Heilbrigt líf - 01.06.1941, Blaðsíða 66
með starfsemi frjálsra fjelagssamtaka, heldur en með
skipulagsbundinni starfsemi sjálfs ríkisvaldsins, og geta
til þess legið margar ástæður. Á þetta ekki hvað síst við
um heilsuverndina. Heilsuverndin nær því aðeins tilgangi
sínum, að takast megi að vekja áhuga og ná samstarfi alls
fjöldans. Má til sanns vegar færa, að hver einstaklingur
verði sjálfur að annast heilsuvernd fyrir sig, því að eng-
um verður í þessu efni hjálpað að gagni, nema hann hjálpi
sér sjálfur. Reynslan þykir nú hafa sýnt, að auðveldara sje
að vekja áhuga almennings á þessum málum á vegum al-
mennra f jelagssamtaka, heldur en með skipulagðri starf-
semi ríkisvaldsins eingöngu.
Rauði Kross Islands var stofnaður 1924, sem deild úr
Alþjóða R. Kr., og hóf starf í sama anda. Á síðari árum
hefir meðal forráðamanna hans vaknað áhugi fyrir því að
hefja víðtæka heilsuverndarstarfsemi, og hefir þegar ver-
ið aðhafst nokkuð því til undirbúnings.
Hjer er mikið starf framundan og áríðandi, að vel fari
úr hendi, ef árangur á að svara fyrirhöfn og kostnaði. Þess
er þá fyrst að gæta, að lítil reynsla er um tilhögun slíkrar
starfsemi hjer á landi, en hinsvegar fyrirsjáanlegt, að ekki
dugar að þræða um of eftir erlendum fyrirmyndum. Mun
því best að byrja í smáum stíl og reyna fyrir sjer, finna á
þann hátt þá tilhögun, sem best hentar fyrir okkar stað-
hætti.
Vafalaust mun nú margur spyrja, hvort nokkur þörf
sje á að stofna til umfangsmikillar heilsuverndarstarfsemi
hjer á landi. Við höfum komist vel af án hennar hingað
til, og stöndum þó í fremstu röð um heilbrigðishætti, a.
m. k. eftir þeim mælikvarða, sem oft er notaður í þessu
efni, sem sje dánartölum.
Því verður ekki heldur neitað, að mjög miklar fram-
farir hafa orðið í heilbrigðismálum þjóðarinnar frá því á
64
Heilbrigt líf