Heilbrigt líf - 01.12.1950, Page 71
BÓKARFREGN
Gwen Barton: FYRSTA BARNIÐ. Katrín
Sverrisdóttir þýddi. Heimskringla. •— Rvík.
Prentsmiðjan Hólar h. f. 1950.
Bókarkorn þetta, sem er 80 bls. að stærð, er eftir enskan
kvenlækni, samið eftir að hún hafði alið fyrsta barnið
sitt. Efni þess eru mikilsverðar leiðbeiningar konum, sem
eru þungaðar í fyrsta sinn og fæða fyrsta barn sitt. Þess-
ar leiðbeiningar ná til lifnaðarhátta konunnar um með-
göngutímann, undirbúnings að fæðingunni og meðferðar
barnsins, er hún hefur alið það.
Kverinu er skipt í sjö kafla, auk lokaorða og efnisyfir-
lits. Á undan hverjum kafla er einföld fyrirsögn, sem
gefur til kynna innihald hans. Auk þess eru í hverjum
kafla fyrir sig fjöldi undirfyrirsagna. Þetta hvort tveggja
gerir lesandanum hægara um vik að notfæra sér kverið,
þar sem fljótlegt er að finna það, sem hann vill vita í
það og það skiptið. Eftir fljótlegan yfirlestur komst ég
að þeirri niðurstöðu, að kver þetta hefði að geyma flest
það, sem konum er nauðsynlegt að vita, hvað snertir
þungun, barnsburð og meðferð ungbarna.
Ráðleggingarnar eru settar fram í mildum leiðbeininga-
tón, oft næstum móðurlegum, án þess að bera nokkurn
keim af skipunum, en þó nægilega ákveðnar og án þess,
að þeim fylgi vangaveltur.
1 inngangsorðum höfundar að bókinni standa þessi orð:
„Annað barnið er auðvelt að eiga við, og þess vegna er
þessi bók skrifuð fyrir þær konur, sem eiga von á fyrsta
barninu sínu“.
Heilbrigt líf
165