Heilbrigt líf - 01.06.1941, Síða 5
FORMALI
Rauði Kross íslands ræðst nú í að gefa út tímarit um heilsu-
vernd og heilbrigðismál. Flest blöð og tímarit hafa að vísu staðið
honum opin á vinsamleg-asta hátt til birtingar fræðslugreina um
heilbrigðismál. En ástæður til útgáfunnar eru þessar:
í fyrsta lagi er það gert til að bæta úr þeirri brýnu þörf fyrir
almenning að eiga aðgang að alþýðlegu tímariti, sem eingöngu helg-
ar sig heilsuvernd og heilbrigðismálum. Þar er alger eyða fyrir í
okkar árlegu bókmenntum frá upphafi vega, að undanskildu tíma-
ritinu Eir, sem kom út í 2 ár um aldamótin síðustu, og var þá vel
fagnað. Gerði Eir vafalaust nokkuð gagn, þótt skammlíf yrði.
í öðru lag'i er erfitt fyrir almenning að átta sig á greinum um
heilbrigðismál, dieifðum í blöðum og tímaritum, misjafnlega til-
orðnum og frágengnum, teygðum, styttum eða úrklipptum allt eftir
því, sem góðfús ritstjóri telur sjer kleift að birta fyrir samræmis
sr.kir. Tímaritin eiga hægara um hönd með þetta, en fá geta miðlað
svo miklu rúmi að verulegt gagn sje að, enda hafa þau önnur
sjónarmið um lesendaval heldur en heilbrigðismál, þótt mörg taki
grein um slíkt við og við til að auka vinsældir sínar.
I þriðja lagi hefir undanfarið gengið alda um löndin til endurskoð-
unar á lifnaðarháttum þjóðanna. Er það fyrir forgöngu sjerstakr-
ar deildar þjóðabandalagsins í Genf, í samstarfi við Alþjóða Rauða
Krossinn. Fara nú fram víðtækar rannsóknir á mataræði og lifnað-
arháttum margra þjóða —■ og það jafnvel þeirra, sem taldar eru
standa á háu menningarstigi eins og t. d. Svíþjóð. Það er ekki heldur
nein ákærurannsókn á hendur þessara þjóða, heldur sannprófun og
gagnrýnisrannsókn á gildi mataræðis og lifnaðarhátta menningar-
þjóðanna í ljósi nýjustu vísindalegrar þekkingar, sem vitanlega get-
ur leitt til mikilla umbóta á ýmsum sviðum.
Rauði Kross íslands hefir góða aðstöðu til að fylgjast vel með
þessum málum, og hann vill ekki setja ljós sitt undir mæliker, held-
ur láta almenning fylgjast vel með í þeim heilbrig'ðismálarann-
Heilbrigt líf
3