Bændablaðið - 09.03.2023, Síða 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Eyrugla er nýlegur landnemi hérna á Íslandi. Hún var áður reglulegur gestur en upp úr aldamótum finnast ungar og með því staðfest fyrsta varp eyruglu á Íslandi. Fyrst um sinn var ekki fylgst að neinu ráði
með því hvernig landnámið þróaðist. En um og upp úr 2010 var gert átak í að fylgjast betur með hvernig landnáminu miðaði. Eyrugla er skógarfugl og í þeim löndum sem hún þekkist er hún þekkt fyrir að nýta
sér hreiður annarra fugla sem gera sér hreiður í trjám. Hér á Íslandi eru mest lágreistir skógar og lítið um aðra stóra fugla sem gera sér hreiður sem eyruglan getur nýtt sér. Það er því líklegt að hérna verpi þær
mest á jörðinni. Öfgar í veðráttu og lítill fjölbreytileiki í fæðuframboði gerir Ísland nokkuð krefjandi fyrir landnema eins og uglu sem verpir einungis einu sinni á ári. Ef varp misferst er líklegt að það verði ekki
reynt aftur fyrr en að ári liðnu. Nú er áætlað að hér séu um 15-20 pör. Það virðist því vera að hægt og rólega fjölgi pörum þótt varpstofninn sé vissulega enn þá mjög lítill. Eyruglan á eina náskylda frænku sem
er brandugla og vel þekktur varpfugl um allt land. Þær geta reynst nokkuð líkar og ekki óalgengt að þeim sé ruglað saman. Eyruglan hefur þessi stóru einkennandi fjaðureyru sem hún dregur nafnið sitt af en
branduglan hefur líka fjaðureyru, bara mun minni. Það sem tekur af allan vafa eru síðan þessi stóru appelsínugulu augu eyruglunnar á meðan branduglan hefur gul augu. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
FRÆÐSLA
Svo virðist sem litagleðin sé
allsráðandi í tískuheiminum,
en meðal þess sem var á
toppnum á tískuvikunni
nýverið er bæði gult,
bleikt, gull og loðið.
Nýyfirstaðin tísku
vika hausts 2023
(fyrir þá sem vilja
hafa vaðið fyrir neðan
sig) bauð upp á ýmis
skemmtilegheit en
frá Milan sýndi m.a.
Gucci skærbleika
loðfeldi, silfurdress
og aðra gleði.
Tískuvikan í
London var að sama
skapi skrautleg
og kom sígilda
merkið Burberry
skemmtilega á óvart.
Löngum þekkt fyrir
klassíska jarðartóna
skörtuðu nú módel
þess skærum bleikum,
gulum og bláum litum
enda hafði hönnuður
línunnar, Daníel Lee,
bæði farið offari í
litatryllingi auk þess að
hafa blásið upp hið köflótta
staðalmynstur Burberry.
Útkoman kom þó skemmtilega
á óvart og ekki annað hægt að
segja en litadýrðin sem nú tröllríður
merkinu muni ekki fara framhjá
neinum. Daníel Lee hefur áður
hrist upp í hlutunum á svipaðan
hátt, en einhverjir muna e.t.v.
eftir tvisti hans á hönnun
undir merkjum Bottega
Veneta fyrir nokkrum
árum. Bottega Veneta
er vel þekkt, m.a.
fyrir staðalhönnun
sína á töskum, þar
sem efnið er fléttað
saman. Með það í
huga útfærði Daníel
fatnað þar sem fléttað
mynstrið lék stærstan
þátt í því sem gladdi
augað. Hann leikur
nú sama leik undir
merkjum Burberry
og er útkoman afar
áhugaverð.
H a f a f l e i r i
tískuveldi tekið þá
ákvörðun að litadýrðin
verði allsráðandi í
haustlínum sínum og
áhugavert að leita þar fanga.
Að minnsta kosti geta þeir
sem langþreyttir eru orðnir á
drapplitum tónum, sem oft ráða
ríkjum á þeim tíma árs, sett upp
sparibrosið og látið sig hlakka til
haustsins.
Í bland við litadýrðina er gull
áberandi og hafa gullstígvél skotið
upp kollinum vítt og breitt um lendur
tískunnar nýverið. Það er því enginn
maður með mönnum nema að verða
sér úti um a.m.k. eitt slíkt par svona
fyrir haustið, en gylltir fylgihlutir
eru einnig, eða verða, hæstmóðins er
nær dregur hausti. Nú er bara um að
gera að fara að leita sér fanga fyrir
þessa skemmtilegu árstíð sem fram
undan er – grafa upp gyllta fylgi
hluti og pússa gyllta skartið.
Athuga svo hvort einhvers staðar
leynist ekki litríkir gervipelsar
sem má bursta rykið af.
Annars fyrir þá sem hata
liti þá má alltaf grípa í svart.
Góðar stundir. /SP
Tíska:
Litríkt og lokkandi
Gucci haust '23 hér, fyrstu tvö módelin talin frá vinstri, svo uppblásið mynstur hönnuðar Burberry. Til hliðar má sjá hina margumræddu tösku Bottega Veneta, en sami hönnuður vann með það
mynstur á árum áður. Svo má ekki gleyma staðalútbúnaði haustsins, gullstígvélunum.