Heilbrigt líf - 01.06.1941, Side 80
Annars er vert að geta þess, að U. R. K. hafa allstaðar
góða samvinnu við önnur æskulýðsfjelög, t. d. skátafjelög,
barnastúkur, ungmennafjelög.
Einn þáttur í starfi U. R. K. er útgáfa barnablaða. Unga
ísland er málgagn U. R. K. L, gefið út af miðstjórninni.
Ungliðarnir eru þó ekki skyldir að kaupa blaðið. Það er
algerlega frjálst, enda gildir eigi um það sú regla, að ekki
megi fá aura fyrir það hjá foreldrunum. En blaðið flytur
auðvitað ýmiskonar efni, sem ungliðana varðar, t. d. heil-
brigðisleikrit, frásagnir um starf ungliðanna hjer og er-
lendis o. s. frv.
Starfið hjer er annars alveg í byrjun eins og fyrr er
sagt. Nálægt 30 deildir hafa verið stofnaðar með nálega
800 börnum. En þess er fastlega vænst, að kennarar og
foreldrar hjer taki þessari fjelagshreyfingu vel, eins og
gert hefir verið allstaðar annarstaðar, þar sem ungliða-
deildir R. K. hafa verið stofnaðar. Jeg lít svo á, að hjer
sje um svo merkan þátt uppeldis- og kennslumálanna að
ræða, að það sje blátt áfram siðferðileg skylda hvers ein-
asta barnakennara, að kynna sjer þetta mál rækilega,
enda treysti jeg íslenskum kennurum til hins besta í þess-
um efnum, og er þess einnig að vænta, að læknar, foreldr-
ar og aðrir áhugamenn láti ekki sinn hlut eftir liggja.
Miðstjórn U. R. K. I. veitir fúslega allar nauðsynlegar
upplýsingar.
Jeg hefi í erindi þessu einkum lagt áherslu á uppeldis-
gildi ungliðastarfsins, enda þótt sjá megi af því, sem að
framan er sagt, að ungliðarnir vinna víða mikilsvert starf
í baráttu við sjúkdóma og óhreinlæti. Þá er ekki síður um
það vert, að ungliðastarfið er vitanlega hinn gagnlegasti
skóli til undirbúnings Rauða Kross starfinu sjálfu. Sumir
virðast reyndar líta smáum augum á hlutverk Rauða
Krossins hjer á landi. En sú skoðun er á miklum misskiln-
78
Heilbrigt líf