Bændablaðið - 09.03.2023, Síða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Undanfarna þrjá áratugi hefur
hinn breski vinnuvélaframleiðandi
JCB framleitt dráttarvélar með
óhefðbundinni nálgun.
Bændablaðið tók til prufu nýjustu
útgáfu JCB Fastrac 4220 iCON,
sem er með fullkomnara hemla- og
fjöðrunarkerfi en aðrir framleiðendur
bjóða. Þetta er stór dráttarvél með
miklum búnaði sem keppir við
John Deere 6R og Fendt 724 –
jafnvel Unimog.
Útlit JCB Fastrac er ólíkt öðrum
dráttarvélum og er skemmtilegt
að sjá framleiðanda taka nálgun
ólíka meginstraumnum. Hér er
ökumannshúsið staðsett fyrir miðju
vélarinnar og eru allir hjólbarðarnir af
sömu stærð. Frá upphafi hefur ætlun
JCB verið að framleiða dráttarvél
sem kemst hratt og vísar nafnið til
þess (e. fast tractor). Fulltrúar JCB
segja að í upphafi hafi Fastrac fengið
orðstír fyrir að vera betri á malbiki
en í mold, en með nýjustu útgáfunum
hafi framleiðandinn lagt kapp á
að gera dráttarvél sem er jafnvíg á
báðum sviðum.
Fastrac dráttarvélin er sér á báti að
því leyti að vera með diskabremsur
á öllum hjólum og ABS hemlakerfi
af sama styrkleika og í vörubílum.
Þetta hemlakerfi er nauðsynlegt, því
hámarks ökuhraðinn á vélinni í þessum
prufuakstri var 60 km/klst., en stærri
útgáfa Fastrac kemst upp í 70 km/klst.
Dráttarvélin er byggð á grind og er
enginn burður í gegnum vélarblokk,
eins og tíðkast oft. Mótorinn skilar
218 hestöflum og er frá Sisu – sama
framleiðanda og framleiðir margar
vélar í Valtra. Skiptingin er stiglaus
og er úr smiðju AGCO samsteypunnar,
sem framleiðir m.a. Valtra, Fendt og
Massey Ferguson dráttarvélar.
Stjórnborð afar fullkomið
Ytra útlit Fastrac hefur ekki tekið
breytingum í nokkur ár, en þegar
stigið er upp í vélina blasa við miklar
uppfærslur á stjórnborðinu, sem er
á pari við það besta á markaðnum.
Allar stillingar eru í gegnum
notendavænan LCD snertiskjá og
stýrikerfi sem JCB eyddi 32.000
vinnustundum í að þróa. Í gegnum
skjáinn er hægt að breyta virkni
flestra hnappanna, gera aðgerðaraðir,
stilla aksturshraða o.fl. o.fl. Þrír
stjórnpinnar eru á stjórnborðinu.
Einn fyrir ámoksturstækin, annar
til að stjórna aukabúnaði og þriðji
til að stjórna aksturshraða. Pinninn
fyrir ámoksturstækin er fastur, en
þumallinn stýrir hreyfingu tækjanna
með hnúði efst á pinnanum – svona
eins og á PlayStation fjarstýringu.
Rúmgott ökumannshúsið gefur pláss
fyrir farþegasæti í fullri stærð.
Vökvaskiptingin er einföld
í notkun. Ökumaðurinn velur
akstursstefnu með vendigír og
vélin hreyfist ekki fyrr en stigið er
á fótstigið eða stjórnpinna ýtt fram.
Hægt er að hafa snúningshraða
vélarinnar óháðan aksturshraða –
og öfugt.
Fjöðrun í sérflokki
Þegar ekið er af stað finnst að Fastrac
er alveg einstök dráttarvél. Margir
betri traktorar eru með fjaðrandi
framöxul, en Fastrac er líklega sú eina
sem er með fjöðrun á báðum öxlum.
Þetta er engin venjuleg fjöðrun, heldur
vökvafjöðrun (e. hydropneumatic
suspension) sem vinnur á sama hátt og
fjöðrunarkerfið í Citroën forðum daga
– en auðvitað talsvert sterkbyggðara
en í fólksbílunum frönsku.
Þar sem aðrar dráttarvélar eru
með fastan afturöxul, hreyfist
ökumannshúsið mikið eftir ójöfnum
í undirlaginu. Því er mjög sérstök
upplifun að þjóta yfir skökk ristahlið
og djúpar holur án þess að kastast
til. Við þetta bætist ökumannssæti
á dúnamjúkri loftpúðafjöðrun sem
fullkomnar dempunina. Því er JCB
Fastrac líklega margfalt þægilegra
ökutæki en Range Rover ef aka á hratt
yfir mjög ójafnt undirlag. JCB ætti að
senda traktorinn í Dakar rallið!
Vökvafjöðrunin aðlagast aðstæðum
og þyngdarmismun á milli hjóla sem
gerir þyngdarklossa að framan óþarfa
í flestum tilfellum. Fjöðrunin heldur
vélinni mjög stöðugri og þrátt fyrir
að farið sé geysihratt í beygju með
ámoksturstækin í efstu stöðu fær
ökumaðurinn ekki það á tilfinninguna
að vélin ætli að fara um koll. Ólíkt
öðrum traktorum fjaðrar húsið ekki
neitt, enda óþarft.
Staðsetning ökumannshússins
gefur möguleika á að setja aukahluti
eða þyngdarklossa á stallinn aftan
við húsið, án þess að teppa þrítengið
aftast. Þökk sé vökvafjöðruninni er
hægt að lækka vélina til að koma
búnaði fyrir á stallinum. Gott útsýni
er í allar áttir, sérstaklega niður
með hliðunum. Beint útsýni að
dráttarkróknum teppist vegna stöðu
hússins, en JCB hefur komið fyrir
myndavél sem bætir úr því.
Fjórhjólastýri
Beygjur eru á öllum hjólum sem hægt
er að beita á nokkra vegu. Með aðstoð
GPS er hægt að láta báða öxlana vinna
saman að því að lágmarka skörun og
helgidaga við áburðardreifingu. Einnig
er hægt að halda réttri akstursstefnu
þegar ekið er í miklum hliðarhalla.
Við þröngar aðstæður eykur
fjórhjólastýri lipurleika til muna, en
þegar ekið er yfir 20 km/klst. réttast
afturhjólin sjálfkrafa, en virkjast aftur
þegar ferðin er hægð á ný.
Þetta er fjölhæf vél sem er jafnvíg
á vinnu úti á túni sem og á vagnadrátt
á miklum hraða úti á þjóðvegum.
Þyngd vélarinnar er 8,5 tonn og
samkvæmt fulltrúa JCB takmarkast
dráttargetan einungis af reglugerðum
um heildarþunga ökutækja.
Niðurstaða
JCB Fastrac er dráttarvél engu
lík. Öflugt fjöðrunarkerfi og hár
hámarkshraði ættu að vera eiginleikar
sem verktakar og bændur sem
vinna á stóru svæði ættu að sækjast
eftir. Einnig hafa þær reynst vel í
snjómokstur á Norðurlöndunum.
Hjá Vélfangi kostar Fastrac 4220
iCON frá 26.300.000 krónum án vsk.
en sú sem tekin var fyrir í þessum
prufuakstri kostar 33.500.000 krónur
án vsk. miðað við gengi EUR 150.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– JCB Fastrac fer hratt yfir
JCB Fastrac 4210 iCON er dráttarvél með mikla sérstöðu bæði hvað varðar útbúnað og útlit. Þökk sé vökvafjöðrun á öllum hjólum líður vélin yfir ójöfnur
og helst mjög stöðug á mikilli ferð. Myndir / ÁL
Ökumannshúsið er rúmgott og fullyrða starfsmenn JCB að farþegasætið
sé það stærsta á markaðnum.
Diskabremsur eru á öllum hjólum og ABS hemlakerfi gefa möguleika á 60
kílómetra hámarkshraða. Því ræður Fastrac vel við vagnadrátt á þjóðvegum.
Stjórnborð á pari við þau bestu sem bjóðast. Allar stillingar fara í gegnum
stóran snertiskjá.
Útsýnið fram úr vélinni er afar sambærilegt því sem er í öðrum dráttarvélum.