Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 64

Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 Í tilefni af því að alifuglarækt er búin að slá við sauðkindinni sem mest framleidda kjötafurð landsins er gráupplagt að skella í klassískan miðvikudagskjúklingapottrétt. Eins og í alla miðvikudags- pottrétti er um að gera að nýta allt það grænmetið sem varð undir í baráttunni að komast sem meðlæti með sunnudagssteikinni. Brokkolí, blómkál, grænkál, næpur, hnúðkál, rauðrófur, gulrætur, sellerí og jafn vel spínat er allt velkomið út í pottinn. Góðu fréttirnar eru svo að af því að það er miðvikudagur nennum við ekki að vaska upp nema í mesta lagi pönnu og kannski einn pott. En slæmu fréttirnar eru að það er mikilvægt að pannan sé ekki með „teflon“ húð. Við viljum að kjötið festist örlítið við botninn til að búa til brúnt bragð, fond eða skófir eða hvað við viljum kalla það. Hasar í einni pönnu Það er skemmtilegt að blanda bæði dökku lærkjöti og hvítu bringukjöti saman til að rétturinn verði ekki of einsleitur. Kjarnafjölskyldustærð væri sirka svona: Fjögur læri og heil bringa. Skera niður í munnbitastærð, gott að hafa bringubitana örlítið stærri en þá af lærunum. Þannig haldast þeir ljósu safaríkir og þeir dökku verða örlítið stökkari sem gefur réttinum skemmtilega áferð. Bitarnir eru settir í heita olíuborna pönnu. Passa að hafa bara eitt lag af kjúklingabitum í botninum á pönnunni. Þannig má hún ekki vera af minnstu gerð fyrir þetta magn. Þarna á kjúklingurinn einmitt að festast örlítið við botninn og fá fallegan brúnan lit. Þegar óttinn um að herlegheitin fari úr brúnum yfir í svart og allt byrji að brenna er um að gera að hræra svolítið í og bæta söxuðu grænmeti við. Allt nema hvítlaukurinn fer hér út í. Ef þarf að bæta við af olíu svo ekkert brenni fer matskeið eða svo af henni út í með grænfóðrinu. Hér er góður tími til þess að krydda. Pipar, smá salt (ekki of mikið), lauk- og hvítlauksduft sem og þurrkuð steinselja er ágætis byrjun. En allt þetta klassíska er í boði líka: Paprika, chiliduft og allar blöndurnar; Herbes de provence, Best á kjúllann og hvað þetta allt heitir á allt við á miðvikudögum. Þegar grænmetið er byrjað að mýkjast og gefa frá sér smá vökva sem byrjar að losa fondinn af botninum er hvítlaukur kreistur út í. Gott að setja með honum klípu af smjöri. Þegar hann byrjar að ilma eftir nokkrar sekúndur er komið að því að að losa restina af þessu botnfasta. Tvær gusur af hvítvíni, bjór eða bara vatni ef ekkert er búsið. Skrapa botninn vel. Þegar vökvinn hefur mestallur gufað upp er tveimur matskeiðum hæfilega fullum sáldrað yfir allt saman og hrært örlítið í. Því næst er einum og hálfum desilítra af vatni eða soði, hvort heldur sem er beinaoð eða bara brimsalt teningasoð, hellt út í. Þá hálfur desilítri af mjólk og hræra vel saman. Malla í nokkra stund, fimmtán mínútur eða svo. Smakka til með salti og meira af krydderíi ef það vantar. Bera fram með soðnum grjónum eða kartöflumús – og þá helst úr pakka. Við fáum að líta inn hjá þeim Heiðrúnu og Pétri og gefum þeim orðið: Við kaupum býli og rekstur árið 2014 af föður Heiðrúnar, Eymundi Þórarinssyni, og tókum við bæði hrossa- og nautgriparækt sem við höfum haldið áfram með. Saurbær hefur verið í fjölskyldu Heiðrúnar síðan fyrir aldamót 1900 og er Heiðrún 5. ættliður sem tekur við. Býli: Saurbær. Staðsett í sveit: Fyrrum Lýtingsstaðahreppi, Skagafirði. Ábúendur: Heiðrún Ósk Eymundsdóttir og Pétur Örn Sveinsson. Fjölskyldustærð: Við hjónin, Árdís Hekla, 5 ára og Halldóra, Sól 2 ára. Hundurinn Lýra og kisurnar Snotra og Rósa. Stærð jarðar: Tæpir 250 hektarar, þar af 47 hektarar ræktað land. Gerð bús: Hrossarækt og nautgriparækt. Hryssur og unghross í hagagöngu og uppeldi. Tökum hross í tamningu, þjálfun og sinnum reiðkennslu. Erum með íbúð í leigu fyrir ferðaþjónustu. Fjöldi búfjár: Hrossin okkar eru ca 60. Rúmlega 20 holdakýr, tæplega 20 naut í uppeldi. 10 kindur. Hefðbundinn vinnudagur: Hann getur oft verið óhefðbundinn! En svona venjulega þá er gefið í hesthúsinu milli 7-7:30. Svo er morgunmatur og annað okkar keyrir dæturnar í leikskóla í Varmahlíð. Svo hefst vinnan í hesthúsinu við að þjálfa hestana og öllu sem því tilheyrir. Hirt er um naut og kýr í fjósinu kvölds og morgna. Útigangi gefið, lagað það sem þarf að laga. Reiðkennslu sinnt og íbúðin græjuð ef það á við. Dagurinn getur annars verið mismunandi milli árstíða. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin: Skemmtilegast er að þjálfa góða hesta, taka á móti heilbrigðu ungviði og heyskapur í góðu veðri og allt virkar. Það er allt skemmtilegt þegar það gengur vel. Leiðinlegast eru veikindi og bilanir af öllu tagi. Búskapurinn eftir 5 ár: Ná betri árangri í því sem við erum að gera og frekari uppbygging eigi sér stað á bænum. Ísskápurinn: Mjólk, ostur, smjör. Vinsælasti maturinn á heimilinu: Nautalund með öllu tilheyrandi, úr eigin ræktun að sjálfsögðu, hjá okkur fullorðna fólkinu, en hjá dætrunum er það sjálfsagt grjónagrautur og slátur. Eftirminnilegasta atvikið: Það eru mörg eftirminnileg atvik sem koma upp hugann. Ef við nefnum frá síðasta ári, þá komst hestur frá okkur, hann Hlekkur frá Saurbæ, í úrslit í feiknasterkum A-flokki á Landsmóti, en Pétur sýndi hestinn og hefur þjálfað og byggt hann upp. Einnig áttum við 8. þyngsta nautið yfir landið í fyrra. BÆRINN OKKAR MATARKRÓKURINN Haraldur Jónasson haradlur@gmail.com Hversdagslegur kjúklingur Saurbær Pétur Örn og Hlekkur frá Saurbæ á Landsmóti í sumar. Nautið Aladín, undan Draumi við störf í sumar. Tveir rúmlega þrítugir teknir til kostanna. Fjölskyldan á Saurbæ. Miðvikudagsalifugl Kjúklingur: Fjögur læri + ein bringa Sellerí: Einn stöngull Gulrætur: Tvær sæmilegar Laukur: Einn lítill Brokkolí: Eitt tré eða svo Hvítlaukur: Tvö-þrjú rif Vatn: Einn og hálfur dl Mjólk: Hálfur dl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.