Heilbrigt líf - 01.12.1950, Qupperneq 48
ætla má, að þurfi að nota handa ákveðnum sjúklingi í
náinni framtíð. Eins og stendur, strandar blóðgjöf að-
standenda oft á því, að blóð hans er ekki af þeim rétta
flokki, og því ekki nothæft. Með því að fara til bankans
og láta taka blóðið, er alveg sama af hvaða flokki það
er, því bankinn lætur í staðinn viðeigandi blóð af birgðum
sínum. Bankinn hér myndi byggja mjög mikið af blóð-
öflun sinni á þessum blóðgjöfum.
í öðru lagi eru blóðgjafar, sem eru á skrá hjá bank-
anum svipað og lýst var um blóðgjafasveitirnar, og er
leitað til þeirra, ef birgðir af ákveðnum flokki eru orðnar
ískyggilega litlar. Þeir þurfa að vera til taks, hvenær
sólarhringsins sem er, en þegar hægt er að koma því við,
sem oftast er, er reynt að gera þeim blóðgjöfina eins
fljótlega og auðvelda og hægt er. Með því, meðal annars,
að sjá svo um, að þeir geti komið á ákveðnum tíma og
þurfi ekki að bíða. Með því móti verður samvinnan við þá
og vinnuveitendur þeirra miklu betri, þeir eyða sem
minnstum tíma í blóðgjöfina og geta með fyrirvara beðið
um frí á ákveðnum tíma til þess að láta taka sér blóð.
í þriðja lagi eru svo blóðgjafasveitir, sem eru mynd-
aðar innan félaga eða annarra samtaka. Þetta fyrirkomu-
lag hefur gefizt sérstaklega vel, þar sem einhver greiðsla
hefur komið fyrir blóðið. Flest af þessu er fólk, sem ekki
myndi selja blóð í eiginhagsmunaskyni, en hér er það að
uppfylla tvær skyldur í einu. Greiðslan fyrir blóðið rennur
til félagsins eða samtakanna til framdráttar einhverju
áhugamáli þeirra, svo að jafnframt því, sem þeir eru að
hjálpa einhverjum sjúklingi, sem þarfnast blóðsins, eru
þeir að vinna að og styrkja áhugamál sín. Til þess að sam-
takanna gæti meira í þessari starfsemi, halda þeir hóp-
inn, er þeir koma til bankans, til þess að láta taka sér
blóð. Ég minnist þess sérstaklega, þaðan sem ég vann
um nokkurn tíma við blóðbanka, hve margir söfnuðir
142
Heilbrigt líf