Heilbrigt líf - 01.06.1941, Qupperneq 37
Eins og menn sjá, eiga börn að baða sig við hátt raka-
stig, þegar hitamælarnir sýna + 1°—3° mismun. Það
reynir minnst á hjarta og nýru og veldur vægri svita-
starfsemi. Fullorðnir geta leyft sjer meira. Þó ættu
þeir að halda sjer innan „bestu“ takmarka og fara ekki
að jafnaði yfir 9° mismun á mælunum, sem gerir 59 %
raka, og alls ekki yfir 14° mismun, sem gerir 40% raka,
enda þótt fílhraustir sjeu og þjálfaðir í baði.
Af þessu sjá menn, að rakamælir er mesta þarfaþing.
Með öruggri aðstoð hans ætti hver og einn að finna fljót-
lega það rakastig, sem honum hentar, og er þá ekki að
efast um árangurinn.
V. Sjerhver íslendingur á að geta notið baðs.
Hjer að framan hefir verið reynt að gera grein fyrir
miklu máli í fáum orðum: 1) að gera grein fyrir baðsið
þjóðarinnar í fornöld, og hvernig hann dó út og gleymd-
ist. 2) að benda á misfellurnar á þeim einhliða baðsið, sem
við höfum tekið upp í nýbyggingum; með vatnsveitu,
vatnslögn og miðstöðvarhitun sem grundvallarskilyrðum,
er heimtað hellulagt baðherbergi, með dýru og stóru
innmúruðu baðkeri og öðrum dýrum áhöldum. 3) að gera
grein fyrir frumatriðum hins finnska baðsiðar, sem raun-
ar er aðeins eðlilega þroskuð mynd af okkar forna baðsið,
og loks, 4) hvernig allir þeir til sjávar og sveita, sem fara
á mis við hinar dýru kerlaugar, gætu með finnska bað-
siðnum og með nýjustu tækni, fengið margvíslega mögu-
leika til þess að fá miklu betra bað, þar eð vatnsveita,
heitavatnslögn og hellur eru þá ekkert grundvallar-
skilyrði, vatnsþörf lítil og áhöld öll eru miklu ódýrari
en í venjulegu baðherbergi. Loks er baðið með öruggum
rakamæli, losað við allar ágiskanir og fálm, svo að hver
maður getur auðveldlega notað baðið tilsagnarlaust,
fullkomlega öruggur, ekki aðeins um heilsufarslegan
Heilbrigt líf
35