yfir mjög ójafnt undirlag. JCB ætti að senda traktorinn í Dakar rallið! Vökvafjöðrunin aðlagast aðstæðum og þyngdarmismun á milli hjóla sem gerir þyngdarklossa að framan óþarfa í flestum tilfellum. Fjöðrunin heldur vélinni mjög stöðugri og þrátt fyrir að farið sé geysihratt í beygju með ámoksturstækin í efstu stöðu fær ökumaðurinn ekki það á tilfinninguna að vélin ætli að fara um koll. Ólíkt öðrum traktorum fjaðrar húsið ekki neitt, enda óþarft. Staðsetning ökumannshússins gefur möguleika á að setja aukahluti eða þyngdarklossa á stallinn aftan við húsið, án þess að teppa þrítengið aftast. Þökk sé vökvafjöðruninni er hægt að lækka vélina til að koma búnaði fyrir á stallinum. Gott útsýni er í allar áttir, sérstaklega niður með hliðunum. Beint útsýni að dráttarkróknum teppist vegna stöðu hússins, en JCB hefur komið fyrir myndavél sem bætir úr því. Fjórhjólastýri Beygjur eru á öllum hjólum sem hægt er að beita á nokkra vegu. Með aðstoð GPS er hægt að láta báða öxlana vinna saman að því að lágmarka skörun og helgidaga við áburðardreifingu. Einnig er hægt að halda réttri akstursstefnu þegar ekið er í miklum hliðarhalla. Við þröngar aðstæður eykur fjórhjólastýri lipurleika til muna, en þegar ekið er yfir 20 km/klst. réttast afturhjólin sjálfkrafa, en virkjast aftur þegar ferðin er hægð á ný. Þetta er fjölhæf vél sem er jafnvíg á vinnu úti á túni sem og á vagnadrátt á miklum hraða úti á þjóðvegum. Þyngd vélarinnar er 8,5 tonn og samkvæmt fulltrúa JCB takmarkast dráttargetan einungis af reglugerðum um heildarþunga ökutækja. Niðurstaða JCB Fastrac er dráttarvél engu lík. Öflugt fjöðrunarkerfi og hár hámarkshraði ættu að vera eiginleikar sem verktakar og bændur sem vinna á stóru svæði ættu að sækjast eftir. Einnig hafa þær reynst vel í snjómokstur á Norðurlöndunum. Hjá Vélfangi kostar Fastrac 4220 iCON frá 26.300.000 krónum án vsk. en sú sem tekin var fyrir í þessum prufuakstri kostar 33.500.000 krónur án vsk. miðað við gengi EUR 150. VÉLABÁSINN Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – JCB Fastrac fer hratt yfir JCB Fastrac 4210 iCON er dráttarvél með mikla sérstöðu bæði hvað varðar útbúnað og útlit. Þökk sé vökvafjöðrun á öllum hjólum líður vélin yfir ójöfnur og helst mjög stöðug á mikilli ferð. Myndir / ÁL Ökumannshúsið er rúmgott og fullyrða starfsmenn JCB að farþegasætið sé það stærsta á markaðnum. Diskabremsur eru á öllum hjólum og ABS hemlakerfi gefa möguleika á 60 kílómetra hámarkshraða. Því ræður Fastrac vel við vagnadrátt á þjóðvegum. Stjórnborð á pari við þau bestu sem bjóðast. Allar stillingar fara í gegnum stóran snertiskjá. Útsýnið fram úr vélinni er afar sambærilegt því sem er í öðrum dráttarvélum.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.